Mætti á blaðamannafund með börn látins bróður síns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2025 06:30 Aaron Gordon með tvo litla frænda sér við hlið á blaðamannafundinum eftir leik. @nuggets Aaron Gordon var hetja Denver Nuggets í sigrinum á Oklahoma City Thunder í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Vesturdeildar NBA.
Nikola Jokic var rosalegur í leiknum með 42 stig og 22 fráköst í 121-119 sigri en það var Gordon sem setti niður stærsta skot leiksins. Gordon setti niður þriggja stiga skot fjórum sekúndum fyrir leikslok sem kórónaði endurkomu Denver og dýrmætan sigur á útivelli í leik eitt. OKC var 104-95 yfir þegar aðeins sjö mínútur voru eftir en Denver kom til baka. Gordon endaði leikinn með 22 stig, 14 fráköst og þrjá þrista. Hann tók sjö af fráköstum sínum í sókn. Eftir leikinn mætti Gordon og blaðamannafund eins og vaninn er hjá stærstu stjörnum leikjanna. Það vakti aftur á móti mikla athygli að hann mætti fyrir framan fjölmiðlamennina með tvö börn. Þetta voru þó ekki hans eigin börn. Drew Gordon, eldri bróðir Aarons, lést í bílslysi í fyrra og skildi eftir sig tvö ung börn. Aaron hefur verið föðurímynd fyrir þau bæði síðan slysið hryllilega varð og þau fengu því að sitja hjá frænda sínum á fundinum. Hér fyrir neðan má sjá myndband frá blaðamannafundinum eftir leikinn. View this post on Instagram A post shared by @courtsidebuzzig
NBA Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Sjá meira