Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. febrúar 2026 07:31 Herforinginn Alexus Gregory Grynkewich fer fyrir herafla Bandaríkjanna í Evrópu. Getty/Omar Havana Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Rússlandi hafa komist að samkomulagi um að koma aftur á formlegum og stöðugum samskiptum milli hernaðaryfirvalda ríkjanna. Tilkynnt var um þetta í kjölfar funda fulltrúa Bandaríkjanna og Rússlands á hliðarlínum viðræðna um Úkraínu í Abu Dhabi.
Samkvæmt yfirlýsingu frá herstjórn Bandaríkjanna í Evrópu standa vonir til þess að samstarfið muni á endanum leiða til varanlegs friðar. Boðleiðum milli ríkjanna hefur jafnan verið haldið opið þrátt fyrir að blásið hafi köldu þeirra á milli, meðal annars til að koma í veg fyrir misskilning og stigmögnun. Hins vegar var slitið á þær árið 2021, skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Síðan hafa herforingjar Bandaríkjanna, Rússlands og Atlantshafsbandalagsins átt í einhverjum samskiptum en ekki með reglubundnum hætti. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað lýst áhuga sínum á að bæta samskipti og samband Bandaríkjanna og Rússlands, á sama tíma og hann hefur notað Rússa sem „vonda kallinn“ til að þrýsta á Evrópuleiðtoga og freista þess að ná yfirráðum yfir Grænlandi. Forsetinn sagði í gær að í stað þess að endurnýja START samkomulagið um fækkun kjarnavopna, sem rann út í vikunni, vildi hann komast að „nýju og betra“ samkomulagi. Viðræður um það hafa einnig staðið yfir í Abu Dhabi.
Bandaríkin Rússland NATO Kjarnorkuvopn Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira