Stelpurnar okkar skelltu sér í sjóinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2025 14:03 Íslensku stelpurnar æfðu og liðkuðu sig eftir ferðalagið suður til Portúgal en skelltu sér líka í sjóinn. @kkikarfa Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er komið alla leið til Portúgal þar sem liðið mætir heimastúlkum annað kvöld í undankeppni Evrópumótsins.
Íslenska liðið tapaði á móti Serbíu í fyrsta leik sínum í undankeppninni í síðustu viku og það gerðu einnig Portúgalar um helgina. Ísland tapaði með 25 stigum á heimavelli á móti Serbum en Portúgalar töpuðu með 26 stigum á útivelli. Það má því búast við mjög jöfnum leik milli þessara liða. Það er einnig ljóst að fyrsti sigurinn í þessari keppni er í boði fyrir bæði liðin. Leikurinn fer fram í höllinni Pavilhão Municipal Luís de Carvalho í borginni Barreiro sem er hafnarborg hinum megin við sundið á móti Lissabon. Íslensku landsliðskonrunar i sjónum í Portúgal.@kkikarfa Stelpurnar hafa undirbúið sig fyrir leikinn um helgina og á samfélagsmiðlum KKÍ mátti sjá að þær skelltu sér í sjóinn eftir æfingu. Það er líka gleðiefni fyrir liðið að Thelma Dís Ágústsdóttir er orðin góð af bakmeiðslunum og verður með í leiknum annað kvöld en hún missti af leiknum á Ásvöllum. „Jú það var svolítið erfitt að sitja á bekknum, sérstaklega í nýrri keppni með nýjan þjálfara. En ég hugsa samt að það hafi alveg verið rétt ákvörðun, mér líður allavega miklu betur og verð klár á þriðjudaginn,“ sagði Thelma við karfan.is. View this post on Instagram A post shared by Körfuknattleikssamband Íslands (@kkikarfa)
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Sjá meira