Lífið

Gerðu sumar­fríið að heitasta ástar­ævin­týri ársins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Mornings at the hotel in bathrobes. A smiling handsome blonde and a handsome man having a foreplay in the hotel room bed. Love, emotional, lovers, sensual relationship, passion
Getty

Í amstri hversdagsins situr nánd og kynlíf oft á hakanum, sérstaklega þegar börn eru á heimilinu. Nú þegar margir eru komnir í sumarfrí er fullkomið tækifæri til að hlúa að sambandinu, tendra neistann og fara í stutt ferðalag – bara þið tvö. Hvort sem það er í sumarbústað, á hóteli hér heima eða erlendis.

Kynlífstækjaverslunin Blush birti nýverið grein á vefsíðu sinni þar sem farið var yfir nokkrar einfaldar leiðir til að gera sumarfríið að heitasta ævintýri árins.


Kynlífstæki og undirföt

Þegar pakkað er fyrir rómantíska ferð má ekki gleyma þeim litlu hlutum sem krydda stemninguna. Fyrir suma er það uppáhalds titrarinn, fyrir aðra falleg undirföt, nuddolíur, sleipiefni eða aðrir seiðandi aukahlutir sem geta glætt ástríðuna og gert kvöldið ógleymanlegt.

Getty

Rúmið ekki eina leiksvæðið! 

Heima festumst við oft í sömu kynlífsrútínunni, en á hóteli gefst tækifæri til að nýta allt rýmið á nýjan og spennandi hátt. Rúmið er þægilegur byrjunarreitur, en síðan er gaman að færa sig um set og prófa stólinn, sófann, skrifborðið eða vaskinn fyrir framan spegilinn. Ekki má gleyma hótelsturtunni eða baðkarinu.

Nýtið daginn vel

Í fríinu snýst þetta um að brjóta upp hina venjulegu rútínu. Þegar þið eruð á ferðalagi þurfið þið ekki að bíða eftir kvöldinu eftir langan dag – leyfið ykkur frekar smá fjör um morguninn, í hádeginu eða jafnvel um miðjan daginn.

Getty

Gefið ykkur góðan tíma

Fríið er tækifæri til að slaka á og njóta hvort annars án þess að horfa á klukkuna. Heima er auðvelt að flýta sér í gegnum kynlífið þegar það er þröngvað inn í stútfulla dagskrá. 

Í fríinu ættuð þið að leyfa ykkur að taka góðan tíma í forleik og dekra við hvort annað með mjúkum snertingum. 

Öll samskiptatæki til hliðar

Slökkið á símunum og leyfið vinnupóstinum að bíða. Þetta er tími fyrir ykkur. Notið fríið til að tengjast aftur, án truflana frá vinnu eða heimilismálum. Lokið tölvunni, slökkið á tilkynningum og gefið ykkur rými til að endurvekja spennuna og viðhalda henni þegar heim er komið.

Snerting skapar spennu

Kossar, faðmlög og augnsamband byggja upp eftirvæntingu. Rómantískt ferðalag er fullkomið til að endurstilla tengslin. Snertið hvort annað, það getur kveikt á löngun og gert kynlífið enn meira örvandi.

Getty

Slakið á og njótið augnabliksins

Kynlíf er ekki keppni. Slakið á, losið ykkur við streitu og væntingar og leyfið ykkur að njóta samvista án truflana. 

Fríið er fullkominn tími til að tengjast, snertast og njóta hvers annars í núinu.

Sleipiefni – lykillinn að meiri ánægju

Sleipiefni gerir kynlífið bæði betra og skemmtilegra og ætti alltaf að vera með í ferðatöskunni. Hvort sem það er ykkar uppáhalds eða eitthvað nýtt og spennandi með hita, kælingu eða bragði,

Getty

Gæði umfram magn

Það skiptir ekki máli hversu oft þið stundið kynlíf, leyfið hlutunum að gerast náttúrulega. Þrátt fyrir að hótelkynlíf í fríinu sé spennandi er mikilvægt að forðast óraunhæfar væntingar eða pressu um hversu oft þið stundið það. Leyfið flæðinu að ráða för og einblínið á gæðin frekar en magnið.

Farið út fyrir þægindarammann

Fríið er fullkominn tími til að prófa nýja hluti og vera skapandi. Stígið út fyrir þægindarammann með litlum breytingum sem geta gert mikinn mun, hvort sem það er ný stelling, kynlífstæki eða leikir sem þið hafið ekki prófað. 


Tengdar fréttir

Mælir með að geyma snípinn þar til síðast

Æfingin skapar meistarann er setning sem flestir kannast við og á hún ekki síður við í kynlífi en öðru, hvað þá í munnmökum. Ítarlegar leiðbeiningar um píkuunað sem ættu að geta gagnast kynlífsiðkendum eru aðgengilegar á samfélagsmiðlum kynlífstækjaverslunarinnar Losta. 

Kryddaðu upp á trúboðann

Kynlífsstellingin trúboðinn er ein af þessum hefðbundnu og vinsælu stellingum í svefnherberginu. Pör eiga það til festast í vananum almennt, og á það ekki síður við í rúminu. Kynlífstækjaverslunin Blush setti saman lista af níu hugmyndum sem gætu kryddað upp á stellinguna og gert upplifunina enn betri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.