Körfubolti

Berg­lind næststigahæst á EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þrátt fyrir að vera að spila upp fyrir sig hefur Berglind Katla Hlynsdóttir verið meðal bestu leikmanna Evrópumóts kvenna í körfubolta U-20 ára.
Þrátt fyrir að vera að spila upp fyrir sig hefur Berglind Katla Hlynsdóttir verið meðal bestu leikmanna Evrópumóts kvenna í körfubolta U-20 ára. kkí

Hin sextán ára Berglind Katla Hlynsdóttir er næststigahæst á Evrópumóti U-20 ára liða í körfubolta sem fer fram í Litáen þessa dagana.

Berglind, sem spilar með Stjörnunni hér heima, átti stórleik þegar Ísland tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum mótsins með sigri á Ítalíu í gær, 86-79.

Hún skoraði 32 stig í leiknum auk þess að taka sex fráköst, gefa sjö stoðsendingar, stela boltanum tvisvar og verja tvö skot.

Í riðlakeppninni á EM var Berglind með 23,7 stig að meðaltali í leik. Aðeins Gal Raviv frá Ísrael skoraði fleiri stig en Berglind, eða 31,3.

Rebekka Rut Steingrímsdóttir er sjöundi stigahæsti leikmaður mótsins með sextán stig að meðaltali í leik. Sara Björk Logadóttir er svo í 14. sæti stigalistans með 12,7 stig að meðaltali í leik.

Berglind skarar fram úr í fleiri tölfræðiþáttum á EM því hún er þriðji framlagshæsti leikmaður mótsins. Í leikjunum þremur í riðlakeppninni var Berglind með 24,0 framlagsstig að meðaltali. Áðurnefnd Raviv er einnig efst á blaði þar með 32,7 framlagsstig að meðaltali í leik.

Berglind og stöllur hennar í íslenska liðinu mæta Tyrklandi í sextán liða úrslitum EM í dag. Leikurinn hefst klukkan 12:30 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×