Ein helsta forvörn og grunnstoð samfélagsins er fjölbreytt íþróttastarf Magnús Ingi Ingvarsson skrifar 19. janúar 2026 15:31 Nú á dögum sækjum við fullorðna fólkið hvað mest í hreyfingu eða íþróttir sem eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á fjölbreytni. Hér má nefna til dæmis crossfit, blandaðar bardagaíþróttir, hyrox, utanvegahlaup, hóptímar í ræktinni og lengi mætti áfram telja. Við viljum eiga valkostinn á að ef okkur fer að leiðast ákveðin hreyfing að það sé eitthvað annað í boði og best væri ef þetta væri allt á sama staðnum. Nú á dögunum var tilkynnt um fyrirtæki sem selur miðlægt kort á milli stöðva, þar sem einstaklingur borgar eitt verð en fær aðgang að mismunandi líkamsræktarstöðvum. Þá verður manni hugsað til barna- og ungmennastarfs og sérhæfni í ákveðnum íþróttum. Ég hef síðustu ár lagt mikið kapp á að koma mínum börnum sem fyrst í íþróttir og hafa þau bæði byrjað í fimleikum fyrir tveggja ára aldur. Ástæðan er einföld, fjölbreytni æfinga og fimleikar eru frábær grunnur fyrir hvaða íþrótt sem barnið kemur til með að velja sér þegar það eldist. Börn fara svo að velja sér greinar í fyrstu bekkjum grunnskóla og vilja fá að prófa hinar og þessar íþróttir til að finna hvað þeim finnst skemmtilegast og oft fylgja þau vinum sínum sem hafa kannski fundið sína íþrótt. Foreldrar leggja sig flest fram við að aðstoða við val enda er ekki hægt að stunda allar íþróttirnar. Helsta ástæða þess er kostnaður við hverja íþrótt og þótt helsti útgjaldaliðurinn sé iðkendagjöldin þá er allur búnaður, keppnisgjöld og annað óupptalið. Frístundastyrkurinn er fjárhagslegur stuðningur við börn og hjálpar til við að skapa jöfn tækifæri fyrir þau sem vilja leggja stund á íþróttir og efla félagsleg tengsl. En hann dugir bara fyrir einni íþrótt. Ódýrri íþrótt. Nýting á frístundastyrk fellur gríðarlega þegar að börn komast á unglingsárin en þá er einmitt langhæsta brottfall úr íþróttum. Af hverju er það? Vandamálið tel ég vera fjölþætt en samt sem áður einfalt. Brottfall úr íþrótt á sér stað þegar einstaklingur missir áhugann. Hér þurfa þjálfarar íþróttagreina að sýna samstöðu og vera tilbúnir að sýna þeim skilning og leiðbeina ungmennum í þá átt sem áhugi liggur.Þjálfarar og stjórnendur mega ekki móðgast eða verða ósáttir þegar að einstaklingur hættir að mæta eða vill prófa eitthvað annað. Iðkendur eru ekki okkar eign. Að því sögðu að þá snýst þetta um fjármagn eins og svo margt annað, hver og ein deild innan íþróttafélaganna þarf að berjast fyrir hverjum og einum iðkanda til þess að fjármagna starfið sitt og svo má ekki gleyma þrotlausri vinnu sjálfboðaliða.Iðkendafjöldi er það sem að skilar inn styrkjum, ef heildarfjöldi félagsins eykst að þá eykst fjármagnið með því. Er miðlægt kort innan íþróttafélaga lausnin? Ég tel að fleiri iðkendur myndi skila sér í íþróttafélögin með miðlægu greina korti þ.e að börn og ungmenni geti keypt eitt kort og átt kost á að stunda þær greinar sem íþróttafélagið hefur uppá að bjóða. Þetta er verðugt verkefni, við sem erum orðin fullorðin kjósum fjölbreytni, af hverju ættu ungmenni að kjósa eitthvað annað? Markmiðið ætti alltaf að vera að halda börnum og ungmennum í íþróttum eins lengi og hægt er og stuðla þannig að farsæld barna, enda vitum við að íþróttaiðkun hefur gríðarlega mikið forvarnargildi. Höfundur er framkvæmdastjóri Þíns öryggis ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilsa Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar