Hvenær fær Lammens sénsinn hjá Man. Utd? Sindri Sverrisson skrifar 25. september 2025 13:39 Senne Lammens hefur verið á varamannabekknum eftir komuna til Manchester United. Getty/Jan Kruger Þó að liðnar séu rúmar þrjár vikur síðan belgíski markvörðurinn Senne Lammens gekk í raðir Manchester United, á lokadegi félagaskiptagluggans, bíður hann enn eftir fyrsta tækifærinu til að sýna sig og sanna í búningi félagsins.
BBC veltir upp þeirri spurningu í grein í dag hvenær Lammens fái eiginlega að spila sinn fyrsta leik fyrir United. Ljóst er að ef það á ekki að vera í ensku úrvalsdeildinni mun Lammens þurfa að bíða þar til í bikarkeppninni í janúar, þar sem United er dottið úr leik í deildabikarnum og komst ekki í neina Evrópukeppni. Þessi 23 ára leikmaður, sem varði mark U21-landsliðs Belgíu og hefur verið valinn í A-landsliðshóp á þessu ári, var keyptur frá Antwerpen fyrir 18,1 milljón punda. Í kjölfarið var André Onana lánaður til Trabzonspor í Tyrklandi en það dugði þó ekki til að opna dyrnar fyrir Lammens inn í byrjunarlið United alveg strax. Tyrkinn Altay Bayindir hefur haldið áfram að verja mark United, eða reyna það, í 3-0 tapinu gegn Manchester City og svo 2-1 sigrinum gegn Chelsea þar sem eina tilraun Chelsea á rammann var óverjandi skalli Trevoh Chalobah. Altay Bayindir hefur gert slæm mistök í leikjum gegn Arsenal og Burnley í byrjun tímabilsins en haldið sæti sínu í marki United.Getty/Jan Kruger Ekki gert neitt rangt og litið vel út á æfingum BBC hefur eftir heimildum sínum að ljóst sé að Lammens hafi ekki gert neitt rangt hingað til. Hann hafi litið vel út á æfingum og almenn ánægja sé með hann. Lammens er lýst sem yfirveguðum og þroskuðum manni sem virðist ætla að verða fljótur að aðlagast lífinu í Manchester og hefur þegar komist í sitt eigið húsnæði í stað þess að búa á hóteli. Tölfræðin sem hann bauð upp á síðasta vetur, á sínu eina heila tímabili í belgísku úrvalsdeildinni, var stórkostleg en samkvæmt BBC hélt hann sjö sinnum hreinu í 30 leikjum, varði 173 skot eða 20 fleiri en nokkur markvörður í 10 bestu deildum Evrópu, og fjögur víti. Samkvæmt Opta varði hann 77,4% skota og átti 71,5% heppnaðar sendingar. „Senne er ungur og með stóran ramma. Hann mun passa fullkomlega í enska boltann,“ sagði Toby Alderweireld, fyrrverandi leikmaður Tottenham og belgíska landsliðsins. Senne Lammens átti frábæra leiktíð með Antwerpen síðasta vetur en það var hans fyrsta heila tímabil í efstu deild.Getty/Joris Verwijst Engu að síður bíður Lammens eftir sínu tækifæri. Það kom ekki gegn City og ekki gegn Chelsea en nú taka við tveir leikir gegn lægra skrifuðum mótherjum, fyrir næsta landsleikjahlé. United mætir Brentford í hádeginu á laugardaginn og svo Sunderland eftir rúma viku. Ef að Rúben Amorim heldur sig við að tefla Bayindir fram vonast hann eflaust eftir bættri tölfræði hjá Tyrkjanum sem er aðeins í 16. sæti í deildinni yfir hlutfallslega markvörslu, með 50%, í 17. sæti yfir heppnaðar sendingar og í 18. sæti yfir langar, heppnaðar sendingar. Hvetur fólk til að gefa Lammens tíma Norður-Írinn Roy Carroll, fyrrverandi markvörður United, varar hins vegar United-fólk við því að ætlast til of mikils af Lammens sem lék fyrir framan 6.456 áhorfendur í síðasta leik sínum fyrir Antwerpen. „Hann er bara 23 ára svo viljið þið vinsamlegast gefa honum tíma til að þróast sem markvörður Manchester United. Við gerðum það með David de Gea þegar hann kom. Hann var mjög ungur markvörður og hafði líka heillað mikið þegar hann kom til Manchester United. Tími er dýrmætur en við verðum að veita hann. Það gera allir markmenn mistök, lykilatriðið er að gera ekki of mörg,“ sagði Carroll.
Enski boltinn Mest lesið Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Körfubolti Leysti frá skjóðunni um hvað gerðist í þriðja hring Sport „Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Enski boltinn Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Körfubolti Úr efstu deild í fótbolta á HM í utanvegahlaupum: „Ætla að njóta sársaukans“ Sport Dóttir auðkýfings orðin forseti félags 23 ára gömul Fótbolti Chiesa græðir á óheppni landa síns Fótbolti Trump vill koma í veg fyrir að UEFA banni Ísrael Fótbolti Kristófer djarfur í Fantasy: Tuttugu mínusstig í síðustu tveimur umferðum Enski boltinn Hvergi nærri hætt: „Markmiðið var alltaf að sýna gömlu góðu Berglindi“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hvenær fær Lammens sénsinn hjá Man. Utd? Mun skrifa undir nýjan fimm ára samning við Arsenal Kristófer djarfur í Fantasy: Tuttugu mínusstig í síðustu tveimur umferðum „Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Synir Emile Heskey spiluðu saman í fyrsta sinn fyrir City Velskur slagur og meistarar mætast í sextán liða úrslitum Eze með fyrsta markið fyrir Arsenal Hjólhestur hjá Palhinha og markaveisla hjá Skjórunum Segir að Wirtz væri betur borgið hjá Bayern en Liverpool Ragnar er fyrir ofan bankastjórann í Fantasy-deild Kaupþings Ömurlegar fréttir fyrir unga Liverpool-nýliðann Sjáðu fyrsta mark Isak og ruglað rautt spjald Ekitike Utan vallar: Fjórða sætið, í alvöru? Wirtz alveg kominn með nóg af einni ráðleggingu Baðst afsökunar eftir algjöra „heimsku“ Ferðaðist nærri 9000 km og borgaði fúlgur fjár fyrir ógildan miða Lítur á McGinn sem vin eftir magnaða stund saman á Villa Park Sunnudagsmessan: Hver hefur komið mest á óvart? Ekitike tryggði sigurinn og fór beint í sturtu Barcelona vill fá Rashford á tombóluverði Madueke frá í tvo mánuði Rauðu djöflarnir geta ekki nýtt færin Rooney segir tölvuspil hafa hjálpað Man Utd á sínum tíma Segir Man. City hafa verið beitt ósanngirni fyrir stórleikinn Fóru yfir breytta nálgun Guardiola: „Þetta var 7-3-0 á tímabili“ Aldrei verið minna með boltann í sex hundruð leikjum Haaland sýndi morðhótun eftir að hafa náð Solskjær Braut lítt notaða reglu: „Þetta er mjög áhugavert“ Sjáðu allt helsta úr stórleiknum og fimmtu umferð Arteta fyrstur í fimm deildarleiki í röð án taps gegn Guardiola Sjá meira