Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 12:47 Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala óttast um öryggi sitt og sjúklinga þar sem ekki er hægt að tryggja sýkingavarnir, segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Vinnuaðstæður séu óboðlegar. Stéttarfélög allra starfsmanna bráðamóttökunnar hafa boðað til fundar síðdegis.
Landspítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í eitt ár vegna álags á spítalanum. Dæmi eru um að einstaklingar séu á bráðamóttökunni í tíu daga vegna plássleysis á öðrum deildum og fjöldinn sem liggur þar inni er ávallt umfram rúmpláss. Þar að auki fer fjöldi annarra sjúklinga í gegnum bráðamóttökuna á degi hverjum. Ekki unnt að tryggja smitvarnir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, segir að ítrekað hafi verið bent á að verið sé að brjóta á réttindum sjúklinga. Réttindi starfsfólks séu einnig þverbrotin. „Fólk óttast um heilsu sína og öryggi við það að mæta á vinnustað þar sem ekki er hægt að tryggja sýkingarvarnir. Það er ekki hægt að fara eftir þeim sýkingarvarna- og smitvarnarreglum sem við öll þekkjum vegna fjölda sjúklinga sem þarna eru saman komnir. Það eru ekki til einangrunarrými, þannig að fólk sem er með smitandi sjúkdóm liggur þarna á gangi í umferð allra. Þannig að erfitt að verjast því að smit berist ekki þarna á milli, bæði í sjúklinga og starfsfólk,“ segir Helga. Eru þetta óviðunandi vinnuaðstæður að þínu mati? Líkt og fram hefur komið hafa átta starfsmenn bráðamóttökunnar til að mynda greinst með berklasmit og eru félagsmenn í Félagi hjúkrunarfræðinga þar undir. Síðdegis í dag hefur verið boðað til fundar þar sem fulltrúar stéttarfélaga allra starfsmanna bráðamóttökunnar munu koma saman og hlusta á áhyggjuraddir félagsmanna. Þar undir eru Læknafélagið, Félag hjúkrunarfræðinga, Sjúkraliðafélagið, Efling og Sameyki. Helga býst við að fundurinn sendi frá sér ályktun og vonar að gripið verði til aðgerða. „Maður veltir fyrir sér hvers vegna það sé í lagi að brjóta þarna ákveðnar reglugerðir varðandi eldvarnir, flóttaleiðir og aðra hollustuhætti í vinnu. Mörg neyðarópin hafa heyrst og ítrekað er bent á að þarna sé verið að brjóta á réttindum sjúklinga en það virðist einhvern veginn ekki hafa dugað til. Þannig að það er spurning, ef við horfum á brot á réttindum og vinnuumhverfi starfsfólks, hvort það skili einhverjum frekari aðgerðum,“ segir Helga.
Landspítalinn Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Berklar Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira