Trump íhugar íhlutun í Íran Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 12. janúar 2026 07:17 Trump segir að mögulega verði þeir að grípa inn í áður en fundur með Íran fer fram. Getty/Joe Raedle Bandaríkjamenn íhuga nú afskipti af ólgunni í Íran þar sem átökin á mili stjórnvalda og mótmælenda verða sífellt blóðugri.
Mótmælin hafa nú staðið í á þriðju viku og segja mannréttindasamtök að um 500 mótmælendur hafi verið drepnir og um fimmtíu lögreglu- eða hermenn. Heimildir Breska ríkisútvarpsins herma síðan að tala látinna gæti verið mun hærri. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þegar hótað því að grípa inn í með einhverjum hætti. Trump sagði í gær að ráðamenn í Íran hafi hringt í sig og beðið um samningfund. Forsetinn segir þó vel geta farið svo að Bandaríkjaher grípi inn í áður en til slíks fundar geti komið. Írönsk stjórnvöld kalla mótmælendurna skemmdarvarga og hafa hvatt stuðningsmenn klerkastjórnarinnar til að mótmæla mótmælendunum í dag mánudag. Þá hefur ríkisstjórnin lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna þeirra her- og lögreglumanna sem fallið hafa í átökum síðustu daga gegn „Bandaríkjunum og Ísrael,“ eins og það er orðað, en klerkastjórnin kennir þeim um að kynda undir óánægjubálið í landinu.
Mótmælaalda í Íran Bandaríkin Íran Donald Trump Tengdar fréttir Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Mohammad Bagher Qalibaf, forseti íranska þingsins hefur varað við því að bandarískir hermenn og Ísrael verði skotmörk ef Bandaríkin gera árás vegna mótmæla. Mótmæli gegn klerkastjórninni hafa nú staðið yfir víða í Íran í um tvær vikur. Í það minnsta 116 eru látnir og mikill fjöldi slasaður. Þúsundir hafa verið handtekin. 11. janúar 2026 09:03 Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Starfsmenn á þremur spítölum í Íran segja að fjöldi slasaðra og látinna mótmælenda sem streyma til þeirra sé slíkur að ekki þeir hafi ekki undan og ekki gefist tími til að veita þeim lífsbjargandi aðhlynningu. Ekkert lát er á gríðarlegum mótmælum sem staðið hafa yfir í landinu vikum saman. Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin reiðubúin að hjálpa. 11. janúar 2026 00:16 Íranir mótmæltu við stjórnarráðið Íranir sem eru búsettir á Íslandi komu saman í dag og mótmæltu við stjórnarráð Íslands. Mótmælin í Íran hafa staðið frá áramótum og stigmagnast dag frá degi. 10. janúar 2026 14:48 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Mohammad Bagher Qalibaf, forseti íranska þingsins hefur varað við því að bandarískir hermenn og Ísrael verði skotmörk ef Bandaríkin gera árás vegna mótmæla. Mótmæli gegn klerkastjórninni hafa nú staðið yfir víða í Íran í um tvær vikur. Í það minnsta 116 eru látnir og mikill fjöldi slasaður. Þúsundir hafa verið handtekin. 11. janúar 2026 09:03
Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Starfsmenn á þremur spítölum í Íran segja að fjöldi slasaðra og látinna mótmælenda sem streyma til þeirra sé slíkur að ekki þeir hafi ekki undan og ekki gefist tími til að veita þeim lífsbjargandi aðhlynningu. Ekkert lát er á gríðarlegum mótmælum sem staðið hafa yfir í landinu vikum saman. Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin reiðubúin að hjálpa. 11. janúar 2026 00:16
Íranir mótmæltu við stjórnarráðið Íranir sem eru búsettir á Íslandi komu saman í dag og mótmæltu við stjórnarráð Íslands. Mótmælin í Íran hafa staðið frá áramótum og stigmagnast dag frá degi. 10. janúar 2026 14:48