Fljótagöng sett í forgang Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. desember 2025 10:30 Fjármálaráðherra, forsætisráðherra og innviðaráðherra á blaðamannafundi þar sem samgönguáætlun var kynnt. Stjórnarráðið Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán verða sett í forgang í nýrri jarðgangaáætlun sem kynnt verður í dag á fundi innviðaráðherra þar sem hann kynnir samgönguáætlun fyrir 2026 til 2040. Undirbúningur við næstu jarðgöng hefst 2026 og verður byrjað að bora 2027. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnir samgönguáætlunina á blaðamannafundi sem hefst núna klukkan 10:30. Má fylgjast með honum í beinni á Vísi. Stofna nýtt innviðafélag Ríkisstjórnin kynnir samhliða samgönguáætluninni stofnun innviðafélags um stærri samgönguframkvæmdir. Ný samgönguáætlun er kynnt undir yfirskriftinni „Ræsum vélarnar“ og hefur samkvæmt tilkynningu það að meginmarkmiði að laga vegi, hefja stórframkvæmdir og byrja aftur að bora jarðgöng á Íslandi. „Til þess að gera þessi markmið að veruleika hefur ríkisstjórnin tekið ákvarðanir sem varða meðal annars fjármögnun og forgangsröðun verkefna. Þá er samkomulag í höfn um stofnun innviðafélags til að flýta stærri samgönguframkvæmdum.“ Segir að hlutverk innviðafélags verði að hraða fjárfestingum í þjóðhagslega mikilvægum samgöngumannvirkjum, meðal annars jarðgöngum en stefnt er að því að undirbúningur við næstu jarðgöng hefjist á næsta ári og að byrjað verði að bora 2027. Félagið verði að fullu í eigu ríkisins og frumvarp um stofnun þess verði lagt fram á vorþingi. „Það er mikið ánægjuefni að kynna á sama tíma metnaðarfulla samgönguáætlun og stofnun innviðafélags. Samgönguáætlun er kjarninn í stefnumótun og fjármögnun í samgöngum. Innviðafélag bætir við nýrri vídd og veitir tækifæri til að ráðast í stór samgönguverkefni, einkum á landsbyggðinni, en annað félag var stofnað um uppbyggingu á samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Eyjólfur í tilkynningu. „Nú getum við brett upp ermar, ræst vélarnar, byggt brýr, lagað vegi og borað göng. Við leggjum ríka áherslu á að vinna á viðhaldsskuld í vegakerfinu. Það verkefni hófst af krafti í sumar en nú hækkum við framlög til viðhalds verulega. Vegakerfið er ein stærsta eign íslenska ríkisins og mikilvægt er að viðhalda þeim verðmætum.“ Forgangsröð jarðganga 1 – Fljótagöng (5,2 km) – Efst í forgangslista vegna sérstaklega hættulegrar náttúruvár. Tengir Siglufjörð og Fljótin og leysa Strákagöng af hólmi. 2-3 – Fjarðagöng (5,4 km + 7 km) – Tvenn göng frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar (5,4 km) og frá Mjóafirði til Norðfjarðar (7 km). Rýfur vetrareinangrun Seyðisfjarðar og eflir samfélag á Austurlandi. 2-3 – Súðavíkurgöng (nokkrir valkostir) – Tengir Súðavík og Ísafjörð og leysir af hólmi leið með grjóthrun og snjóflóðahættu. 4 – Miklidalur og Hálfdán (nokkrir valkostir) – Tengir þrjá byggðakjarna Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal. Eftirtalin jarðgöng eða svæði eru áfram til nánari skoðunar: Fjarðarheiðargöng, Hvalfjarðargöng II, göng milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur, Breiðadalsleggur (breikkun), Klettsháls, Gemlufallsheiði, Öxnadalsheiði, Reynisfjall, Lónsheiði, Hellisheiði, Berufjarðargöng og Breiðdalsheiðargöng. Framlög í viðhald vega hækki um helming Í nýrri samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnir í dag er lögð áhersla á kraftmiklar og arðsamar framkvæmdir um land allt sem efla umferðaröryggi, greiða fyrir umferð, stytta tengingar milli byggða og atvinnusvæða og bæta lífsgæði íbúa. Unnið verði að mikilvægum framkvæmdum á innanlandsflugvöllum og við hafnir landsins og áfram er stutt við almenningssamgöngur. Segir í tilkynningunni að einnig verði stefnt að því að tryggja farnetssamband á stofnvegum og helstu tengivegum. Loks er kynnt ný jarðgangaáætlun en þar eru Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán sett í forgang. Þá segir ennfremur í tilkynningunni að framlög til viðhalds vega muni stóraukast í nýrri samgönguáætlun. Síðustu ár hafi framlög verið um 12-13 milljarðar króna á ári en hækki í 17,5 milljarða árið 2026 og 20 milljarðaá ári frá og með 2027. Þetta jafngildi helmingshækkun til viðhalds vega og með því sé uppsöfnun innviðaskuldar í vegakerfinu stöðvuð. Ríkisstjórn samþykkti í sumar að leggja þrjár milljarða til viðbótar í viðhald vega á landsbyggðinni árið 2025 sem jafngilti 25% aukningu. Framkvæmdir hafi þegar skilað miklum árangri. Útrýma áfram einbreiðum brúm Þessu til viðbótar verði vetrarþjónusta á vegum fjármögnuð til að geta veitt nauðsynlega þjónustu hverju sinni. Fjárveiting til vetrarþjónustu á fyrsta tímabili áætlunarinnar verði aukin um tæpa 14 milljarða kr. frá tillögu að samgönguáætlun haustið 2023. „Öryggi í samgönguinnviðum er mikilvægasta markmið hverrar samgönguáætlunar.Áfram verður unnið að því markmiði að útrýma einbreiðum brúm á Hringveginum og gert er ráð fyrir að þetta markmið náist á tímabili samgönguáætlunar. Einbreiðum brúm mun raunar fækka strax um þrjár þegar brú yfir Hornafjarðarfljót opnar snemma árs 2026. Einnig er lögð mikil áhersla á verkefni þar sem akstursstefnur verða aðskildar á fjölförnum leiðum, m.a. út frá höfuðborgarsvæðinu. Loks verður haldið áfram að fækka malarvegum en með fjárveitingum á tímabili samgönguáætlunar er hægt að leggja bundið slitlag á 460 km af vegum.“ Áfram verði unnið að fjölmörgum verkefnum í takt við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Meðal helstu verkefna sáttmálans eru uppbygging innviða Borgarlínunnar, Miklubrautargöng, stokkar á Sæbraut og í Garðabæ og Reykjanesbraut milli Setbergs og Álftanesvegar. Þá munu framkvæmdir við Sundabraut hefjast á kjörtímabilinu. Samgönguáætlun sem sé fjármögnu ólíkt forverum Haft er eftir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að dagurinn í dag sé gleðidagur. Það séu stór pólitísk tíðindi að samgönguáætlun hafi verið lögð fram sem sé fjármögnuð ólíkt fyrri samgönguáætlun. „Þar sem forgangslisti jarðganga og annarra stærri framkvæmda var í raun ófjármagnaður óskalisti. Og það er viðeigandi að yfirskriftin á kynningu innviðaráðherra sé „Ræsum vélarnar“. Því við lögum vegina með stórauknu framlagi til viðhalds vega og nú byrjum við aftur að bora jarðgöng á Íslandi,“ segir Kristrún. „Við erum að stíga mikilvægt skref með þessum áformum. Sérstakt innviðafélag getur stutt við innleiðingu nýrra og hagfelldari leiða, bæði í fjármögnun og stjórnun stærri framkvæmda. Ef vel tekst til getur það líka orðið til þess að flýta uppbyggingu í samgöngum,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. „Forsenda árangurs er öguð vinnubrögð þegar kemur að fjármögnun, skipulagningu og verkefnastjórnun. Innviðafélagið verður sjálfstætt og mun aðeins taka að sér framkvæmdir að tilteknum skilyrðum uppfylltum, t.d. varðandi stærð verkefna og eiginfjárframlag eða aðra tryggingu.“ Fyrsta verkefni félagsins verði Ölfusárbrú Segir í tilkynningunni að ríkisstjórnin hefur samþykkt að stofna innviðafélag til að flýta stærri samgönguframkvæmdum og tryggja fyrirsjáanleika í fjármögnun þeirra til lengri tíma. Þetta samkomulag er afrakstur greiningarvinnu sem hefur farið fram á vegum þriggja ráðuneyta síðustu mánuði – forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og innviðaráðuneytis. Frumvarp um stofnun innviðafélags verður lagt fram á vorþingi. Innviðafélagið verður sjálfstætt félag og verður að fullu í eigu ríkisins. Félagið mun geta tekið að sér fjármögnun og eignarhald samgöngumannvirkja á grundvelli samnings við stjórnvöld. Þannig er stefnt að því að tryggja samfellu og aukinn fyrirsjáanleika í útgjöldum ríkisins til stærri samgönguframkvæmda, svo sem til jarðgangagerðar. Stoðir í fjármögnun félagsins verða meðal annars árlegt eiginfjárframlag samkvæmt samningi við ríkið, gjaldtaka af samgöngumannvirkjum í eigu félagsins og lánsfjármögnun með ríkisábyrgð með endurlánum. Einnig getur komið til fjárfesting lífeyrissjóða eða annarra fjárfesta. Stefnt er að því að félagið geti tekið við tilteknum samgönguinnviðum sem þegar eru til staðar eða í byggingu. Ráðgert er að fyrstu verkefni félagsins verði Ölfusárbrú, Sundabraut, Fljótagöng og næstu jarðgöng samkvæmt samgönguáætlun. Erfið ákvörðun Með samgönguáætlun sé sett fram áætlun um uppbyggingu jarðganga með áherslu á öryggi og arðsemi. Sett er fram ný forgangsröðun með fjórum verkefnum, alls sex jarðgöngum, en ellefu aðrir jarðgangakostir verða áfram til nánari skoðunar. Stefnt er að því að undirbúningur vegna næstu jarðganga hefjist á árinu 2026 og framkvæmdir hefjist í upphafi árs 2027. Jarðgöng eru víða eina leiðin til að tryggja góðar heilsársvegasamgöngur milli byggða. Jarðgöng auka umferðaröryggi, stytta ferðatíma, efla atvinnusvæði og styrkja byggðaþróun. Samkvæmt nýrri samanburðargreiningu (RHA) á jarðgangakostum á Austurlandi er samfélagslegur ábati Fjarðaganga umtalsvert meiri en Fjarðarheiðaganga. Það helgast fyrst og fremst af styttingu ferðatíma milli byggðarlaga á svæðinu. Eftir sem áður munu Fjarðagöng rjúfa vetrareinangrun Seyðisfjarðar og í leiðinni opna inn í Mjóafjörð. Af þeim sökum er lagt til í tillögu að samgönguáætlun að rannsóknum og undirbúningi Fjarðaganga verði hraðað eins og kostur er og framkvæmdum við Fjarðarheiðargöng frestað. Helstu kostir Fjarðaganga Rýfur vetrareinangrun Seyðisfjarðar. Tengja Seyðisfjörð við Mjóafjörð og Norðfjörð. Opnar Mjóafjörð fyrir heilsárssamgöngum. Ferðatími milli helstu byggðarlaga á Austurlandi styttast til mikilla muna Styttir ferðatíma til að sækja heilbrigðisþjónustu á héraðssjúkrahúsið í Neskaupstað. Hringtenging eflir samfélagið á Mið-Austurlandi. „Þetta var erfið ákvörðun en hér er einnig um mikla þjóðhagslega hagsmuni er að ræða. Við verðum að horfast í augu við það að samfélagslegur ábati af Fjarðagöngum er talinn talsvert meiri í heildina fyrir samfélagið á Austurlandi. Af þessum sökum var ekki talið fjárhagslega forsvaranlegt að byrja á Fjarðarheiðargöngum. Þau eru á hinn bóginn enn á skoðunarlista,“ segir Eyjólfur Ármannsson.
Forgangsröð jarðganga 1 – Fljótagöng (5,2 km) – Efst í forgangslista vegna sérstaklega hættulegrar náttúruvár. Tengir Siglufjörð og Fljótin og leysa Strákagöng af hólmi. 2-3 – Fjarðagöng (5,4 km + 7 km) – Tvenn göng frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar (5,4 km) og frá Mjóafirði til Norðfjarðar (7 km). Rýfur vetrareinangrun Seyðisfjarðar og eflir samfélag á Austurlandi. 2-3 – Súðavíkurgöng (nokkrir valkostir) – Tengir Súðavík og Ísafjörð og leysir af hólmi leið með grjóthrun og snjóflóðahættu. 4 – Miklidalur og Hálfdán (nokkrir valkostir) – Tengir þrjá byggðakjarna Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal. Eftirtalin jarðgöng eða svæði eru áfram til nánari skoðunar: Fjarðarheiðargöng, Hvalfjarðargöng II, göng milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur, Breiðadalsleggur (breikkun), Klettsháls, Gemlufallsheiði, Öxnadalsheiði, Reynisfjall, Lónsheiði, Hellisheiði, Berufjarðargöng og Breiðdalsheiðargöng.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Jarðgöng á Íslandi Samgöngur Vegagerð Byggðamál Skagafjörður Fjallabyggð Ný Ölfusárbrú Múlaþing Fjarðabyggð Árborg Súðavíkurhreppur Vesturbyggð Samgönguáætlun Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira