„Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Lovísa Arnardóttir skrifar 17. febrúar 2026 06:30 Helgi segir að hann skammist sín í raun fyrir það hversu stressaður hann var að fá kaffistofuna í húsið. Samstarfið hafi verið áreynslulaust. Vísir/Anton Brink Helgi Guðnason, forstöðumaður í Fíladelfíu í Reykjavík, segir samstarfið við Samhjálp hafa gengið vonum framar eftir að kaffistofan fékk tímabundið skjól í húsnæði kirkjunnar. Hann viðurkennir að það hafi verið töluverð óvissa en hafi alltaf verið sannfærður um að það rétta í stöðunni væri að hjálpa. „
Við vissum kannski ekki alveg hvað við vorum að fara út í. Við vissum að það eru bornar fram 200 máltíðir á dag, þannig maður vissi að það yrði mikil traffík en okkur fannst þetta bara það mikilvægt verkefni að við vildum leggja því lið.“ Hann segist hafa skilning á áhyggjum fólks og óvissunni sem fylgi. Fólk hafi til dæmis lýst áhyggjum af börnunum sínum einum heima og nálægðinni við kaffistofuna. „En staðreyndin er sú að ég hef ekki heyrt eina einustu kvörtun eða. Maður hefur sérstaklega haft áhyggjur af sunnudögunum en það hefur ekki gerst að fólk sé að koma í einhverju ástandi á samkomurnar okkar. Aðalinngangurinn er beint fyrir ofan kaffistofuna og margir sem leggja niðri og þurfa að ganga fram hjá,“ segir hann og að enginn hafi kvartað undan því á samkomum að einhver hafi reynt að fara inn í bíl eða að börn þeirra hafi verið áreitt eða orðið vitni að einhverju eins og neyslu eða ofbeldi. Fíladelfía er í Hátúni, sem er íbúðahverfi, við tannlæknastofu og bifreiðaverkstæði og skólar og leikskólar í næsta nágrenni, eins og á Grensásvegi. Kaffistofan hefur verið rekiní húsnæði Fíladelfíu frá því í október. Vísir/Anton Brink Hefði heyrt frá íbúum eða sókninni Helgi segist alveg viss um að ef eitthvað hefði komið upp á samkomu hefði hann heyrt af því. Fólk hafi yfirleitt ekki hikað við að láta hann vita. Þá hafi hann heldur ekki heyrt af því eða tekið eftir að aðsókn hafi minnkað. „Þetta var dálítil áhætta en af því að þetta hefur gengið vel hefur mér liðið eins og fólkið í kirkjunni sé rosalega ánægt með að við séum að gera þetta og við njótum stuðnings.“ Samhjálp hefur tekið húsnæðið í miðjunni á leigu og ætlaði að opna kaffistofuna á ný í desember. Því hefur verið frestað. Vísir/Vilhelm Skammast sín eftir á Hann segir starfsfólk kaffistofunnar fylgjast afar vel með svæðinu og inni líka. Þau hafi ekki orðið vör við sprautunálar og ef eitthvað er sé minna af sígarettustubbum en var áður. Það hafi einu sinni maður, sem líklega var undir áhrifum, rambað inn í kaffi til þeirra en hafi fljótt verið fylgt á réttan stað. Hann efist um að margir hafi tekið eftir því. „Við fáum símtöl ef það er útför og fólkið í útförinni leggur í götuna þegar bílastæðin fyllast. Við höfum ekki fengið eina kvörtun frá nágrönnunum,“ segir Helgi og að hann telji ólíklegt að það hefði ekki heyrst í íbúum ef innbrotum hefði fjölgað. „Við bjuggumst ekki við hinu versta, en grunaði aldrei að þetta yrði svona áreynslulítið. Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður. Því þetta er bara ekkert mál. Eins og fram hefur komið er aðeins um tímabunda lausn að ræða. Helgi segir þau ekki endilega óþreyjufull að losna við kaffistofuna en ef þau ílengist sé ljóst að kirkjan þurfi að finna aðrar lausnir fyrir barnastarfið sitt og starf sitt fyrir eldri borgara. „Það eru allir sammála um að það sé gott að geta hjálpað.“
Kaffistofa Samhjálpar Veitingastaðir Fíkn Geðheilbrigði Innflytjendamál Hælisleitendur Trúmál Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Knapi datt af baki Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira