Auglýsinga- og markaðsmál

Fréttamynd

Elín Hirst stofnar fyrir­tæki

Elín Hirst, fyrrverandi þingmaður og fréttastjóri, hefur stofnað fyrirtæki sem býður fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum upp á víðtæka fjölmiðla- og samskiptaþjónustu, framleiðslu og viðburðastjórnunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vissu ekki að þeir yrðu í aug­lýsingu fyrir Á­fram Ís­land

Það vakti undrun einhverra að slökkviðliðsfólki úr röðum Brunavarna Suðurnesja skyldi bregða fyrir í auglýsingu nei-hreyfingarinnar Áfram Ísland á dögunum. Slökkviliðsstjóri segir að í beiðni sem honum barst um að taka upp kynningarefni hafa hvergi verið minnst á að það væri fyrir auglýsingu hreyfingarinnar. Áfram Ísland segir slökkviliðsmennina ekki mótfallna því að vera í auglýsingunni.

Innlent
Fréttamynd

Golfáhrifa­valdar í klandri vegna um­deildrar aug­lýsingar

Verslanir hafa tekið varning frá golfáhrifavöldunum í Good Good úr sölu vegna auglýsingar þar sem forsprakki hópsins sást hrinda konu í jörðina. Bæði forstjóri Good Good og Callaway-kylfuframleiðandans hafa beðist afsökunar á auglýsingunni.

Golf
Fréttamynd

María Klara til At­hygli

María Klara Jónsdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli. Hún mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði samskipta, stefnumála og stjórnendaráðgjöf. Reynsla hennar af mannauðsmálum, vinnurétti, lögmennsku og stjórnun er sögð styrkja fjölbreytt ráðgjafarteymi Athygli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eitt mynd­band selji upp heilu lagerana

Hinar ýmsu bækur, gamlar og nýjar, hafa rokið upp vinsældarlista eftir að hafa verið teknar fyrir á samfélagsmiðlum. Þökk sé sjö ára gömlu samfélagsmiðlatrendi standa útgefendur á gati þegar gamlir lagerar seljast skyndilega upp. Þrátt fyrir vinsældirnar eru þær enn einungis í boði á ensku.

Menning
Fréttamynd

Moroccanoil slítur sam­starfi við Euro­vision

Ísraelska hárvörufyrirtækið Moroccanoil hefur tekið ákvörðun um að framlengja ekki samning sinn við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Samstarf keppninnar og ísraelska fyrirtækisins hefur verið umdeilt í gegnum tíðina, rétt eins og þátttaka Ísraels í keppninni. 

Tónlist
Fréttamynd

Aug­lýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Ís­lendinga notaðar

Vefsíðan Kira Ísland hefur undanfarið birt fjölda auglýsinga á Facebook, ætlaðar Íslendingum, og sagst selja vörur, aðallega græjur fyrir heimilið og garðinn. Auglýsingarnar hafa nú verið fjarlægðar af Facebook. Kona sem keypti tvær ryksugur á síðunni fyrir rúmum tveimur vikum hefur enn ekki fengið þær afhentar. Hún hefur sent fyrirspurnir og leitað skýringa á þessu, en engin svör fengið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Blöskrar áfengis­aug­lýsingar RÚV

Fyrrverandi íþróttafréttamaður sendir opna fyrirspurn til útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins varðandi áfengisauglýsingar og segist ekki geta orða bundist vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Enda­laust þvaður gæti fælt kjós­endur frá

Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda. 

Innlent
Fréttamynd

„Mun skyn­sam­legri leið en að hækka skatta og gjöld“

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, fagnar nýjum samningi stjórnvalda við Íslandsstofu um markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Hann segir ákvörðunina skynsamlega, ekki síst í ljósi umræðu um aukna gjaldtöku í ferðaþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Sam­komu­lag um landaheitið Ís­land undir­ritað

Samkomulag hefur verið undirritað um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland eða Iceland. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu á erlendum markaði.

Innlent
Fréttamynd

Kjörin for­maður SÍA

Selma Rut Þorsteinsdóttir, yfirsköpunarstjóri Pipar\TBWA, var kjörin formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) á aðalfundi samtakanna sem fram fór í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fram­boðin missi mögu­lega af leiðinni að hjarta kjós­enda

Kosningabaráttan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hefur einkennst af gervigreind, samfélagsmiðlabólum, endurunnu efni og upplýsingadrifnum auglýsingum þar sem frambjóðendur horfa mikið hver til annars. Stofnandi auglýsingastofunnar Tvist segir framboðin ekki endilega nýta sterkustu vopn auglýsinganna.

Innlent
Fréttamynd

Aug­lýsinga­sala gefur byr í seglinn hjá Símanum þrátt fyrir kólnandi hag­kerfi

Þótt það sé tekið að hægja á umsvifum í hagkerfinu þá hefur auglýsingasalan hjá Símanum verið á „skriði“, að sögn hlutabréfagreinanda, og væntingar um að þær tekjur muni halda áfram að vaxa umfram hagvöxt en fjárfestum er ráðlagt að bæta við sig bréfum í félaginu. Vakin er athygli á því að við áformuð kaup á miðlum Sýnar þá fylgir með skattalegur afskriftastofn sem er sagður sambærilegur verðmiðanum á félaginu.

Innherjamolar