Körfubolti

Bein út­sending: Ís­land - Tyrk­land | Fara stelpurnar okkar lengra í A-deild?

Sindri Sverrisson skrifar
Sara Björk Logadóttir skoraði átján stig í sigrinum gegn Ítalíu í gær.
Sara Björk Logadóttir skoraði átján stig í sigrinum gegn Ítalíu í gær. FIBA

Íslenska U20-landsliðið í körfubolta kvenna mætir Tyrklandi í 16-liða úrslitum í A-deild Evrópumótsins, eftir að hafa þegar unnið tvo leiki á mótinu. Beina útsendingu má sjá á Vísi.

Ísland vann frábæran 86-79 sigur gegn Ítalíu þegar riðlakeppninni lauk í gær, eftir að hafa áður unnið Serbíu í fyrsta leik en tapað fyrir Póllandi. 

Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland vinnur tvo leiki í A-deild en nú er komið að útsláttarkeppninni þar sem Ísland, sem endaði í 2. sæti síns riðils, mætir Tyrklandi sem endaði í 3. sæti í sínum riðli.

Leik Íslands og Tyrklands, sem fram fer klukkan 12:30 að íslenskum tíma, má sjá í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×