Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Árni Sæberg skrifar 6. janúar 2026 13:09 Sigríður Margrét tekur við af Grími. Bláa lónið Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Bláa lónsins hf. frá 16. mars næst komandi. Hún hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Grímur Sæmundsen, sem verið hefur forstjóri Bláa lónsins frá stofnun þess 1992 lætur þá af störfum en tekur sæti í stjórn félagsins á næsta aðalfundi. „
Við bjóðum Sigríði Margréti velkomna til starfa. Ég tel þetta réttan tímapunkt fyrir félagið að ég stígi nú til hliðar sem forstjóri og feli öðrum að takast á við þær áskoranir og tækifæri sem eru fram undan og hlakka mjög til samstarfsins við Sigríði Margréti,“ er haft eftir Grími í fréttatilkynningu þess efnis. Frábært tækifæri „Ég tel það frábært tækifæri að fá að leiða starfsemi Bláa lónsins í samvinnu við stjórn félagsins og þann góða hóp sem starfar hjá félaginu, þau hafa byggt upp fyrirtæki sem er einstakt á heimsvísu. Ég sé ótal tækifæri í starfsemi félagsins og í íslenskri ferðaþjónustu sem verður mjög áhugavert og gaman að fá að takast á við á næstu árum,“ er haft eftir Sigríði Margréti. Í fréttatilkynningunni segir að um 800 starfsmenn starfi hjá Bláa lóninu. Undir rekstur félagsins falli samnefndur áfangastaður og tengd starfsemi á Reykjanesi, þar á meðal hótelin Retreat og Silica. Einnig eigi og reki félagið Highland base í Kerlingarfjöllum og sé að byggja upp baðstað, hótel og alhliða ferðaþjónustu í Þjórsárdal auk þess að undirbúa uppbyggingu á Hoffelli í Hornafirði. Þá eigi félagið hlutdeild í baðstöðunum Fontana við Laugarvatn, Jarðböðunum við Mývatn, Sjóböðunum á Húsavík og Vök á Egilsstöðum. Einnig hafi félagið á starfstíma sínum þróað og byggt upp húðvörufyrirtækið Blue lagoon skincare ehf., sem taki nú fyrstu skrefin í alþjóðlegum vexti á þeim vettvangi.
Bláa lónið Ferðaþjónusta Vistaskipti Atvinnurekendur Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira