Stjörnurnar þökkuðu Vigdísi Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 24. október 2025 09:21 Það voru fjölmörg þekkt andlit sem létu sjá sig í bíóinu í gær. Ari Páll Karlsson smellti af myndum. Þakklæti sveif yfir vötnum í Bíó Paradís síðdegis í gær þegar myndin Takk Vigdís var frumsýnd fyrir troðfullum sal. Í myndinni ræðir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir við fyrrum samstarfsfólk Vigdísar Finnbogadóttur, vini og fjölskyldu um forsetatíð hennar og þrautargönguna að embættinu. Þá rifja fjölmargir Íslendingar upp áhrifarík augnablik sem tengjast Vigdísi.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarpaði frumsýningargesti og bað fyrir góðum kveðjum frá Vigdísi sem gat ekki verið viðstödd sýninguna vegna veikinda. Vigdís varð 95 ára fyrr á árinu en lætur enn sjá sig á menningarviðburðum þegar heilsan leyfir. Þannig var hún á meðal gesta á frumsýningu Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu á dögunum. Ástríður Magnúsdóttir, einkadóttir Vigdísar, var meðal gesta ásamt börnum sínum en dætur Ástríðar þær Aþena Vigdís og Eva María Eggertsdætur eru meðal viðmælenda í myndinni. Frumsýningargestir virtust skemmta sér stórvel og sjá mátti að efni myndarinnar hreyfði við áhorfendum. Meðal gesta voru Kristrún Frostadóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Eliza Reid, Unnstein Manuel Stefánsson, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Kjartan Ragnarsson, Ásta S. Fjeldsted, Gísli Marteinn Baldursson, Edda Hermannsdóttir, Rakel Garðarsdóttir, Birgitta Haukdal og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Þá vakti athygli að erlendir blaðamenn voru í salnum auk erlenda gesta á vegum forseta Íslands. Þær Ragnhildur Steinunn og Ragnheiður Thorsteinsson, sem standa að verkefninu, sögðu í tölu sinni að myndin væri nokkurs konar þakkaróður til Vigdísar fyrir framlag hennar til jafnréttismála og þjóðarinnar. Myndin verður sýnd á RÚV í kvöld í tilefni 50 ára afmæli kvennafrídagsins og þeim tímamótum að 45 ár eru frá kjöri Vigdísar. Að neðan má sjá myndir sem Ari Páll Karlsson tók af herlegheitunum. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir ásamt Ragnhildi Steinunni og Eddu Hermannsdóttur nýráðnum forstjóra Lyf og heilsu. Nánir vinir Vigdísar Finnbogadóttur fjölmenntu á sýninguna.Ljósmynd/Ari Páll Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, ávarpaði gesti.Ljósmynd/Ari Páll Gísli Marteinn Baldursson er hér ásamt einkadóttur Vigdísar, Ástríði Magnúsdóttur og syni hennar Elmari Þór Eggertssyni.Ljósmynd/Ari Páll Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, ásamt eiginkonu sinni Marín Magnúsdóttur, athafnakonu, og Jóni Þór Harðarsyni.Ljósmynd/Ari Páll Nína Dögg Filippusdóttir sem fór með hlutverk Vigdísar Finnboga í leiknu þáttaröðinni um Vigdísi er hér ásamt Ragnhildi Steinunni.Ljósmynd/Ari Páll Húsfylli á frumsýningu myndarinnar Takk Vigdís.Ljósmynd/Ari Páll Sigrún Ragna Ólafsdóttir er hér ásamt ævisagnaritara Vigdísar, Páli Valssyni.Ljósmynd/Ari Páll Þær Ragnhildur Steinunn og Ragnheiður Thorsteinsson buðu gesti velkomna og sögðu frá tilurð myndarinnar.Ljósmynd/Ari Páll Birna Ósk Einarsdóttir, nýráðin forstjóri Húsasmiðjunnar ásamt dóttur sinni Önnu Elísabetu.Ljósmynd/Ari Páll Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, Kjartan Ragnarsson og Ragnhildur Hjaltadóttir voru á meðal gesta.Ljósmynd/Ari Páll Ásta S. Fjeldsted og Anna Þorbjörg Jónsdóttir.Ljósmynd/Ari Páll Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, var ein af fjölmörgum frumsýningargestum.Ljósmynd/Ari Páll Ánægðir frumsýningagestir, Sandra Barilli og Gísli Marteinn Baldursson.Ljósmynd/Ari Páll Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar ásamt vinkonum sínum Birgittu Haukdal og Þóru Clausen.Ljósmynd/Ari Páll Ragnhildur Steinunn og Ragnheiður Thorsteinsson höfundar myndarinnar Takk Vigdís.Ljósmynd/Ari Páll Eliza Reid ásamt dóttur sinni Eddu.Ljósmynd/Ari Páll Dagskrárgerðakonurnar Þóra Tómasdóttir og Urður Örlygsdóttir létu sig ekki vanta.Ljósmynd/Ari Páll Áhrifavaldurinn Patrekur Jamie mætti ásamt vinkonu sinni.Ljósmynd/Ari Páll Ragnheiður Thorsteinsson ásamt sjónvarpskonunni Sigríði Halldórsdóttur.Ljósmynd/Ari Páll Gunnar Geir Vigfússon ljósmyndari, Einar S. Sigurjónsson og Vigdís Bjarnadóttir fyrrverandi deildarstjóri á skrifstofu forseta. Ljósmynd/Ari Páll Áhrifavaldarnir Sigurlaug Birna og Ólafur Jóhann.Ljósmynd/Ari Páll Unnsteinn Manuel Stefánsson faðmar hér Ragnhildi Steinunni.Ljósmynd/Ari Páll Ragnhildur Steinunn ásamt forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur.Ljósmynd/Ari Páll Kristrún Frostasdóttir ásamt dóttur sinni. Í röðinni fyrir framan situr Margrét Jónasdóttir, Birgir Sigfússon og Eva Georgs Ásudóttir dagskrárstjóri RÚVLjósmynd/Ari Páll Ásta Sigga, Tinna Hrafns, Nína Dögg og Rakel Garðarsdóttir, þær þrjár síðastnefndu komu að leiknu þáttaröðinni um Vigdísi.Ljósmynd/Ari Páll Ljóðalandsdúóið Eva María Jónsdóttir og Pétur Blöndal mættu ásamt Önnu Sigríði Arnardóttur, Nínu Dögg Filippusdóttur og Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra.Ljósmynd/Ari Páll
Samkvæmislífið Vigdís Finnbogadóttir Bíó og sjónvarp Ríkisútvarpið Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Fleiri fréttir Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Sjá meira