Reyndu að fá dómara til að hlutast til um mál Le Pen Kjartan Kjartansson skrifar 21. janúar 2026 11:15 Marine Le Pen reynir nú að hnekkja banni sem hún fékk við því að bjóða sig fram til opinbers embættis. Hún nýtur samúðar Bandaríkjastjórnar. Vísir/EPA Bandarískir embættismenn báðu franskan dómara um að hlutast til í máli Marine Le Pen, leiðtoga jaðarhægrimanna, í fyrra. Dómaranum varð svo bilt við að hann lét utanríkisráðuneytið vita af tilraunum Bandaríkjamannanna.
Tveir ráðgjafar bandaríska utanríkisráðuneytisins funduðu með Magali Lafourcade, frönskum dómara, í fyrra en sendiráð Bandaríkjanna hafði milligöngu um að skipuleggja hann. Þeir báðu um fundinn með Lafourcade vegna stöðu hennar sem framkvæmdastjóri ráðgjafarráðs frönsku ríkisstjórnarinnar í mannréttindamálum. Lafourcade segir blaðinu Politico að fundurinn hafi hafist á umræðum um tjáningarfrelsi almennt en fljótlega hefðu Bandaríkjamennirnir beint umræðunni að Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar. Le Pen hlaut dóm fyrir fjárdrátt í fyrra og var bannað að bjóða sig fram til opinbers embættis í fimm ár. Að óbreyttu getur hún því ekki boðið sig fram til forseta á næsta ári. „Þeir virtust telja að þetta væru algerlega pólitísk réttarhöld vegna þess að hún væri stjórnarandstæðingur,“ segir Lafourcade. Bandaríkjamennirnir hefðu ekki haft áhuga á útskýringum hennar á hvernig franska réttarvörslukerfið virkaði en spurðu hana þess í stað hvort hún gæti hlutast til í máli Le Pen. Hún hefði sagt þeim að ráðið blandaði sér ekki í einstök dómsmál. Svo miklar áhyggjur hafði Lacourde af framferði bandarísku embættismannanna að hún lét franska utanríkisráðuneytið vita af fundinum. Ráðuneytið vildi ekki tjá sig við Politico. Vildi að bandarískir skattgreiðendur styddu Le Pen Annar bandarísku embættismannanna, Samuel Samson, vakti athygli í fyrra þegar hann lagði til að Bandaríkjastjórn styrkti málsvörn Le Pen með opinberu fé. Hann, líkt og aðrir stjórnarliðar í Bandaríkjunum, hefur hamast gegn Evrópu sem hann lýsir sem „gróðarstíu“ ritskoðunar á netinu, fjöldainnflutnings fólks og takmarkana á trúfrelsi. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins staðfesti að fundurinn hefði átt sér stað en lýsti ásökunum um tilraun til afskipta sem „ósönnum orðómi“ þrátt fyrir að Lafourcade hafi sjálf sagt frá því sem fór fram. Franskur dómstóll hefur nú áfrýjun Le Pen á dómnum til meðferðar. Hún bar vitni í málinu í gær og varpaði þar ábyrgð á fyrrverandi Evrópuþingsmenn flokks hennar og aðra. Le Pen og félagar voru sakfelldir fyrir misferli með styrki frá Evrópuþinginu. Þeir hefðu látið þingið greiða fyrir starfsmenn flokksins í Frakklandi þrátt fyrir að þeir ynnu lítið eða ekkert fyrir Evrópuþingmenn hans. Amast gegn Evrópu Þetta er ekki í fyrsta skipti sem núverandi valdhafar í Washington-borg reyna að hafa áhrif á frönsk innanríkismál, ef marka má nýlega umfjöllun þýska tímaritsins Der Spiegel. Bandaríska utanríkisráðuneytið var sagt íhuga að leggja refsiaðgerðir á dómarana sem sakfelldu Le Pen svipað og það hefur gert við dómara við Alþjóðasakamáladómstólinn sem gáfu út handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, vegna stríðsglæpa á Gasa. Eftir að Donald Trump tók aftur við embætti forseta í fyrra hefur Bandaríkjastjórn byggt upp tengsl við fjarhægriflokka í Evrópu, þar á meðal Valkost fyrir Þýskaland, Frelsisflokk Geert Wilders í Hollandi og Þjóðfylkingu Le Pen í Frakklandi. Bandaríkjastjórn hefur á sama tíma deilt hart á stjórnvöld í Evrópu fyrir það sem hún segir ritskoðun og kúgun á þessum fjarhægriöflum. Hún beitti nýlega fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Evrópusambandinu og baráttufólk gegn hatursorðræðu og upplýsingafals á netinu refsiaðgerðum fyrir ritskoðun á bandarískum viðhorfum.
Frakkland Bandaríkin Donald Trump Erlend sakamál Kosningar í Frakklandi Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Fleiri fréttir Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Sjá meira