Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Jón Þór Stefánsson skrifar 27. desember 2025 21:29 „Upp á hól stend ég og kanna,“ segir í einni útgáfu jólalagsins Jólasveinar ganga um gólf. Vísir/Vilhelm Á hverju ári endurtekur sig sama einkennilega atburðarásin þegar fullorðið fólk um allan heim virðist sammælast um einhverja mestu blekkingarsögu mannkynssögunnar: þeirri um jólasveininn.
En hvað ef sagan er í raun miklu dýpri og skuggalegri en rauði búningurinn gefur til kynna? Og hvað ef það, að við teljum okkur „vita“ að hann sé ekki til, er í raun hið eina sanna samsæri? Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið er dregin upp mynd af íslensku jólasveinunum sem skipulögðum glæpahring þar sem Grýla situr í miðjunni sem æðsti mafíubossinn. „Við höfum vanmetið getu fólks til þess að samræmast um stóra lygi,“ segir Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálasálfræði, í þættinum. Hún og Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, kafa ofan í baksvið jólanna þar sem þau velta því fyrir sér hvort þessi ástsæla fígúra sé afsprengi pólitískra ránsferða, þjóðtrúar eða jafnvel skipulagðrar glæpastarfsemi. Líkamsleifum rænt til að búa til dýrling Saga jólasveinsins byrjar ekki á Norðurpólnum heldur í Tyrklandi á 4. öld með Nikulási frá Mýru. Áhugaverður vinkill í þættinum er frásögnin af því hvernig ítalskir sjómenn rændu beinum Nikulásar árið 1087 og fluttu þau til Bari til að „bjarga“ þeim undan vaxandi áhrifum múslima á svæðinu. Þessi ránsfengur tryggði að sagan um Nikulás dreifðist um alla Evrópu og varð að þeirri goðsögn sem við þekkjum í dag. Í þættinum er rakið hvernig ólíkar menningarþjóðir mótuðu sveininn: Father Christmas var upphaflega holdgervingur munaðar og víns í Englandi, tákn fyrir „Merry England“ og andstaða við meinlætalíf púrítana. Joulupukki í Finnlandi var upphaflega „jólageit“, ógnandi vera sem gekk á milli bæja og krafðist matar, fremur en að gefa gjafir. Santa Claus, bandaríska útgáfa jólasveinsins, varð til á 19. öld þar sem sleðinn, hreindýrin og rauði búningurinn voru fest í sessi sem alþjóðlegt vörumerki og uppeldistæki. Grýla „feminískasti karakter bókmenntasögunnar“? Þegar kemur að Íslandi breytist tónninn. Hulda og Eiríkur benda á að íslensku jólasveinarnir hafi upphaflega ekki haft neinn áhuga á að gefa börnum gjafir, heldur voru þeir tröllvaxnir þjófar sem stálu mat barnanna. „Þetta er eins og glæpasamtök sem sérhæfa sig í fæðuþjófnaði,“ segir Hulda og líkir þeim við mafíufjölskyldu, „la famiglia“. Eiríkur veltir því jafnframt fyrir sér hvort Grýla sé í raun ein magnaðasta persóna bókmenntasögunnar og jafnvel sú feminískasta, enda er hún heilinn í allri operasjóninni og Leppalúði lítið annað en „bölvaður auli“ undir hennar hæl. Gáttaþefur mætti á staðinn Þátturinn tók óvænta stefnu þegar sjálfur Gáttaþefur ruddist inn í stúdíóið til að mótmæla því að tilvist hans væri dregin í efa. „Þið skulið ekkert vera að ljúga því að ég sé ekki til. Ég er hérna,“ sagði hann áður en hann hvarf aftur á vit fjallanna. Niðurstaða Skuggavaldsins er því sú að hvort sem fólk trúir á jólasveininn eða telur hann vera samsæri, þá er hann óneitanlega ein áhugaverðasta saga vestrænnar menningar.
Skuggavaldið Jól Mest lesið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira