Keflvíkingar komu til baka í seinni hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2025 21:17 Jaka Brodnik og félagar í Keflavík tóku yfir í seinni hálfeiknum. Vísir/Hulda Margrét Álftanes var ekki eina liðið sem tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta í kvöld. KR, ÍR, Keflavík, Breiðablik, Hamar og Fjölnir fóru líka áfram.
Keflavík vann að lokum nokkuð sannfærandi 102-90 sigur á Þór úr Þorlákshöfn en gestirnir voru yfir í hálfleik, 48-40. Keflvíkingar tóku völdin í seinni hálfleik og unnu öruggan sigur. Darryl Morsell var með 28 stig og 14 fráköst, Hilmar Pétursson skoraði 22 stig og Jaka Brodnik var með 17 stig. Rafail Lanaras skoraði 28 stig fyrir Þór. KR vann sextíu stiga sigur á Fylki í Árbænum, 130-70, en enginn leikmaður Vesturbæjarliðsins skoraði þó meira en fimmtán stig í leiknum. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var stigahæstur með 15 stig og 7 stoðsendingar á sautján mínútunum og þeir Kenneth Jamar Doucet Jr, Linards Jaunzems og Lars Erik Bragason skoruðu allir fjórtán stig. ÍR vann 29 stiga sigur á 1. deildarliði Sindra á Hornafirði, 96-67. Dimitrios Klonaras skoraði fimmtán stig fyrir ÍR og þeir Björgvin Hafþór Ríkharðsson og Kristján Fannar Ingólfsson voru með fjórtán stig hvor. Jacob Falko skoraði aðeins 2 stig en gaf 8 stoðsendingar. Breiðablik vann 101-86 sigur á Skallagrími í Borgarnesi en sigur Blika var mjög öruggur. Vojtéch Novák skoraði 25 stig fyrir Breiðablik og Dino Stipcic var með 20 stig. Alexander Jan Hrafnsson var síðan með fimmtán stig. Fjölnir vann 95-79 sigur á Þór frá Akureyri. Sigvaldi Eggertsson var öflugur með 28 stig og 12 fráköst fyrir Fjölnir og Oscar Jörgensen var með 22 stig. Viktor Máni Steffensen bætti við 10 stigum en Christian Caldwell var stigahæstur hjá Þórsliðinu með 24 stig. Hamar vann að þriggja stiga sigur á Selfossi, 89-86, í æsispennandi Suðurlandsslag. Franck Kamgain skoraði 22 stig fyrir Hamarsmenn og Lúkas Aron Stefánsson var með 16 stig. Kristijan Vladovic skoraði 28 stig fyrir Selfoss og Steven Lyles var með 21 stig.
VÍS-bikarinn Keflavík ÍF KR Fjölnir Breiðablik ÍR Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira