„Var í vímu þarna í smá stund af gleði og æsingi“ Sverrir Mar Smárason skrifar 2. október 2025 22:52 Styrmir var frábær í kvöld. Vísir/Jón Gautur Skagamenn unnu frábæran sigur á Þór Þorlákshöfn í fyrstu umferð Bónus deildar karla í kvöld, 102-92. Skagamenn voru að leika sinn fyrsta leik í efstu deild síðan árið 2000. Styrmir Jónasson var frábær í liði skagamanna og leiddi liðið áfram í upphafi síðari hálfleiks. „
Þetta var bara ótrúleg tilfinning. Ég var í vímu þarna í smá stund af gleði og æsingi. Þetta var geggjað og þetta verður svona bara í allan vetur. Við erum með frábæra stuðningsmenn og þetta drífur okkur áfram,“ sagði Styrmir. Skagamenn voru undir allan fyrri hálfleikinn og fóru inn í hálfleik með stöðuna 49-54. Þeir komu hins vegar gríðarlega sterkir út í þann síðari og tóku öll völd á vellinum. „Við töluðum um að taka út skytturnar betur. Þeir voru að fá mjög mikið af opnum skotum í fyrri hálfleik. Við ákváðum bara að standa aðeins nær og gerðum skotin aðeins erfiðari. Það hjálpaði og svo bara orkan frá öllum leikmönnunum sem komu inná var frábær og vann leikinn fyrir okkur,“ sagði Styrmir. Hópurinn á Akranesi er þéttur og viðbæturnar í vetur hafa komið vel inn. Styrmir gat ekki annað en lofsamað lið sitt eftir svo öflugan sigur og var jákvæður fyrir tímabilinu. „Við viljum náttúrulega bara halda okkur uppi. Ég elska þessa stráka, er búinn að spila með mörgum þeirra heillengi og þeir sem eru komnir hérna, Darnell, Gojko og Josip eru bara geggjaðir. Svo er Lucien frábær. Þetta er góður hópur og ég held við munum standa okkur mjög vel í vetur,“ sagði Styrmir að lokum.
Körfubolti Bónus-deild karla ÍA Mest lesið Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Fótbolti „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Fótbolti Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Fótbolti Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Fótbolti Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Fótbolti Flúði grjótkast í heimalandinu og vann silfur Sport Ætlaði aldrei til Manchester United Enski boltinn Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Handbolti „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Sjá meira