Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. febrúar 2026 20:31 Guðlaugur Kristmundsson formaður félags fósturforeldra segir starfsmenn barnaverndar hafa upplifað afskiptaleysi gegn fósturbörnum. Vísir/Anton Brink Forsætisráðherra kynnti í dag fjórþættar aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til vegna barna sem beitt voru ofbeldi um árabil í Bakkakoti. Formaður félags fósturforeldra segir bæði fósturforeldra og starfsfólk barnaverndar hafa upplifað algjört afskiptaleysi stjórnvalda í málinu.
Í aðgerðunum fjórum felst að staða vistbarna á Bakkakoti verði rannsökuð, að mönnunum verði boðin sálfræðiaðstoð, að gerð verði sérstök úttekt á stöðu fósturbarna hér á landi og að sanngirnisbótakerfið verði endurskoðað og nýtt frumvarp lagt fram í haust. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fund sinn með þremenningum af Bakkakoti í gær hafa verið áhrifaríkan. Klippa: Aðgerðirnar gott fyrsta skref „Ég held að það sé mjög mikilvægt að þeir sýndu þennan styrk. Þetta er gríðarlega erfitt fyrir þessa þolendur, þannig auðvitað vonast maður alltaf til þess að umfangið sé minna en því miður hefur maður grun um að það muni ennþá fleiri stíga fram og það skiptir máli að fólk hafi svigrúm til þess að segja frá, það sé hlustað og að fólki sé trúað.“ Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir um 440 fósturbörn í vistun á landinu í dag. Eftirliti með aðstæðum þeirra hafi verið ábótavant um árabil. „Ég var á fundi með Barna-og fjölskyldustofu, góðum fundi í gær þar sem ég fékk greinargóðar upplýsingar en ég óskaði eftir mun frekari upplýsingum, ég vil fá að vita hvar börnin eru vistuð og hvernig aðbúnað þau búa við í dag.“ Guðlaugur Kristmundssson, formaður Félags fósturforeldra, segir aðgerðirnar gott fyrsta skref en tryggja þurfi að eftirliti sé sinnt í núverandi kerfi sem nýlega hafi verið gjörbreytt. „Hvernig er þessu lögbundna eftirliti nú háttað vegna þess að við viljum hafna því að það eigi að teikna upp nýtt kerfi, notum það sem þegar er.“ Eftir tíðindi dagsins hafi starfsmenn barnaþjónustu sveitarfélaga haft samband og óskað þess að félagið tryggi að ákveðnir þættir verði hafðir til hliðsjónar í útttekt stjórnvalda. „Þau leita ekki til síns yfirmanns sem er sveitarstjórinn, eða til eftirlitsstofnunar ríkisins sem er þá gæða og eftirlitsstofnun eða barna- og fjölskyldustofu eða ráðuneytisins til að koma þessum áhyggjum á framfæri. Þau koma til okkar vegna þess að þau eins og við eru búin að upplifa það að það er algjört afskiptaleysi í þessum þunga málaflokki.“
Börn og uppeldi Fósturbörn Rangárþing ytra Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira