Lá við árekstri flugvélar og „kústa“ vegna gleymsku flugumferðarstjóra Kjartan Kjartansson skrifar 15. janúar 2026 15:40 Snjóruðningstækið sem var næstum því ekið í veg fyrir fraktflugvél á Keflavíkurflugvelli í desember 2024. RNSA Minnstu mátti muna að hópur snjóruðningstækja æki í veg fyrir fraktflugvél í flugtaki á Keflavíkurflugvelli fyrir rúmu ári. Flugumferðarstjóri hleypti tækjunum inn á flugbrautina því hann hafði gleymt flugvélinni.
Atvikið átti sér stað á Keflavíkurflugvelli að kvöldi 2. desember árið 2024. Flugumferðarstjóri gaf þá fraktflugvél á vegum Icelandair heimild til flugtaks en gaf hópi snjóruðningstækja leyfi til að þvera flugbrautina skömmu seinna. Ökumaður fremsta snjóruðningstækisins tók eftir flugvélinni á flugbrautinni og náði að stöðva það áður en hann ók inn á brautina. Þó skagaði hægri endi framtannar snjóruðningstækisins yfir hliðarlínu flugbrautarinnar. Rannsóknarnefnd samgönguslysa, sem rannsakaði uppákomuna sem alvarlegt flugatvik, áætlar að minnsta fjarlægð á milli vænglings á enda vængs flugvélarinnar og stýrishúss snjóruðningstækisins hafi verið fimm metrar. Var búinn að taka upplýsingar um vélina úr vinnuborði sínu Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar að flugumferðarstjórinn hefði ekki fylgt verklagi þegar hann gaf fraktvélinni leyfi til flugtaks. Hann hefði skráð niður flugtakstíma á ræmu í vinnuborði, sem flugumferðarstjórar nota til þess að halda utan um ferðir faratækja um völlinn, áður en vélin var komin á flugbrautina. Hann hefði síðan tekið ræmuna úr vinnuborðinu og byrjað að undirbúa sig fyrir fund síðar um nóttina. Þegar forystusauður sameykis snjóruðingstækjanna bað um leyfi til að þvera flugbrautina sá flugumferðarstjórinn enga ræmu fyrir fraktvélina og gaf honum leyfi. Flugumferðarstjórinn sagði rannsóknarnefndinni að hann hefði hleypt snjóruðningstækjunum inn á brautina því hann hefði verið búinn að gleyma að flugvélin væri að taka á loft þar. Í tillögum sínum í öryggisátt setti rannsóknarnefndin mikilvæga ábendingu um mikilvægi þess að flugumferðarstjórar fyrir verklagsreglum. „Kústar, afsakið þetta“ Eftir að flugumferðarstjórinn áttaði sig á mistökum sínum gaf hann engar viðvaranir um að það stefndi í árekstur, hvorki til flugmanna fraktvélarinnar né ökumanna sameykisins. „Kústar, afsakið þetta,“ sagði flugumferðarstjórinn þegar hann hafði samband við snjóruðningstækin, sem eru kölluð kústar óformlega, eftir atvikið. Flugumferðarstjórinn sagði síðar að hann hefði ekki kallað til snjóruðningstækjanna til að afturkalla heimild þeirra inn á flugbrautina vegna þess að fremsta tækið hefði þegar verið búið að bregðast við, beygja og hin tækin hefðu verið stopp fyrir aftan það. Kyrrstæðar flugvélar við Keflavíkurflugvöll. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.Vísir/Vilhelm Rannsóknarnefndin bendir á að flugumferðarstjórinn hefði átt að afturkalla flugtaksheimild flugvélarinnar og að tilkynna flugmönnum hennar um mögulega hindrun á flugbrautinni þegar hann varð var við möguleikann á árekstri. Fékk þjálfun og talstöðvarskannar settir í kústana Flugumferðarstjórinn fékk þjálfun til þess að skerpa á viðbrögðum hans eftir atvikið og atvikið tekið fyrir í síþjálfun flugumferðarstjóra. Þá setti Isavia upp talstöðvarskanna í sjö af ellefu snjóruðningstækjum í framhaldinu. Ökumaður fremsta kústsins í atvikinu sagði að slíkur skanni hefði getað hjálpað til við að koma í veg fyrir uppákomuna þar sem hann hefði gert honum kleift að fylgjast með samskiptum flugturnsins við flugvélina.
Fréttir af flugi Samgönguslys Keflavíkurflugvöllur Suðurnesjabær Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Fleiri fréttir Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Sjá meira