Tjáir sig um erfiðar tökur: Engir meðleikarar og enginn leikstjóri Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. september 2025 16:23 Ice Cube er meirihluta War of the Worlds á skjánum og þykir ekki nógu góður. Leikarinn Ice Cube lýsir því hvernig var að leika í sæfæ-tryllinum Innrásinni frá Mars í miðjum Covid-faraldri þar sem hann var algjörlega einangraður án meðleikara og leikstjóra með sér á tökustað.
Eftir að hafa verið tekin upp fyrir fimm árum í upphafi Covid-tímabilsins kom Innrásin frá Mars (War of the Worlds á frummálinu) loks út fyrri hluta ágústmánaðar á Amazon Prime. Myndin fékk hryllilega dóma og var lengst af með núll prósent á Rotten Tomatoes en er nú búin að hífa sig upp í fjögur prósent. Það þýðir að einungis tveir gagnrýnenda af alls 48 voru jákvæðir í garð myndarinnar. Myndinni er leikstýrt af Rich Lee og flokkast sem „screenlife“-mynd sem mætti íslenska sem „skjámynd“ þar sem frásögninni vindur fram á tölvuskjá. Framleiðandinn Timur Bekmambetov hefur sérhæft sig í gerð slíkra mynda, auk innrásarmyndarinnar hefur hann gert Unfriended (2014), Searching (2018) og Profile (2018). Rapparinn og leikarinn Ice Cube fer með aðalhlutverk í myndinni en hann leikur tölvunarfræðinginn Will Radford sem fylgist með innrásinni gegnum tölvuskjáinn sinn. Nú mánuði og hálfum eftir útgáfu myndarinnar hefur hann tjáð sig um gerð myndarinnar og tökur hennar. Skotin á fimmtán dögum „Þetta er mynd sem ég gerði árið 2020 í heimsfaraldrinum,“ sagði Ice Cube um myndina í beinu streymi hjá áhrifavaldinum Kai Cenat sem fær gjarnan þekkta einstaklinga til sín að fíflast í beinni útsendingu. „Við skutum hana á fimmtán dögum. Og þetta var í heimsfaraldrinum svo leikstjórinn var ekki þarna, enginn af leikurunum voru þarna. Þetta var eina leiðin til að taka upp myndina. Þetta var farsóttartímabil,“ sagði leikarinn. „Þess vegna er þetta bara á tölvuskjánum. En ef þetta hefði gerst í alvörunni hefði fólk bara getað horft á skjáinn sinn,“ bætti hann við. Ice Cube reyndi líka að útskýra hvers vegna það tók svona langan tíma að gefa myndina út. Kvikmyndarisinn Universal ætlaði upphaflega að gefa hana út í bíó þar til Amazon keypti sýningarréttinn að henni og sýndi hana á veitunni sinni. Eðli myndarinnar hefði flækt fyrir. „Það tók smá stund að klára myndina vegna þess hvernig hún var skotin,“ sagði Ice Cube um myndina. „Allt myndefnið er úr alvöru eftirlitsmyndavélum frá öllum heimshornum. Svo þau þurftu að græja það allt saman.“ Welles, Spielberg og fleiri reynt við innrásina Myndin byggir á samnefndri skáldsögu H.G. Wells sem var fyrst gefin út í lok nítjándu aldar. Eitt frægasta útvarpsleikrit sögunnar var aðlögun á bókinni sem Orson Welles, þá einungis 23 ára gamall, sendi út árið 1938 og olli fjaðrafoki því margir hlustendur héldu að Marsbúar væru í raun og veru að gera árás á jörðina. Fjöldi kvikmynda hafa verið aðlagaðar eða undir miklum áhrifum Innrásarinnar frá Mars. Þar má nefna The War of the Worlds (1953) sem var leikstýrt af Byron War of the Worlds (2005) þar sem Steven Spielberg leikstýrði stjörnunni Tom Cruise. Þá gaf bandaríski tónlistarmaðurinn Jeff Wayne út rokk-geimóperuplötuna Jeff Wayne's Musical Version of The War of the Worlds (1978) sem varð geysivinsæl. Þar setti stórleikarinn Richard Burton sig í hlutverk sögumanns með eftirminnilegum hætti.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Mest lesið Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Lífið Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Lífið „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Menning Dench segir Weinstein hafa mátt þola nóg Lífið Ástin blómstrar í appelsínugulu leðri Tíska og hönnun Ómar Úlfur nýr dagskrárstjóri Bylgjunnar Lífið Áfall að dóttirin ætti 44 árum eldri kærasta Lífið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Sveppi gerði fyrsta ógeðsdrykkinn í tuttugu ár fyrir Bjarna Ben Lífið Glænýr bóksölulisti: Skólastjóri Ævars Þórs skýtur kónginum ref fyrir rass Lífið Fleiri fréttir „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira