Flutti til Reykjavíkur í dag Bjarki Sigurðsson skrifar 9. febrúar 2026 12:25 Ari Edwald mun skipa efsta sætið á lista Miðflokksins í borgarstjórnarkosningum í vor. Ari Edwald segir það spennandi tækifæri að fá að leiða Miðflokkinn í borgarstjórnarkosningum í vor. Borgarbúar þrái breytingar, sem hann vilji leiða. Hann flutti til Reykjavíkur í dag eftir að hafa búið í Portúgal og Garðabæ síðustu mánuði.
Í samtali við fréttastofu segir Ari að uppstillingarnefnd Miðflokksins hafi leitað til sín og honum þótt það spennandi að fá tækifæri til að leiða listann. „Ég hef verið í Sjálfstæðisflokknum en finnst ég fá mestan hljómgrunn með mínar áherslur og markmið innan Miðflokksins. Árum saman hafa borgarbúar þráð breytingar, hvort sem það er í breyttum samgöngum eða leikskólakerfi sem virkar. Bættum árangri í grunnskólum eða ráðdeild í rekstri borgarinnar. Flokkar hafa boðið fram og boðað slíkt, en síðan farið á bak orða sinna þegar þarf að mynda meirihluta. Þannig hefur þróunin verið og það er andlýðræðislegt,“ segir Ari. Hann vilji opna tækifæri til raunverulegra breytinga í rekstri Reykjavíkurborgar. Hann hafi ýmiss konar reynslu sem geti nýst honum í starfi. Erfiður tími fyrir fjölskylduna Ari hætti sem framkvæmdastjóri Ísey útflutnings eftir að Vítalía Lazareva sakaði hann um kynferðisofbeldi. Rannsókn á málinu var felld niður sumarið 2023. „Ég hef sagt að ég vilji skilja það mál eftir í fortíðinni. Ég var borinn röngum sökum. Þær staðhæfingar stóðust ekki þegar nánar var að gáð. Ég þurfti að kæra til yfirvalda til að koma málinu í þann farveg. Þetta tók langan tíma og hann var erfiður fyrir mig og mína fjölskyldu. Það eru þrjú ár síðan lokaniðurstaða lá fyrir og ég tel mig geta skilið það mál eftir í fortíðinni. Það hafi fyrir löngu verið upplýst og meira en fullrætt,“ segir Ari. Flutti í dag Hann er með skráð lögheimili í Portúgal, þar sem hann hefur dvalið lengi síðustu mánuði. Þá hefur hann dvalið í Garðabæ þegar hann er á landinu. „Ég er búinn að flytja til Reykjavíkur. Það er alveg rétt að þó að ég sé fæddur og uppalinn í Reykjavík, og hafi langstærstan hluta ævi minnar búið þar og alltaf starfað þar, hafi ég búið utan borgarmarkanna síðustu árin. Mest í Garðabæ en aðeins í Portúgal síðasta rúma árið. Ég er aðeins að flækja þetta, ég er sammála því. Þetta er stór ákvörðun og hún felur í sér að ég flytji til Reykjavíkur og ég mun búa hér. Ég hlakka til þess,“ segir Ari. Hann hafi komið til landsins á fimmtudaginn og í morgun hafi hann gengið formlega frá flutningi til Reykjavíkur. Sonurinn einnig í framboði Páll Edwald, sonur Ara, mun einnig skipa sæti á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum. Ari segir framboð þeirra beggja í aðskildum farvegi. „Hann hefur sinn metnað og hefur tekið þátt í starfi Miðflokksins. Hann sóttist eftir sæti og hlýtur náð fyrir augum nefndarinnar sem hefur unnið að því að stilla þessu upp,“ segir Ari.
Miðflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira