Fossvogur án íþrótta – afleiðingar Fossvogsbrúar Baldvin Björgvinsson skrifar 4. febrúar 2026 15:03 Bygging Fossvogsbrúar mun hafa óafturkræfar afleiðingar fyrir Fossvoginn sem útivistar- og íþróttasvæði. Siglingar, róður og sjósund hverfa og starfsemi siglingaklúbba leggst niður. Þetta er nokkuð sem Siglingasamband Íslands og Alþjóðasiglingasambandið og öll íþróttafélög við Fossvog hafa bent á og varað við. Þrátt fyrir þessi varnaðarorð hefur ekkert verið tekið tillit til ábendinga siglingafólks í ferlinu. Við upphaf brúarsmíði verður stórt framkvæmdasvæði afmarkað á landi og sjó. Hafsvæðið verður þó ekki girt, heldur einungis skilgreint sem lokað á sjókortum. Slík afmörkun er ósýnileg í raunveruleikanum. Straumar, vindur og ófyrirséðar aðstæður geta auðveldlega borið báta, þar á meðal börn, og sjósundfólk inn á hættusvæði. Við slíkar aðstæður geta siglingaklúbbar ekki borið ábyrgð á öryggi iðkenda og neyðast til að stöðva alla starfsemi sína. Með þessu er eitt mikilvægasta útivistar- og íþróttasvæði höfuðborgarsvæðisins lagt niður. Fossvogurinn hefur verið byggður upp í áratugi með mikilli sjálfboðavinnu og nýttur af börnum, ungmennum og fullorðnum allt árið um kring. Sá samfélagslegi auður hverfur með einni framkvæmd. Alvarlegast er þó að engin heildstæð umhverfismatsskýrsla hefur verið gerð um áhrif Fossvogsbrúar á lífríki Fossvogs. Svæðið nýtur að hluta friðunar og er viðkvæmt vistkerfi með fjölbreyttu fugla- og sjávarlífi. Engin gögn liggja fyrir um hvernig brúargerðin muni hafa áhrif á þetta lífríki, þrátt fyrir umfang og varanleika framkvæmdarinnar. Óbreytt stefna þýðir að Fossvogurinn hættir að vera vettvangur íþrótta, útivistar og samfélagslegrar þátttöku og verður þess í stað lokað framkvæmdasvæði með varanlegum neikvæðum áhrifum á náttúru og lífsgæði íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem síðan breytist í lífvana drullupoll sem er ónothæfur til íþróttaiðkunar. Höfundur er skútuskipsstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fossvogsbrú Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Bygging Fossvogsbrúar mun hafa óafturkræfar afleiðingar fyrir Fossvoginn sem útivistar- og íþróttasvæði. Siglingar, róður og sjósund hverfa og starfsemi siglingaklúbba leggst niður. Þetta er nokkuð sem Siglingasamband Íslands og Alþjóðasiglingasambandið og öll íþróttafélög við Fossvog hafa bent á og varað við. Þrátt fyrir þessi varnaðarorð hefur ekkert verið tekið tillit til ábendinga siglingafólks í ferlinu. Við upphaf brúarsmíði verður stórt framkvæmdasvæði afmarkað á landi og sjó. Hafsvæðið verður þó ekki girt, heldur einungis skilgreint sem lokað á sjókortum. Slík afmörkun er ósýnileg í raunveruleikanum. Straumar, vindur og ófyrirséðar aðstæður geta auðveldlega borið báta, þar á meðal börn, og sjósundfólk inn á hættusvæði. Við slíkar aðstæður geta siglingaklúbbar ekki borið ábyrgð á öryggi iðkenda og neyðast til að stöðva alla starfsemi sína. Með þessu er eitt mikilvægasta útivistar- og íþróttasvæði höfuðborgarsvæðisins lagt niður. Fossvogurinn hefur verið byggður upp í áratugi með mikilli sjálfboðavinnu og nýttur af börnum, ungmennum og fullorðnum allt árið um kring. Sá samfélagslegi auður hverfur með einni framkvæmd. Alvarlegast er þó að engin heildstæð umhverfismatsskýrsla hefur verið gerð um áhrif Fossvogsbrúar á lífríki Fossvogs. Svæðið nýtur að hluta friðunar og er viðkvæmt vistkerfi með fjölbreyttu fugla- og sjávarlífi. Engin gögn liggja fyrir um hvernig brúargerðin muni hafa áhrif á þetta lífríki, þrátt fyrir umfang og varanleika framkvæmdarinnar. Óbreytt stefna þýðir að Fossvogurinn hættir að vera vettvangur íþrótta, útivistar og samfélagslegrar þátttöku og verður þess í stað lokað framkvæmdasvæði með varanlegum neikvæðum áhrifum á náttúru og lífsgæði íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem síðan breytist í lífvana drullupoll sem er ónothæfur til íþróttaiðkunar. Höfundur er skútuskipsstjóri.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar