Breytingar á Kristnesi: Þyngir róðurinn sem sé nú þegar verulega þungur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. desember 2025 11:16 Þeir sem þurfa endurhæfingu alla vikuna verða fluttir á bráðalegudeild. vísir/auðunn Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri lýsa yfir verulegum áhyggjum þar sem loka á sjö daga plássi á Kristnesspítala um áramótin. Helmingi plássa hefur þegar verið lokað og finnur starfsfólkið strax fyrir gríðarlegu álagi, sem kemur aðeins til með að aukast. Þau biðla til stjórnvalda að stíga inn í þar sem hagsmunir almennings séu í húfi.
Í opnu bréfi starfsfólksins sem birtist á Kaffið.is segir að á Kristnesspítala sé eina deildin sem sinni sérhæfðri endurhæfingu fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Á Kristnesspítala fer fram endurhæfing og öldunarlækningar Sjúkrahússins á Akureyri. Nú þegar hefur helmingi plássa verið lokað og finnur starfsfólkið strax fyrir auknu álagi. Starfsfólkið myndi halda áfram að sinna endurhæfingu þeirra sem geta þegið hana fimm daga vikunnar og farið heim um helgar. Allir sem þarfnist sérhæfðrar endurhæfingar og komist ekki heim um helgar fái pláss á bráðalegudeild Sjúkrahússins á Akureyri. „Hætt er við því að þetta rýri gæði endurhæfingar þeirra sem eru í brýnni þörf fyrir sérhæfða endurhæfingu og að hún verði ómarkvissari. Það er okkar mat að fullnægjandi endurhæfing geti ekki átt sér stað inni á bráðalegudeild,“ segir í bréfinu sem stílað er til stjórnvalda. Nú þegar er erfið staða á Sjúkrahúsinu, þrír læknar hafa sagt upp störfum vegna álags og átti því enginn lyflæknir að vera á vakt eftir 22. desember. Dæmi eru um að fólk sé á bakvakt í sautján sólarhringa samfleytt. Alma Möller, heilbrigðisráðherra, fór norður til að ræða við forsvarsmenn þar sem staðan var rædd. Meðal skammtímaúrlausna var samvinna Landspítalans og Sjúkrahússins til að leysa mönnun og að nýta mætti kjarasamninga til að umbuna læknum þar sérstaklega. Hagsmunir almennings í húfi „Það er með öllu ljóst að þetta mun þyngja verulega róðurinn á lyflækningadeildinni, sem nú þegar er verulega þungur vegna fráflæðisvanda og álags. Í lengri tíma hefur starfsfólk deildarinnar viðrað áhyggjur sínar hvað þetta varðar. Unnið hefur verið að aukningu á mannafla og hagræðingu í starfi með tilliti til þessa og því skýtur þessi ákvörðun skökku við,“ segir í opna bréfinu. Ef endurhæfingin fer fram á bráðalegudeild muni það einungis auka fráflæðisvandann og skerða lífsgæði þeirra sem fá ekki fullnægjandi endurhæfingu. Öryggi bráðveikra sjúklinga gæti verið ógnað ef farið yrði í að útskrifa þá of snemma vegna plássleysis. „Við finnum nú þegar fyrir mikilli óánægju sjúklinga og aðstandenda.“ Nú þegar séu inniliggjandi sjúklingar sem komist hvorki í sérhæft úrræði á Kristnesi né í Reykjavík. Þeir séu þó í brýnni þörf fyrir endurhæfingu, sem starfsfólk lyflækningadeildarinnar hafi oft á tíðum ekki tök á að sinna á fullnægjandi hátt vegna anna. „Við höfum því áhyggjur af því hvaða áhrif lokunin mun hafa á þennan sjúklingahóp sem og starfsfólk deildarinnar. Það hefur mikil áhrif á líðan starfsfólks og eykur streitu þegar við höfum ekki tíma til að sinna starfinu nógu vel og endurhæfing mætir því miður afgangi þegar þarf að forgangsraða verkefnum á bráðlegudeildum, en þetta þekkjum við af eigin reynslu.“ Þar sem að ekki hefði verið rætt við aðrar stofnanir áður en tilkynnt var um lokunina þar sem koma þarf sjúklingunum fyrir í öðrum úrræðum fyrir áramót. Starfsfólkið óskar eftir því að stjórnvöld afstýri ákvörðuninni þar sem hagsmunir almennings séu í húfi.
Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri Heilbrigðismál Eldri borgarar Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira