Uppgjörið: Breiðablik-FHL 6-0 | Sex Blikakonur á skotskónum Haraldur Örn Haraldsson skrifar 7. júní 2025 15:55 Blikar hafa skorað langflest mörk í Bestu deildinni í sumar. vísir/Diego Breiðablik vann í dag mjög sannfærandi 6-0 sigur gegn FHL í 8. umferð Bestu deild kvenna. Það var frekar greinilegt frá byrjun leiks hvort liðið var Íslandsmeistarar og hverjir voru nýliðar. Blikarnir voru að spila vel án þess að eiga einhvern stjörnu leik. Þær komust svo yfir á 14. mínútu eftir frábært einstaklingsframtak frá Samantha Smith. FHL var aðeins að ógna úr skyndisóknum en eftir að þær komust í fínar stöður, var framkvæmdin framarlega á vellinum ekki nógu góð. Blikarnir fóru hægt og rólega að taka meira yfir leikinn og áttu nokkur góð færi. Það tók hins vegar fram að uppbótatíma í fyrri hálfleik fyrir Breiðablik að auka muninn. Það var Agla María Albertsdóttir sem kláraði í opið mark eftir að Terrell markvörður FHL varði vel frá Andreu Rut. Í seinni hálfleik byrjaði Breiðablik af gríðarlegum krafti. Eftir aðeins fimm mínútna leik hafði Barbára Sól Gísladóttir komið Breiðablik í 3-0 og þá var búið að opna flóðgáttirnar. Á næstu tíu mínútum skoruðu Breiðablik þrjú mörk í viðbót, og eiginlega allt í gegnum að vinna boltann ofarlega á vellinum. Fyrst var það Birta Georgsdóttir á 52. Mínútu, svo Andrea Rut Bjarnadóttir á 55. mínútu og í lokin Berglind Björg Þorvaldsdóttir á 60. mínútu. Sókn Breiðabliks hélt bara áfram út leikinn, en markvörður FHL, Keelan Terrell átti nokkrar mjög góðar vörslur. Þrátt fyrir að hún hafi fengið sex mörk á sig átti hún í raun stórleik og kom í veg fyrir að tapið hafi ekki verið með tveggja stafa mun. Atvik leiksins Enginn stór atvik fyrir utan mörkin auðvitað í þessum leik. Flottasta markið var líkast til fimmta mark Breiðabliks. Þar sem Andrea Rut Bjarnadóttir á glæsilegt skot fyrir utan teiginn sem sveiflaðist í fjærhornið. Stjörnur og skúrkar Erfitt að velja einhvern einn úr Breiðabliks liðinu. Það voru sex mismunandi markaskorarar og allt liðið spilaði einfaldlega bara mjög vel, sérstaklega í seinni hálfleik. Mér fannst Birta Georgsdóttir standa hvað mest út á vellinum, en margar aðrar sem koma til greina líkt og Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir. FHL var með eina stjörnu í dag og það var Keelan Terrell. Hún átti fullt af mjög góðum vörslum. Ef það hefði staðið lélegur markvörður í marki FHL í dag, hefðu þær líkast til tapað eitthvað nær 20-0. Skúrkarnir er allt FHL liðið fyrir utan hana. Varnarleikur liðsins í seinni hálfleik var brandari, og sóknarleikurinn þau örfáu skipti sem þær komust í ágætar stöður, fóru þær illa með það. Dómararnir Stefán Ragnar Guðlaugsson og hans teymi mjög flottir í dag. Svo sem ekki erfiður leikur að dæma, en ég man ekki eftir einu einasta skipti sem ég var ósammála. Stemning og umgjörð Það var æðislegt veður í dag, í Kópavoginum. Sólin skein og það var logn. Áhugafólk um fótbolta hefur þá valið sér að gera eitthvað annað í dag, því það var fámennt í stúkunni. Stemningin var eftir því, lítið af söng og tralli. Nik: Á öðrum degi hefðum við getað komist í tveggja stafa tölu Nik Chamberlain var ánægður með úrslitin. Nik Chamberlain þjálfari Breiðabliks var ánægður með úrslitin í dag, þrátt fyrir að honum fannst liðið ekki byrja nægilega vel. „Við vorum full hæg af stað í fyrri hálfleik fyrir það sem við erum að leitast eftir. Eftir pásuna vildum við byrja leikinn af miklum krafti. Það tók smá tíma fyrir okkur að komast af stað en ég var mjög ánægður með svarið í seinni hálfleik. Ég veit við skoruðum engin mörk seint í leiknum en við áttum nóg af færum. Þá komu nokkrir leikmenn inn á og héldu uppi ákafanum,“ sagði Nik Breiðablik skoraði fjögur mörk á fyrstu fimmtán mínútunum í seinni hálfleik. Það er greinilegt að það var þá einhverju breytt í hléinu. „Ég sagði bara að við þyrftum að sýna betri frammistöðu og það var bara það,“ sagði Nik Keelan Terrell markvörður FHL átti mjög góðan leik þrátt fyrir að Breiðablik skoraði sex. Hún kom í veg fyrir að tapið hafi ekki verið með tveggja stafa mun. „Keelan átti frábæran leik, og var mjög góð fyrir þau á síðasta tímabili. Hún var hluti af þeirra árangri og, hluti af ástæðunni fyrir því að þær fóru upp um deild. Hún er að eiga annað gott tímabil í ár og sumar vörslurnar hjá henni í dag voru frábærar. Á öðrum degi hefðum við getað komist í tveggja stafa tölu en hún hélt áfram. Sem er mikilvæg fyrir þær, mjög mikilvægt fyrir þær að halda áfram og halda hausnum á lofti. Þeirra barátta er ekki við okkur, þær þurfa að einbeita sér að næstu leikjum og reyna að fara safna stigum,“ sagði Nik Björgvin Karl: Þetta var óþarflega stórt Björgvin Karl fannst tapið full stórtVísir/Guðmundur Björgvin Karl Gunnarsson þjálfari FHL var svekktur með tapið í dag og fannst munurinn enda í að vera full mikill. „Þetta var óþarflega stórt, en að sjálfu sér sanngjarnt á móti mjög góðu Breiðabliks liði. Mér fannst við allavega byrja þokkalega, sýna að við gætum haldið þeim aðeins aftur og fengum fínar sóknir í byrjun. Eftir að þær skora markið þá fannst mér við detta aðeins niður. Hvað þá þegar annað markið kom þá vorum við hálf brotnar. Við ætluðum að reyna að laga eitthvað í seinni hálfleik og þær gerðu bara út um leikinn á fyrstu tíu mínútunum þar,“ sagði Björgvin. FHL fékk nokkur fín færi í fyrri hálfleiknum, en fóru illa með þau. Liðið hefði þurft að nýta þessi færi þar sem nýliðar fá yfirleitt ekki mörg færi gegn Íslandsmeisturunum. „Auðvitað hefði það skipt miklu máli að geta nýtt þessar stöður sem við náðum þarna. Skora eitt mark og sjá hvernig Blikarnir myndu bregðast við, hvort við hefðum þá getað fundið einhverja möguleika í að skilja þær eftir,“ sagði Björgvin. FHL fékk á sig fjögur mörk á fyrstu fimmtán mínútunum í seinni hálfleik. Björgvin segist átta sig alveg á hvað fer úrskeiðis þar. „Þetta er bara sára einfalt. Leikmaður hleypur úr stöðu til að bregðast við einhverju sem gerist á miðjunni en skilur eftir sig stóra holu. Þar koma mörkin,“ sagði Björgvin. FHL tók aðeins fjóra útileikmenn með sér til að vera á varamannabekknum. „Það eru meiðsli og leikmenn sem eru frá. Við höfðum möguleika á að taka þriðja flokks leikmenn, en við gerðum það ekki núna,“ sagði Björgvin. Besta deild kvenna Breiðablik FHL