Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar 14. júní 2026 17:30 Ísland er oft talið eitt ríkasta land Evrópu. En þegar tölurnar eru skoðaðar nánar verður myndin flóknari. Samkvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er Ísland í fimmta sæti Evrópu þegar horft er til landsframleiðslu á mann, á eftir ESB-þjóðunum Lúxemborg og Írlandi, ásamt Liechtenstein og Sviss. Það er glæsilegt, - en sú tala segir aðeins hluta sögunnar. Í fyrsta lagi er atvinnuþátttaka hér með því hæsta sem þekkist og vinnustundir fleiri en hjá mörgum samanburðarþjóðum. Ungt fólk vinnur mikið með skóla, þátttaka kvenna er mjög há og margir starfa lengur fram eftir aldri. Þegar fleiri vinna og vinna lengur hækkar landsframleiðsla á mann, jafnvel þótt framleiðni á hverja vinnustund sé ekki sérstaklega há. Þessi mynd styrkist ef horft er til vinnumenningarinnar. Margir eru til taks utan hefðbundins vinnutíma og taka vinnuna með sér heim, án þess að það komi alltaf fram í mældum vinnustundum. Í mörgum Evrópuríkjum hefur umræðan um skýrari mörk milli vinnu og einkalífs gengið lengra en hér. Í öðru lagi skiptir verðlag máli. Þegar leiðrétt er fyrir því með kaupmætti færist Ísland niður listann og forskotið á aðrar auðugar þjóðir minnkar verulega. Í þriðja lagi skiptir mestu að horfa á verðmætasköpun á hverri vinnustund. Þar mælast nokkur Evrópuríki, svo sem Danmörk, Holland, Belgía, Þýskaland og Austurríki, hærra en Ísland, og í sumum mælingum einnig Svíþjóð og Frakkland. Myndin er því nokkuð skýr, - eftir því sem mælikvarðarnir verða nákvæmari, færist Ísland neðar í samanburðinum. Hluti af sterkri stöðu Íslands skýrist af miklu vinnuframlagi. Við vinnum einfaldlega meira. En þegar horft er á verðmætasköpun á hverja vinnustund kemur í ljós að aðrar þjóðir ná oft betri árangri á styttri tíma. Það skiptir líka máli að íslenskt hagkerfi nýtur stuðnings frá fáum en mjög afkastamiklum náttúruauðlindatengdum atvinnugreinum í sjávarútvegi og orkufrekum iðnaði, sem margar aðrar þjóðir hafa ekki í sama mæli. Þær hækka heildartölurnar, en segja ekki alla söguna um framleiðni í breiðari hluta atvinnulífsins á Íslandi. Ef horft væri sérstaklega á framleiðni í breiðari hluta hagkerfisins, án áhrifa þessara greina, bendir margt til þess að Ísland færðist nær þeim Evrópuríkjum sem við teljum okkur almennt standa töluvert framar, frekar en þeim ríkjum sem skipa efstu sætin. Það er ekki opinber OECD-röðun, heldur varfærin ályktun af sundurliðun atvinnugreina. Þetta er ekki ný áskorun. McKinsey benti á það þegar árið 2012 að samspil hás fjármagnskostnaðar, takmarkaðrar fjárfestingar og hægari framleiðniaukningar gæti myndað vítahring. Sú ábending á enn við í dag, - stöðugleiki og fjárfesting skipta sköpumef auka á framleiðni til lengri tíma. Lægri fjármagnskostnaður leiðir ekki sjálfkrafa til meiri framleiðni, en hann auðveldar fyrirtækjum að fjárfesta í tækni, búnaði, nýsköpun og skipulagi sem getur aukið verðmætasköpun á hverja unna vinnustund. Þetta er ekki áfellisdómur. Þvert á móti eru hér augljósir styrkleikar: mikil atvinnuþátttaka, vinnuvilji og öflugar útflutningsgreinar. En ef markmið okkar er að auka framleiðni og lífskjör til lengri tíma þarf að skoða framtíðarleiðir Íslands af yfirvegun. Þá skiptir máli að meta hvaða áhrif mismunandi form alþjóðasamvinnu gætu haft á stöðugleika, fjárfestingar og verðmætasköpun áður en valkostum er hafnað. Kannski er stærsti styrkleiki Íslands ekki hversu ríkt landið er, heldur hversu duglegt fólk er. En það er ekki endilega merki um auðugt hagkerfi að fólk þurfi að vinna mikið til að hafa það gott. Við aukum ekki lífsgæði til lengdar með því að vinna meira en aðrir, heldur með því að fá meira út úr hverri vinnustund. Höfundur er viðskiptafræðingur. Heimildir: Stjórnarráð Íslands; Já eða nei?; Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, World Economic Outlook Database, apríl 2026; OECD, gögn um landsframleiðslu, kaupmátt, vinnustundir og framleiðni vinnuafls; Eurostat, vinnumarkaðstölur; Eurofound, gögn um vinnumenningu og right to disconnect; Hagstofa Íslands, þjóðhagsreikningar; McKinsey & Company, Charting a Growth Path for Iceland, 2012. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar