Sterk rödd Íslands skiptir máli Karólína Helga Símonardóttir skrifar 19. febrúar 2026 07:45 Í heimi þar sem mannréttindi veikjast á örfáum dögum og alþjóðalög eru sífellt oftar véfengd er spurningin ekki hvort Ísland eigi að hafa skoðun, heldur hvort við höfum efni á að hafa hana ekki. Á dögunum fór ég í pontu á Alþingi og ræddi mikilvægi þess að Ísland hafi sterka rödd í heimi þar sem togstreita, óvissa og átök fara vaxandi. Smáríki eins og Ísland hafa tvo kosti: að þegja eða að standa með þeim gildum sem þau byggja á. Fyrir mér er valið skýrt. Sterk og skýr rödd á alþjóðavettvangi er ekki aðeins spurning um hagsmunagæslu heldur um grundvallargildi samfélagsins. Sama dag rakst ég á fréttir af nýjum reglum í Afganistan sem veita heimildir til líkamlegrar refsinga innan fjölskyldu og takmarka frelsi kvenna til sjálfstæðra athafna. Slík þróun minnir okkur á hversu brothætt mannréttindi geta verið, og hversu hratt þau geta horfið þegar þau eru ekki varin. Þetta eru einmitt þau mannréttindabrot sem við megum ekki horfa fram hjá. Lýðræði, frelsi, jafnrétti og mannréttindi eru ekki slagorð sem við notum aðeins innanlands. Þetta eru gildi sem hafa mótað íslenskt samfélag og skapað stöðugleika og traust. Þau eiga einnig erindi út fyrir landsteinana, sérstaklega á tímum þegar alþjóðalög og mannréttindi eru víða undir þrýstingi. Þar gegnir Utanríkisráðherra Íslands lykilhlutverki. Með virkri þátttöku í alþjóðasamstarfi, skýrri afstöðu og markvissri gagnrýni á mannréttindabrotum er rödd Íslands látin heyrast. Slík vinna skiptir máli ekki vegna stærðar landsins heldur vegna þess að trúverðugleiki smáríkis byggist á stöðugri og fastri afstöðu. Við teljum okkur frið elskandi þjóð. En friður er ekki sjálfgefinn. Hann krefst viðvarandi verndar, bæði með samtali og skýrri afstöðu. Rödd Íslands snýst ekki aðeins um mannréttindi heldur einnig um frelsi, lýðræði og sjálfsákvörðunarrétt ríkja. Saga okkar minnir okkur á að sjálfstæði er aldrei sjálfgefið. Því ber okkur skylda til að styðja þjóðir sem vilja ráða eigin framtíð og hafna þvingunum og yfirráðum annarra. Í heimi þar sem sum ríki leitast við að breyta landamærum með valdi eða grafa undan alþjóðalögum megum við ekki draga okkur í hlé. Við eigum að efla samstarf við bandalagsríki og vinna náið með nágrannaþjóðum okkar. Sterk rödd Íslands á alþjóðavísu er framlag til friðar, lýðræðis og frelsis. Ekki síður til þess að komandi kynslóðir búi í heimi þar sem mannréttindi eru varin. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði og varaþingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karólína Helga Símonardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar