Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn Samúel Karl Ólason skrifar 1. október 2025 14:50 Frá undirskrift samningsins í dag. F.v: Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna, Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri, Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffis, og Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri. Faxaflóahafnir Faxaflóahafnir hafa gert samning við eigendur Múlakaffis um að nýta samkomu- og veislusali í nýrri farþegamiðstöð sem rís nú á Skarfabakka við Viðeyjarsund á veturna. Það er þegar skemmtiferðaskip eru ekki að koma til landsins í eins miklum mæli og á sumrin.
Byggingin er 5.500 fermetrar og á tveimur hæðum og stendur hún við Viðeyjarsund. Farþegamiðstöðin mun samkvæmt samningnum fá nýtt hlutverk sem vettvangur fyrir samkomur og veislur frá október og út mars á ári hverju. Samningurinn gildir til fimm ára. Tölvuteiknuð mynd af nýju farþegamiðstöðinni.Faxaflóahafnir „Við sjáum gríðarleg tækifæri í nýrri farþegamiðstöð í Sundahöfn. Veisluþjónusta í sinni breiðustu mynd er kjarnastarfsemi okkar í Múlakaffi og á þeim markaði er mikil umfram eftirspurn eftir aðstöðu, sem ný farþegamiðstöð mun mæta. Um er að ræða stórglæsilega veislusali með óviðjafnanlegu útsýni á magnaðri staðsetningu við sjávarsíðuna og hlökkum við til þess að bjóða okkar stóra hópi viðskiptavina upp á nýjan áfangastað fyrir veislur og viðburði af öllum stærðum og gerðum,“ segir Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis, í tilkynningu. Hún segir að þegar hafi borist fyrirspurnir varðandi haustið 2026 og hafi nokkrar stórar árshátíðar hjá íslenskum fyrirtækjum og ráðstefnur verið bókaðar. Í tilkynningunni segir að um þrjú hundruð þúsund ferðamenn hafi farið um Faxaflóahafnir á ári, undanfarin ár, með 260 skipum. Sérstök áhersla hafi verið lögð á að fjölga skiptafarþegum sem ferðast um Keflavíkurflugvöll á leið sinni í ferðalög með skemmtiferðaskipum, en þeir dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir samfélagið. Hlutfall skiptifarþega af heildarfjölda gesta í ár er áætlað 52,4% og hefur aldrei verið hærra. „Ný farþegamiðstöð mun gerbylta allri aðstöðu og þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa sem koma til Reykjavíkur. Miðstöðin mun styrkja starfsemi okkar sem leiðandi höfn í Norður-Atlantshafi og er liður í áframhaldandi sókn okkar við að auka hlut skiptifarþega skemmtiferðaskipa sem hefja eða ljúka ferð sinni á Íslandi. Við hönnun hússins höfum við gert ráð fyrir að það nýtist allan ársins hring, líka á þeim tímum þegar skemmtiferðaskip eru ekki á ferðinni við Ísland. Við viljum halda líflegri starfsemi í húsinu yfir vetrarmánuðina og þar kemur Múlakaffi til sögunnar með sína sérþekkingu og áratuga reynslu. Framkvæmdum við húsið miðar vel og við hlökkum til að bjóða fyrstu farþegana velkomna þar næsta vor,“ segir Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs hjá Faxaflóahöfnum í tilkynningunni. Fyrsta skóflustungan að farþegamiðstöðinni var tekin í mars í fyrra, eins og sjá má í spilaranum hér að neðan.
Skemmtiferðaskip á Íslandi Hafnarmál Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira