Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 9. september 2025 14:32 Þingmenn fóru ólíkar leiðir í fatavali á þingsetningu í dag. Vísir/Anton Brink Ein stærsta tískustund haustins er runnin upp. Á hverju hausti mæta þingmenn landsins í sínu fínasta pússi til þingsetningar og var dagurinn í dag engin undantekning þar á.
Tískuunnendur bíða margir spenntir eftir því að sjá hvaða klæðnað embættismenn velja fyrir tilefnið og hvort og þá hvernig klæðaburðurinn endurspeglar þá. Það er greinilegt að haustið er mætt þar sem mildir og rólegir litir ráða ríkjum hjá þingmönnum landsins og lítið er um litagleði og flipp í ár. Þjóðbúningaþingpæjur Þjóðbúningarnir virðast enn heitari en áður og er forsætisráðherra okkar Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, mikil skvísa í slíkum í dag. Kristún Frostadóttir er glæsileg í þessum einstaka þjóðbúningi með bleika slaufu og gylltan útsaum.Vísir/Anton Brink Halla Hrund Logadóttir, Framsókn, í þjóðbúningnum.Vísir/Anton Brink Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins, í þjóðbúningnum. Víðir Reynisson, Samfylkingunni í dökkbláum jakkafötum og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Samfylkingunni, í lime grænum skokk.Vísir/Anton Brink Ingibjörg Ólöf Isaksen, framsókn, smart í þjóðbúningnum. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Flokki fólksins, í dökkbláu fyrir aftan og sömuleiðis Sigurjón Þórðarsson flokksbróðir Ásthildar Lóu. Vísir/Anton Brink Jarðlitir út í gegn Það verður seint sagt að litagleðin hafi fengið að njóta sín á þingsetningu í ár og virðast allir temmilega jarðtengdir á þessum gráa þriðjudegi. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og þingmaður Viðreisnar í hvítu við brons litaðar buxur.Vísir/Anton Brink Halla Tómasdóttir forseti í brúnu setti, brúnumskóm og ljósum stílhreinum jakka hér með biskupnum okkar Guðrúnu Karls Helgudóttur.Vísir/Anton Brink Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra í svörtu og hvítu með smá skikkju en skikkjur eru kannski að sækja í sig veðrið fyrir veturinn? Þorgerður Katrín utanríkisráðherra í rólegri litapallettu, brúntóna silkikjól við hvítan jakka og klikkar ekki á því að telja skrefin með bleika snjallúrinu.Vísir/Anton Brink Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, virtust hafa verið innblásnar af sömu listagyðjunni þegar það kom að litavali! Vísir/Anton Brink Jón Gnarr og María Rut Kristinsdóttir, þingmenn Viðreisnar, í jarðlitum og með því! Jón er með skemmtilegt fiskabindi. Vísir/Anton Brink Alma Möller alltaf smart í ljósri dragt með eina litla Louis Vuitton tösku á kantinum. Jóhann Páll í fánalitunum.Vísir/Anton Brink Munstur og smá stuð Nokkrir þingmenn tóku smá áhættu eða léku sér með liti og munstur. Óskandi væri að fleiri karlmenn á þingi myndu stöku sinnum ákveða að taka eins og eina litla áhættu þegar það kemur að klæðaburði fyrir þingsetningu. Diljá Mist, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skar sig úr í mjög einstöku köflóttu fitti sem sjaldan hefur áður sést.Vísir/Anton Brink Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í ljósum út í silfraða tóna og snákaskinsskóm með mittistösku í stíl.Vísir/Anton Brink Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, velur alltaf íslenska hönnun fyrir þingsetningu. Hún er hér í Gloria kjólnum frá Anítu Hirlekar. Sigmundur Ernir, flokksbróðir hennar, smart í tvít ullarjakkafötum með hattinn. Vísir/Anton Brink Miðflokksmærin Sigríður Andersen skellti sér í munstrað ponsjó við dökkgræna undirtóna.Vísir/Anton Brink Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis í grænni dragt sem lífgaði aðeins upp á heildina. Björn Skúlason forsetamaki sætur í dökkbláu.Vísir/Anton Brink Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, í bláu og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar, í dökkbláum flæðandi blóma skyrtukjól.Vísir/Anton Brink Lilja Rafney, Flokki fólksins, í skrautlegum kjól.Vísir/Anton Brink
Tíska og hönnun Alþingi Reykjavík Þjóðbúningar Mest lesið „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Lífið Bein útsending: Litlu jól Blökastsins Jól „Maður á ekki að vera feiminn við að vera fínn“ Tíska og hönnun Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Lífið Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Lífið Fékk veipeitrun Lífið Munur er á manviti og mannviti Menning Fleiri fréttir „Maður á ekki að vera feiminn við að vera fínn“ Einn áhrifamesti arkitekt samtímans látinn Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Langskemmtilegast að vera alveg sama Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Heitustu pörin í húrrandi jólagír Skvísur á öllum aldri fögnuðu í Firðinum Íslensk mæðgin slá í gegn í herferð Zöru Sjóðheitar skvísur í feldsfíling Stanslaust stuð í sokkapartýi ársins Þakklát að hafa prófað alls konar hluti Tískukóngar landsins á bleiku skýi Ríghélt í sígarettuna niður tískupallinn Upplifir skotin oftast sem hrós „Ekki spá í hvað öðrum finnst“ Ungir „gúnar“ í essinu sínu Þau hlutu Hönnunarverðlaun Íslands Hætt að nota föt til að fela sig Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Sjá meira