Viðskipti innlent

Mikill munur á af­komu al­manna­tengla

Bjarki Sigurðsson skrifar
Félögin skiluðu öll hagnaði 2024 en afkoman varð verri í ár hjá nokkrum.
Félögin skiluðu öll hagnaði 2024 en afkoman varð verri í ár hjá nokkrum. Vísir

Þrjú af sjö helstu fyrirtækjum landsins sem sérhæfa sig í almannatengslum skiluðu tapi á síðasta ári. Þrjú þeirra skiluðu hagnaði og eitt hefur ekki skilað ársreikningi. 

Þónokkur fjöldi fyrirtækja sinnir almannatengslum og ráðgjöf fyrir fyrirtæki, einstaklinga og hið opinbera. Einhver þeirra, til dæmis Pipar og Aton, eru í grunninn auglýsingastofur en sinna einnig almannatengslaþjónustu. Ekki verður fjallað um þau í þessari grein þar sem erfitt er að glöggva sig á hvaða tekjur koma úr almannatengslageiranum og hverjar ekki. Einungis er fjallað um fyrirtæki sem sinna eingöngu almannatengslum og ráðgjöf. 

Eitt félag ekki skilað reikningi

Sjö stærstu fyrirtækin í þessum bransa eru að öllum líkindum KOM ráðgjöf, Góð samskipti, Cohn&Wolfe, Boðskipti, Athygli, Kvis og Langbrók. 

Sex af þessum fyrirtækjum hafa skilað ársreikningi fyrir 2025 en fyrirtæki og félög þurfa að skila ársreikningi til opinberrar birtingar fyrir 31. ágúst. KOM ráðgjöf hefur ekki birt sinn og birti ekki síðasta ársreikning fyrr en 31. desember 2025. Þá skilaði félagið tólf þúsund króna hagnaði. Eigendur KOM eru Friðjón Friðjónsson, Magnús Ragnarsson og Björgvin Guðmundsson. 

Góð samskipti í fullri eigu Andrésar Jónssonar, Athygli í eigu Kolbeins Marteinssonar, Más Mássonar og Bryndísar Nielsen og Cohn&Wolfe í eigu Ingvars Arnar Ingvarssonar, Gunnhildar Birnu Gunnarsdóttur og Haraldar Sigurðssonar skiluðu öll hagnaði á síðasta ári. 


Góð samskipti ehf.

Hagnaður Góðra samskipta nam tæpum sautján milljónum samanborið við rúmar fimmtán milljónir 2024. Eignir félagsins eru 34 milljónir og lækka um tíu milljónir milli ára. Andrés greiddi sér tuttugu milljónir í arð á síðasta ári og leggur stjórnin til að greiða allt að tuttugu milljónir í arð á þessu ári.

Andrés Jónsson er eini eigandi Góðra samskipta.Vísir/Vilhelm

Athygli ehf. 

Velta Athygli er töluvert meiri og tvöfölduðust tekjurnar milli ára, úr 108 milljónum í 206 milljónir. Félagið skilaði tæplega 27 milljóna króna hagnaði samanborið við tæplega átta milljóna króna hagnað árið á undan. Fimm starfsmenn störfuðu hjá félaginu og greiddi það 77 milljónir í laun. Lagt er til að greiddar verði 27 milljónir í arð 2026 en í fyrra var greiddur arður 6,4 milljónir. 

Már Másson, Kolbeinn Marteinsson og Bryndís Nielsen eiga Athygli ráðgjöf.

Cohn&Wolfe Íslandi ehf. 

Tekjur Cohn&Wolfe drógust lítillega saman milli ára og voru tæplega 97 milljónir. Félagið skilaði rúmlega níu milljón króna hagnaði en í fyrra skilaði það tapi upp á tólf og hálfa milljón. Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa þetta árið. 


Hinar þrjár stofurnar skiluðu tapi 2025 og greiða ekki arð á þessu ári. 


Kvis ehf.

Starfsemi Kvis ehf. í eigu Haddar Vilhjálmsdóttur dróst verulega saman milli ára og fóru tekjurnar úr sautján milljónum í tæpar þrjár. Tap ársins nam þremur milljónum samanborið við 5,8 milljóna króna hagnað árið áður. 

Hödd Vilhjálmsdóttir er eini eigandi Kviss.Vísir/Vilhelm

Boðskipti ehf.

Boðskipti ehf. er í eigu Róberts Róbertssonar og Unnar Hrefnu Jónsdóttur. Tekjur félagsins voru 37 milljónir og jukust um sex milljónir milli ára. Hins vegar var tap á rekstrinum upp á 2,1 milljón miðað við 800 þúsund króna hagnað árið áður. 


Langbrók ehf.

Langbrók ehf. er í eigu Soffíu S. Sigurgeirsdóttur og Báru Mjallar Þórðardóttur. Félagið var með tekjur upp á 36 milljónir en skilaði 3,2 milljóna tapi. Árið 2024 nam hagnaður félagsins 1,2 milljónum. 

Bára Mjöll Þórðardóttir og Soffía S. Sigurgeirsdóttir reka Langbrók.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×