Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. febrúar 2026 14:47 Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Hildigunnur Svavarsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá og með deginum í dag vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra að auglýsa stöðu forstjóra að loknu fimm ára skipunartímabili hennar.
Akureyri.net greinir frá og vísar til tölvupósts Hildigunnar til starfsfólks. Tilkynnt var þann 6. ágúst 2021 að Hildigunnur hefði verið skipuð forstjóri sjúkrahússins til fimm ára. „Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa stöðu forstjóra að loknu fimm ára skipunartímabili mínu. Í ljósi þeirrar ákvörðunar hef ég óskað eftir að láta af störfum frá og með deginum í dag. Ég tel mikilvægt að skýr forysta og fullt traust ríki um stöðu forstjóra og að nýr aðili taki við sem fyrst. Heilbrigðisráðuneytið hefur fallist á þá beiðni,“ segir í tölvubréfi Hildigunnar til samstarfsfólks. Það má lesa í heild sinni neðar í fréttinni. Mannauðsstjórinn tekur við Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að heilbrigðisráðherra hafi ákveðið að auglýsa embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri og forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands laus til umsóknar. Skipunartími forstjóra SAk renni út 31. ágúst næstkomandi og skipunartími forstjóra HSA renni út 31. desember næstkomandi. Vegna beiðni Hildigunnar um að láta þegar af störfum verði embætti forstjór SAk auglýst innan skamms en Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs sjúkrahússins, muni gegna embættinu þar til nýr forstjóri hefur verið skipaður. Embætti forstjóra HSA verði auglýst síðar á árinu. Bréf Hildigunnar í heild: Kæra samstarfsfólk. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa stöðu forstjóra að loknu fimm ára skipunartímabili mínu. Í ljósi þeirrar ákvörðunar hef ég óskað eftir að láta af störfum frá og með deginum í dag. Ég tel mikilvægt að skýr forysta og fullt traust ríki um stöðu forstjóra og að nýr aðili taki við sem fyrst. Heilbrigðisráðuneytið hefur fallist á þá beiðni. Það hefur verið mér mikill heiður að starfa með ykkur undanfarin ár og áratugi. Á þessum árum höfum við tekist á við krefjandi verkefni, byggt upp starfsemina og styrkt stöðu sjúkrahússins í þágu sjúklinga og samfélagsins. Ég vil þakka ykkur af heilum hug fyrir ykkar fagmennsku, elju og samstarf. Hlýjar kveðjur, Hildigunnur Svavarsdóttir Fréttin hefur verið uppfærð
Heilbrigðismál Sjúkrahúsið á Akureyri Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðisstofnun Austurlands Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira