Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. nóvember 2025 07:30 Konan hefur sakað Khan um að hafa brotið gegn sér á ferðalögum, á skrifstofu Khan og á heimili hans. Getty/Michael M. Santiago Stjórnvöld í Katar eru sögð hafa ráðið tvö bresk fyrirtæki til að afla upplýsinga um konu sem hefur sakað Karim Khan, yfirsaksóknara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC), um kynferðisbrot.
Aðgerðin gegn konunni, þar sem gögnum var safnað um bæði hana og fjölskyldu hennar, er sögð hafa verið leidd af rannsóknarfyrirtækinu Highgate og hafa miðað að því að grafa undan trúverðugleika konunnar og staðhæfingum hennar um meint brot Khan. Frá þessu greinir Guardian. Khan hefur neitað sök og stuðningsmenn hans hafa haldið því fram að ásakanir konunnar, sem er lögmaður hjá ICC, séu þáttur í hefndaraðgerðum gegn honum, vegna ákvörðunar hans um að gefa út handtökuskipun á hendur Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael. Samkvæmt Guardian fundust engin tengsl milli konunnar og Ísrael. Miðillinn hefur eftir heimildarmönnum að Highgate hafi fundað með fulltrúum Khan. Lögmenn Khan hafa ekki neitað ásökununum en segjast ekki hafa fengið neinar upplýsingar um aðgerðir Highgate. Highgate er sagt hafa fengið annað fyrirtæki, Elicius Intelligence, til að safna upplýsingum um konuna, eiginmann hennar, barn og tengdaforeldra. Þá hafi það einnig verið fengið til að afla upplýsinga um aðra starfsmenn ICC. Í gögnum sem safnað var má meðal annars finna upplýsingar úr vegabréfi konunnar, upplýsingar um ferðalög hennar og leyniorð fyrir ýmsa aðganga á netinu. Konan segist fyrir sitt leyti vera orðin þreytt á að bíða eftir niðurstöðu rannsóknar kynferðisbrotamálsins.
Katar Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira