Einstök íslensk verk sem hlutu hönnunarverðlaunin Stefán Árni Pálsson skrifar 14. nóvember 2025 17:02 Hönnunarverðlaun ársins 2025 hafa verið veitt. Vala Matt kynnti sér verðlaunahafana á Íslensku hönnunarverðlaununum á dögunum. Meðal þeirra voru listasamsteypan Fischersund þar sem ilmur, tónlist og myndlist renna saman í einstakri upplifun.
Einnig mátti sjá fjallahjólið Elju sem er engu líkt og það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Þá er Elliðaársstöð orðin að gríðarlega spennandi útivistarsvæði og geta gestir fengið fræðslu í gömlu byggingunum þar. Þetta voru verkin sem fengu hönnunarverðlaunin í ár 2025. Mörg önnur spennandi verkefni voru svo tilnefnd og fengu viðurkenningar, og arkitektinn Albína Thordarson fékk sérstök heiðursverðlaun. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og kynnti sér málið. Vala ræddi við vinningshafana í Íslandi í dag á Sýn í gær en hún byrjaði á því að ræða við framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, Höllu Helgadóttur. Þróast á síðasta áratugnum „Hönnunarverðlaun Íslands voru stofnuð fyrir tólf árum síðan. Núna, þetta er tólfta skiptið sem við veitum þau og þau hafa þróast aðeins yfir árin þannig að núna erum við að veita verðlaun í þremur flokkum: Vara, staður og verk. Þar á ofan erum við með heiðursverðlaun, Hönnunarverðlaun Íslands, og svo bestu fjárfestinguna,“ sagði Halla. „Við bjuggum til þessa þrjá flokka fyrir þremur árum síðan. Og það er svolítið skemmtilegt við þá að þeir eru svona þvert á hönnunargeirana. En það eru fleiri sem fá tilnefningar og draga fram faggreinarnar samt líka betur,“ sagði hún og fóru yfir þau sem voru tilnefnd. „Þeir sem voru tilnefndir í ár, undir flokknum vara ársins, eru verkefnið sem heitir Oasis, sem eru vatnsílát sem eru hönnuð af Jóhönnu Seelemann. Það er fatalínan Fé eftir Rannveigu, þar sem íslensk ull gegnir lykilhlutverki og er mikil hátískuvara. Síðan er það Elja, sem er nýtt fjallahjól, sem er þrátt fyrir að vera fjölnotahjól og alíslenskt hjól. Í flokknum staður ársins urðu félagsbústaðir á Sjómannaskólareit. Það er nýtt hús sem er að verða rétt hjá Sjómannaskólanum. Þannig hefur það vakið athygli og jafnvel nokkrar umræður, því að þar er áhersla á sjálfbærni og umhverfismál, alveg mjög, mjög skýr. Og þau eru að ná meiri árangri heldur en svona viðmið kalla eftir. Síðan er það Elliðaárstöð, sem er nýr áfangastaður í Elliðaárdal, sem við þekkjum mörg og hefur verið í uppbyggingu undanfarin ár og er eftir Tertu. Og Stöng í Þjórsárdal. Það er endurgerð á fjölhúsakosti, sem er alveg óskaplega spennandi hvernig staðið var að því.“ Að lokum fór Halla yfir þriðja flokkinn sem er verk ársins. „Þar er Lavaforming, sem er verk eftir Arnhildi, s.ap arkitekta, Andra Fannar, Snæ og Jack Armitage, sem fjallar um framtíðarsamfélag, þar sem við erum farin að nýta hraun sem byggingarefni. Og þetta er líka sýning Íslands á Feneyjatvíæringnum, arkitektúr, og mjög svona spekúlatíft, en við segjum að einu sinni, fyrir 100 árum síðan, datt okkur ekki í hug að heita vatnið myndi renna í húsunum okkar. Dýpi er málning sem er gerð úr kalkþörungum úr Arnarfirði eftir Sirrý og Árnýju og það er náttúrulega mjög umhverfisvæn og spennandi málning. Og svo er Fischersund fyrir sitt heildarverk, sem við höfum nú bara öll, Íslendingar, tekið verulega mikið eftir undanfarin ár þar sem þau eru að vinna með skynfærin, bæði lyktina, það sjónræna og tónlist, og búa til sinn stórkostlega heim,“ segir Halla að lokum en rætt er við nokkra arkitekta sem verðlaunaðir voru fyrir sín verk í innslaginu hér að neðan.
Ísland í dag Tíska og hönnun Hönnunarverðlaun Íslands Vala Matt Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Fleiri fréttir Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Sjá meira