Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 12:56 Soffía Ámundadóttir, kennari og verkefnisstjóri á Menntavísindasviði HÍ, leiðir verkefnið Menntafléttuna. Vísir/Lýður Vísbendingar eru um að um þúsund börn á Íslandi sæki ekki grunnskóla, þrátt fyrir skólaskyldu. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um það hversu víðtækt vandamál er um að ræða en margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að börn sæki ekki skóla.
Í síðustu viku fjallaði Vísir um svar mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi, þar sem fram kom að ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hversu mörg börn á Íslandi sækja ekki skóla, þrátt fyrir skólaskyldu í landinu. Ráðuneytið safni ekki upplýsingum um skólasókn barna með kerfisbundnum hætti frá sveitarfélögum en að væntanlegum miðlægum nemendagrunni verði meðal annars ætlað að bæta úr þessu. Soffía Ámundadóttir, kennari og verkefnisstjóri á Menntavísindasviði HÍ, leiðir verkefnið Menntafléttuna, en hún var til viðtals um málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir þetta vera staðreynd, ekki sé vitað nákvæmlega hversu mörg börn sæki ekki skóla, þrátt fyrir skólaskyldu. Staðreynd að fjöldi barna mæti ekki í skólann „Þetta er því miður staðreynd, og við getum ekki einu sinni komið okkur saman um það hvað við köllum þetta, skólaforðun, skólasóknarvandi, skólahöfnun, nemandi í útilokun,“ segir Soffía. Hún var jafnframt spurð hvort hún hefði einhverja hugmynd um hvað þetta kynnu að vera mörg börn, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir um það opinberar tölur. „Ég hef heyrt svona óformlega tölu, þúsund börn á Íslandi. Það er gríðarlega stór og mikill vandi, og þetta er ekki bara það að við komum ekki barninu þínu í skólann, heldur liggur heimilið undir. Ég hef heyrt sögur af foreldrum sem hafa endað í kulnun og veikindum af því það er mjög mikið álag að koma barninu í skólann,“ segir Soffía. Það séu margar og fjölbreyttar ástæður fyrir því að umrædd börn mæti ekki í skólann. „Ég hef unnið mikið í úrræðum fyrir börn í vanda þannig ég þekki náttúrlega mörg börn sem hafa verið í skólaforðun og þær eru eiginlega jafnólíkar eins og þær eru margar. Það getur verið kvíði og það geta verið félagslegir erfiðleikar og það getur líka verið einhverjir skólatengdir þættir, og í langflestum tilfellum í þeim úrræðum sem ég hef unnið í þá er það bara að skólinn er ekki að mæta þörfum þessara barna,“ segir Soffía. Mikil aðsókn á fyrirhugað málþing Hún bendir á að boðað hafi verið til málþings um skólaforðun sem gert hafi verið að frumkvæði Guðmundar Inga Kristinssonar á meðan hann gegndi embætti mennta- og barnamálaráðherra. „Við getum tekið 300 manns í sæti, á fyrsta sólarhring fóru 150 sæti bara um leið. Þannig að vandamálið er alls staðar á Íslandi. Við erum svolítið að reyna að klukka allar hliðar, við erum að fá inn fræðafólkið, við höfum reyndar ekki rannsakað þetta nóg, en við ætlum að fá doktor frá háskólanum og starfsmann frá MMS til að ræða vandamálið í fræðum,“ segir Soffía. Það sé eitt, en hitt sé að fara yfir aðgerðir og úrræði. Þegar séu einhver úrræði í boði sem fólk sé ef til vill ekki meðvitað um, en fulltrúar þeirra sem hafa úrræði til boða muni einnig taka þátt í málþinginu auk foreldra sem munu lýsa sinni reynslu. Viðtalið við Soffíu í Bítinu má heyra í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Skóla- og menntamál Geðheilbrigði Börn og uppeldi Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira