KR bætir við sig Letta Valur Páll Eiríksson skrifar 2. janúar 2026 13:46 Leimanis (t.h.) er nýr leikmaður KR og verður annar Lettinn á mála hjá félaginu. Borja B. Hojas/Getty Images KR hefur samið við lettneska landsliðsmanninn Toms Leimanis um að spila með liðinu í Bónus deild karla. Kvennaliði félagsins barst einnig liðsstyrkur fyrir nýja árið.
Leimanis er 31 árs bakvörður og er 190 sentímetrar að hæð. Hann hefur leikið tólf landsleiki fyrir Letta og var í hópi liðsins í síðasta landsliðsglugga í nóvember. Hann kemur til KR frá liði VEF í Ríga sem spilar í sameiginlegri körfuboltadeild Lettlands og Eistlands. Leimanis hefur farið víða við á ferlinum og spilað í grannríkjunum Eistlandi og Litáen, auk Grikklands, Spánar, Úkraínu, Belarús og Mexíkó. Toms hittir annan Letta hjá KR, Linards Jaunzems, sem hefur verið lykilmaður frá því hann gekk í raðir Vesturbæinga haustið 2024. „Virkilega spenntur að fá Toms inn í liðið okkar. Hann hefur spilað á góðu leveli og átt góðan feril í Evrópu þar sem mjög gott orð af honum kemur frá fyrrum þjálfurum hans. Hann kemur með gæði, reynslu og leiðtogahæfni í liðið sem mun nýtast okkur vel,“ er haft eftir Jakobi Erni Sigurðarsyni, þjálfara karlaliðs KR, í yfirlýsingu félagsins. Fyrrum leikmaður Vals til kvennaliðsins Leimanis er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir KR á nýju ári. Í gær var tilkynnt um komu hinnar bandarísk-frönsku Jiselle Thomas í raðir kvennaliðs félagsins. Jiselle Thomas spilaði fyrir Val í fyrra en er nú komin til KR.vísir/Anton Jiselle kemur til KR frá Celta Zorka í B-deild Spánar en hún lék með Val í Bónus-deild kvenna í fyrra. Hjá Val skoraði hún 17 stig að meðaltali í leik, tók fimm fráköst og gaf fimmstoðsendingar að meðaltali. Hún er 26 ára gamall bakvörður. „Jiselle er fjölhæfur vængbakvörður sem er gríðarlega góð viðbót inn í okkar hóp. Hún kemur til með að styrkja okkar breidd fyrir seinni hluta tímabilsins. Hún hefur reynslu af deildinni sem er alltaf plús og við hlökkum til að vinna með henni eftir áramót,“ segir Daníel Andri Halldórsson, þjálfari kvennaliðs KR, um liðsstyrkinn.
KR Bónus-deild karla Bónus-deild kvenna Körfubolti Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira