Bumbubað Gunnar Salvarsson skrifar 15. júní 2026 15:02 Við flytjum inn alls konar útlenda siði og ósiði til að gera okkur dagamun. Á síðustu árum hef ég af og til heyrt út undan mér talað um viðburð sem uppá ensku kallast „baby shower” sem mætti hiklaust kalla bumbubað á íslensku. Um helgina var heimili mitt baðað bleikum litum, blöðrum, fánum, kökum, drykkjum og ýmsu öðru - allt í bleiku. Tilefnið: sonur og tengdadóttir eiga von á fyrsta barni í næstu mánuði. Væntanlegt barn var baðað uppúr gjöfum og heillaóskum og það ríkti, að sögn, mikil hamingja og glaðværð meðal gesta, enda full ástæða til. Að sögn, segi ég, því mér var úthýst af eigin heimili. Bumbubað er aðeins fyrir kvenþjóðina, móður, tengdamóður, vinkonur, frænkur. Enn ein birtingarmynd jafnréttis, hugsaði ég í kaldhæðni, en viðurkenndi um leið fyrir sjálfum mér að viðburðinn var fallegur og tilefnið dásamlegt. Svo sá ég líka, áður en mér var vísað á dyr, að sonur minn spyrnti niður fæti og kvaðst fara hvergi. Vel gert! Bumbubaðið minnti mig á allar þær breytingar sem orðið hafa í heiminum á einni mannsævi, ekki endilega í stóra samhenginu, heldur fyrst og fremst í framþróun í heilbrigðismálum. Þegar ég kom í heiminn voru aðrir tímar, enginn sónar, hvað þá þrívíddarmyndir í lit af væntanlegu barni, aðeins ljósmóðir með hlustunarpípu sem hún lagði á kvið móðurinnar til að heyra hjartslátt barnsins, ekki hjartslætti. Móðir mín vissi ekki að hún gengi með tvíbura þegar hún fór til Guðrúnar ljósmóður á Rauðarárstígnum til að fæða. Þegar systir mín var fædd hnykklaði ljósmóðirin brýrnar og sagði síðan með undrunarhreim: hér er annar kollur! Sá kollur var ég. Boðflenna í lífinu sem enginn hafði gert ráð fyrir. Engin vagga beið mín. Heldur ekki neinar spjarir. „Hí, hí, hí, Gunnar engum buxum í,“ sönglaði systir mín síðar. Það bendir til þess að ekki hafi verið hlaupið strax út í búð að kaupa á boðflennuna föt. Miðað við gjafaflóðið í bumbubaðinu um helgina sýndist mér að fatnaður á ófætt stúlkubarnið væri að minnsta kosti fyrir fimmbura. Mæður eftirstríðsáranna hefðu ekki haft ímyndunarafl til að sjá fyrir sér bumbubað að bandarískum sið á Íslandi. Þær fengu gjafir á barnið eftir fæðingu, nánustu vinir og vandamenn heimsóttu sængurkonuna og kíktu á nýburann, í eintölu eða fleirtölu eftir atvikum. Pabbinn fékk líka að kíkja á krílið. Á tímum ört lækkandi fæðingartíðni er hvert nýtt barn sérstakt fagnaðarefni. Fyrir hálfri öld eða meira hefði það þótt sérkennilegt, jafnvel ólánsmerki, að ófætt barn fái gjafir, óskir, nafnatillögur og sérstaka samkomu því til heiðurs. Þá var sterk hjátrú tengd fæðingum og í minningunni mátti helst ekki gleðjast of snemma yfir nýju lífi. Ungbarnadauði var algengari þá en nú og fólk hafði því lært af reynslunni að taka engu sem gefnu fyrr en eftir fæðingu. Í dag fæðast blessunarlega langflest börn heilbrigð. Bumbubaðið hefur breiðst út frá Bandaríkjunum til fjölmargra landa á tiltölulega fáum árum. Þó eru enn mörg Evrópulönd þar sem bumbubað hefur ekki náð sömu fótfestu og á Norðurlöndum eða í enskumælandi löndum. Þar virðast eldri hefðir um að færa gjafir eftir fæðingu barnsins enn standa sterkar. Líkast til eru þau samfélög með sterkari minningar um ungbarnadauða og fæðingaráhættu en þjóðir eins og Norðurlöndin þar sem við leyfum okkur að gleðjast fyrirfram af því að yfirgnæfandi líkur eru á því að allt fari vel. Af er sú tíð að gjafir og heillaóskir til handa ófæddu barni þóttu óviðeigandi eða jafnvel ólánsmerki. Unga kynslóðin lítur á bumbubað sem eðlilegan og skemmtilegan þátt í undirbúningi fyrir komu barns í heiminn. Kannski er það ekki aðeins nýr siður heldur líka merki um aukið öryggi, bjartsýni og trú á framtíðina. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar