
Landslið kvenna í körfubolta

18 ára landslið Íslands með nauman sigur á Svíum
Íslenska 18 ára landslið kvenna í körfubolta sigraði í kvöld sænska 18 ára landsliðið 87-86. Þetta gerðu þær í u18 ára Norræna meistaramótinu. Með þessum sigri er Ísland búið að vinna fyrstu þrjá leikina sína í mótinu.

Þrír aðstoða Pekka með landsliðið
Í kjölfar þess að Finninn Pekka Salminen var á dögunum ráðinn nýr þjálfari A-landsliðs kvenna í körfubolta, til næstu fjögurra ára, hafa þrír öflugir Íslendingar verið ráðnir til að aðstoða hann.

Eldmóður í nýjum þjálfara: „Meira en spenntur“
Pekka Salminen var í dag ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta til næstu fjögurra ára. Finninn reynslumikli er afar spenntur fyrir starfinu.

Pekka Salminen nýr landsliðsþjálfari
Finninn Pekka Salminen hefur verið ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við KKÍ.

Sjáðu nýjan þjálfara Íslands kynna sig
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KKÍ þar sem nýr þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta var kynntur.

Hvorki sjálfbært né íslenskum körfubolta til bóta
Nýr formaður Körfuknattleikssambands Íslands segir framtíðina bjarta í greininni. Hann vonast til að finna langtíma lausn varðandi erlenda leikmenn hér á landi.

Benedikt hættur með kvennalandsliðið
Eftir sex ár í starfi er Benedikt Guðmundsson hættur sem þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta.

Umfjöllun: Slóvakía - Ísland 78-55 | Ekki góður endir á undankeppninni
Ísland tapaði 78-55 gegn Slóvakíu ytra í síðasta leiknum í undankeppni EM. Stelpurnar okkar byrjuðu leikinn ljómandi vel og voru þrettán stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, en létu síðan verulega undan og stórt tap varð niðurstaðan.

Uppgjör: Stelpurnar stóðu í Tyrkjum fyrir framan troðfulla höll
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta var nálægt því að ná einum óvæntustu úrslitum undankeppni Evrópumótsins þegar liðið stóð vel í toppliði Tyrkja á útivelli. Tyrkland vann leikinn á endanum með sjö stiga mun, 83-76.

Íslensku stelpurnar vinsælar í Izmit
Uppselt er á leik Tyrklands og Íslands sem fram fer í Izmit í dag og mikill áhugi á leiknum eins og íslensku stelpurnar hafa fengið að kynnast í aðdraganda hans.

Einn nýliði í landsliðinu
Benedikt Guðmundsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, hefur valið tólf leikmanna hóp fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EM 2025.

Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins
Thelma Dís Ágústsdóttir jafnaði tuttugu ára gamalt met Birnu Valgarðsdóttur í sigrinum á Rúmeníu í undankeppni Evrópumóts kvenna í körfubolta.

„Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta vann fjögurra stiga sigur gegn Rúmeníu 77-73 í undankeppni EM. Þetta var fyrsti sigur liðsins í tvö ár og Benedikt Guðmundsson, þjálfari liðsins, var ánægður eftir leik.

Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár
Ísland vann fjögurra stiga sigur gegn Rúmeníu 77-73 í undankeppni EM. Danielle Rodriguez var hetja liðsins þegar hún henti í ótrúlega fjögurra stiga sókn þegar staðan var jöfn og lítið eftir. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Þetta var óþarflega spennandi“
Ísland vann fjögurra stiga sigur gegn Rúmeníu 77-73 í undankeppni EM. Thelma Dís Ágústsdóttir fór á kostum í íslenska liðinu og var ánægð með sigurinn.

„Erum lágvaxið lið í þessum glugga og þurfum að vera villingar“
Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði gegn Slóvakíu 70-78 í undankeppni EM. Benedikt Guðmundsson, þjálfari liðsins, var svekktur með niðurstöðuna en var þó jákvæður.

Uppgjörið: Ísland - Slóvakía 70-78 | Svekkjandi tap gegn Slóvakíu
Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði gegn Slóvakíu í undankeppni EM 70-78. Leikurinn var jafn og spennandi en gestirnir sigldu fram úr í fjórða leikhluta og unnu að lokum átta stiga sigur.

Þreytir frumraun þrítug: „Beðið eftir þessu í tvö ár“
„Ég er spennt. Mjög spennt. Þetta hefur verið í vinnslu í tvö ár og þetta er eitthvað sem ég hef viljað og beðið eftir í tvö ár, svo spennan er mikil,“ segir Danielle Rodriguez sem mun þreyta frumraun sína fyrir íslenska landsliðið í undankeppni EM í körfubolta í kvöld.

„Verður sérstök stund fyrir hana“
„Núna er loksins komið að þessu,“ segir Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta, um verkefni kvöldsins gegn Slóvakíu í undankeppni EM á næsta ári. Liðið hefur beðið lengi eftir því að komast aftur saman út á völl.

Þessar taka upp þráðinn eftir eins árs bið
Benedikt Guðmundsson hefur valið fimmtán leikmenn fyrir leikina við Slóvakíu og Rúmeníu í undankeppni Evrópumóts kvenna í körfubolta. Fimm leikmenn hafa gengið úr skaftinu frá síðasta leik í keppninni.

Þrettán af sextán fengu matareitrun: „Leið eins og maður væri kominn aftur í Covid-stemninguna“
Íslenska undir 20 ára landslið kvenna í körfubolta er komið heim eftir góða ferð til Búlgaríu þar sem liðið náði sínum besta árangri í sögunni. Matareitrun setti aftur á móti svip sinn á ferðina.

Stelpurnar komust ekki upp í A-deildina
Íslenska tuttugu ára landslið kvenna í körfubolta tapaði leiknum um þriðja sætið á móti Tékklandi á EM í Búlgaríu í dag.

Matareitrun á EM: Fimm veikar í íslenska hópnum og ein fór á sjúkrahús
Búið er að aflýsa einum leik í b-deild Evrópukeppni tuttugu ára landsliða kvenna í körfubolta í Búlgaríu en margir leikmenn og starfsmenn liðanna á mótinu hafa veikst á síðustu dögum. Íslenski hópurinn slapp því miður ekki.

Íslensku stelpurnar í undanúrslit eftir stórsigur á Írum
Íslenska tuttugu ára landslið kvenna í körfubolta var í miklu stuði í dag þegar liðið vann 43 stiga sigur á Írum, 88-45, í milliriðli í B-deild Evrópumótsins. Þetta er næststærsti sigur liðsins í sögunni.

Agnes og Eva atkvæðamestar í tapi fyrir Tékkum
Íslenska tuttugu ára landslið kvenna í körfubolta tapaði með sex stigum fyrir Tékkum, 67-61, í baráttunni um sæti í undanúrslitum í b-deild Evrópumótsins.

Þrír Íslendingar í úrvalsliðum Norðurlandamótsins
Íslensku landsliðin skipuð körlum og konum undir 20 ára náðu frábærum árangri á nýafstöðu Norðurlandamóti í Svíþjóð. Karlaliðið vann gullverðlaun og kvennaliðið brons, þrír íslenskir leikmenn voru svo valdir í úrvalslið mótsins.

„Langaði að klára þetta og svo ákveða hvað ég geri næst“
Sara Rún Hinriksdóttir sneri heim til Keflavíkur úr atvinnumennsku í janúar og endaði tímabilið sem tvöfaldur meistari. Hún var valin mikilvægasti leikmaður úrslitaeinvígisins þegar Keflavík hampaði Íslandsmeistaratitlinum í gær.

Þakklæti og sorg í senn: „Búinn að móta líf mitt“
Landsliðskonan Hildur Björg Kjartansdóttir tilkynnti í gær að hún neyddist til að leggja körfuboltaskóna á hilluna vegna ítrekaðra höfuðmeiðsla. Ákvörðunin sé þungbær, en sú eina rétta í stöðunni.

Sara og Elvar áfram best á þessu ári
Sara Rún Hinriksdóttir er körfuboltakona ársins, fjórða árið í röð, og Elvar Már Friðriksson er körfuboltakarl ársins, þriðja árið í röð.

Öll landsliðin í hæstu hæðum
Landslið Íslands í körfubolta hafa hvert og eitt aldrei verið eins ofarlega á styrkleikalista, heims og Evrópu, og skiptir þá ekki máli hvort horft er til karla, kvenna eða yngri landsliða.