Chiesa græðir á óheppni landa síns Sindri Sverrisson skrifar 25. september 2025 09:33 Federico Chiesa stóð sig frábærlega í deildabikarnum á þriðjudagskvöld. Getty/James Gill Vikan verður bara betri og betri hjá Federico Chiesa, Ítalanum í liði Liverpool, því hann gæti núna þrátt fyrir allt fengið að spila í Meistaradeild Evrópu í haust.
Samkvæmt hinum virta ítalska blaðamanni Gianluca Di Marzio hefur Liverpool ákveðið að nýta nýja reglu UEFA til þess að hleypa Chiesa inn í Meistaradeildarhóp sinn, eftir að Arne Slot valdi hann ekki í upphaflega hópinn. Nýja reglan heimilar að kalla inn leikmann ef annar leikmaður meiðist og það gerðist einmitt í 2-1 sigrinum gegn Southampton í deildabikarnum í vikunni, þegar Giovanni Leoni sleit krossband. Chiesa nýtur þannig góðs af meiðslum hins unga landa síns sem mun tæplega geta spilað meira á þessari leiktíð. Di Marzio segir aðeins eftir að tilkynna það opinberlega að Chiesa fái sæti Leoni. Federico Chiesa sostituirà Leoni nella lista UEFA del Liverpool: si attende solo l’ufficialitàhttps://t.co/r5xn6sY7BN— Gianluca Di Marzio (@DiMarzio) September 25, 2025 Hinn 27 ára gamli Chiesa var líklega stærsta nafnið sem vantaði í Meistaradeildarhóp Liverpool en hann minnti heldur betur á sig með tveimur stoðsendingum gegn Southampton, eftir að hafa skorað sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni á ögurstundu gegn Bournemouth í fyrstu umferð í ágúst.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira