Íslenskt hugvit verndar fólk fyrir djúpfölsun Bjarki Sigurðsson skrifar 17. október 2025 06:01 Chris Rynning er framkvæmdastjóri Umanitek. Vísir/Ívar Fannar Gervigreind sem verndar auðkenni fólks fyrir óprúttnum aðilum er prufukeyrð þessa dagana hér á landi. Íslenskt hugvit kemur í veg fyrir að andlit fólks sé nýtt í gervigreindarmyndböndum.
Svissneska fyrirtækið Umanitek og íslenska tæknifyrirtækið Videntifier vinna saman að gervigreindinni Umanitek Guardian, sem verndar auðkenni einstaklinga á netinu. Verkefnið var nýlega kynnt hér á landi og verður prufukeyrt á íslenskum markaði næstu vikur. Chris Rynning, framkvæmdastjóri Umanitek, segir gervigreind færa mannkyninu margt gott, þó það þurfi að hafa varann á. „Persónulega hef ég nokkrar áhyggjur af því að það sé ákveðin áhætta fólgin í gervigreind. Það tengist sérstaklega djúpfalsi (e. deepfakes) eða því að vita hvað er satt og hvað ekki,“ segir Chris. Strike through 𝚒̶𝚕̶𝚕̶𝚎̶𝚐̶𝚊̶𝚕̶ ̶𝚌̶𝚘̶𝚗̶𝚝̶𝚎̶𝚗̶𝚝̶,̶ ̶𝚞̶𝚗̶𝚙̶𝚛̶𝚎̶𝚍̶𝚒̶𝚌̶𝚝̶𝚊̶𝚋̶𝚕̶𝚎̶ ̶𝙰̶𝙸̶ ̶𝚊̶𝚐̶𝚎̶𝚗̶𝚝̶𝚜̶, and 𝚏̶𝚊̶𝚔̶𝚎̶ ̶𝚗̶𝚎̶𝚠̶𝚜̶.Meet the @umanitek Guardian Agent — making internet safety the standard in the age of AI. pic.twitter.com/OMuALJlQJL— umanitek (@umanitek) May 6, 2025 Fólk hleður myndum af sér inn í gervigreindina og hún býr til dulkóðun út frá einkennum manneskjunnar. Veraldarvefurinn er svo skannaður út frá þessum einkennum og fólk fær til baka lista yfir staði þar sem myndir og myndbönd af þeim gætu leynst. Sé þar efni sem fólk hafði ekki gefið leyfi fyrir, eða jafnvel verið framleitt af gervigreind, eru gefnar leiðbeiningar hvernig eigi að láta fjarlægja efnið. „Ríkjandi tíðarandi tengist djúpfölsun í hvaða mynd sem er. Við sáum OpenAI kynna Sora 2 í síðustu viku og með aðeins einni mynd af einstaklingi er hægt að búa til mjög raunverulegar myndir eða myndskeið,“ segir Chris. Ari Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri Videntifier, segir íslenskt hugvit gera þessa vörn gegn auðkennisþjófnaði mögulega. „Þetta er gríðarlega spennandi og það er gaman að fá að vinna með svona framúrskarandi tækni eins og þessi tvö fyrirtæki eru að setja saman. Við að leysa vandamál sem er í rauninni óleyst og óleysanlegt í dag. Það eru ákveðin forréttindi fyrir okkur á Íslandi að fá að vera fyrstu þátttakendur í þessu. Það er bæði vegna þess hversu tæknilega öflug við erum, viljug til að prófa nýja hluti, og um leið skiljum við á Íslandi þá ríku skyldu og ábyrgð að það þurfi að vernda persónuna. Og þetta er lausnin til þess,“ segir Ari. Ari Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri Videntifier.Vísir/Ívar Fannar
Gervigreind Nýsköpun Tækni Sviss Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Sjá meira