Tyrese Haliburton skoraði sigurkörfu Indiana undir blálokin. Giannis Antetokounmpo, aðalstjarna Milwaukee, sat eftir með sárt ennið en hann skoraði þrjátíu stig, tók tuttugu fráköst og gaf þrettán stoðsendingar í leiknum.
HALIBURTON LAYUP FOR THE GAME AND THE SERIES!!!
— NBA (@NBA) April 30, 2025
PACERS MOVING ON. pic.twitter.com/K5KkvAFaot
Eftir að Haliburton skoraði sigurkörfuna ákvað pabbi hans, John, að gera sér ferð inn á völlinn. Hann veifaði handklæði framan í Giannis og lét einhver orð falla. Grikkinn var eðlilega ekki sáttur og skilja þurfti þá að.
„Ég trúi á að vera hógvær á sigurstundu. En margir eru þannig, nei, þegar þú vinnur leik ertu með kjaft og gefur þér grænt ljós til að sýna öðrum vanvirðingu. Ég er ekki sammála því,“ sagði Giannis.
„Þegar þú tapar eru miklar tilfinningar í spilinu. Ég hélt fyrst að þetta væri stuðningsmaður en fattaði svo að þetta væri pabbi Tyreses. Ég kann vel við Tyrese. Mér finnst hann vera frábær keppnismaður. Að pabbi hans komi út á gólfið, sýni mér handklæði með mynd af syni hans og segi að svona gerum við þetta finnst mér vera mikil vanvirðing.“
The last thing we see from Giannis in a Bucks jersey might just be him going after Mr. Haliburton
— Barstool Sports (@barstoolsports) April 30, 2025
pic.twitter.com/V3RaIYl0PC
Giannis sagðist þó hafa rætt við pabba Haliburtons eftir atvikið og þeir hafi ekki skilið í illu.
Pabbinn baðst seinna afsökunar á samfélagsmiðlum og sonur hans sagði að hann hefði átt að hafa sig hægan.
Tyrese Haliburton's dad apologizes following his confrontation with Giannis 👀 pic.twitter.com/Z294MiSuhV
— Yahoo Sports (@YahooSports) April 30, 2025
„Ég er ekki sammála því sem gerðist. Körfubolti er körfubolti og höldum þessu inni á vellinum. Ég held að hann hafi orðið spenntur, sá son sinn skora sigurkörfu og fór út á gólfið en við ræddum saman,“ sagði Haliburton.
„Hann verður að leyfa mér að spila körfubolta og halda sig þarna og ég kem og fagna með honum. Ég talaði við hann og Giannis. Pabbi minn hljóp á sig þarna.“
Haliburton skoraði 26 stig og gaf níu stoðsendingar í leiknum. Myles Turner var með 21 stig og níu fráköst.
Þetta er annað árið í röð sem Indiana slær Milwaukee úr leik í 1. umferð úrslitakeppninnar. Liðið mætir Cleveland Cavaliers í undanúrslitum Austurdeildarinnar.
Detroit Pistons minnkaði muninn í einvíginu gegn New York Knicks með 103-106 sigri í Madison Square Garden. Knicks leiðir einvígið, 3-2.
Cade Cunningham skoraði 24 stig fyrir Detroit og Ausar Thompson 22. Sex leikmenn Knicks skoruðu að minnsta kosti þrettán stig en enginn meira en nítján.
DETROIT STAYS ALIVE WITH THE ROAD W 😤
— NBA (@NBA) April 30, 2025
Cade: 24 pts, 8 reb, 8 ast
Ausar: 22 pts (8-10 fgm), 7 reb, 2 blk
Tobias: 17 pts, 8 reb, 4 blk
Game 6: Thursday, 7:30pm/et, TNT (NYK leads 3-2) pic.twitter.com/yFyVOPrRMo
Denver Nuggets vantar aðeins einn sigur í viðbót til að slá Los Angeles Clippers út í Vesturdeildinni eftir 131-115 sigur í fimmta leik liðanna. Denver er 3-2 yfir í einvíginu.
Jamal Murray var í miklu stuði hjá Denver og skoraði 43 stig. Aaron Gordon var með 23 stig og Russell Westbrook 21. Nikola Jokic var nokkuð rólegur í stigaskorun en skilaði samt þrefaldri tvennu; þrettán stigum, tíu fráköstum og tólf stoðsendingum.
JAMAL MURRAY PUT ON SHOW IN A PIVOTAL GAME 5!
— NBA (@NBA) April 30, 2025
🔥 43 PTS
🔥 8 3PM
🔥 7 AST
🔥 3 STL
🔥 17-26 FGM (65.4%)
His 6th-career 40+ point postseason game leaves the @nuggets 1 win away from advancing! pic.twitter.com/NSDYhnyku4
Þá tryggðu meistarar Boston Celtics sér sæti í undanúrslitum Austurdeildarinnar með sigri á Orlando Magic, 120-89. Boston vann einvígið, 4-1, og mætir annað hvort Knicks eða Detroit í næstu umferð.
Jayson Tatum skoraði 35 stig fyrir Boston og Jaylen Brown 23. Franz Wagner skoraði 25 stig fyrir Orlando.
TATUM COMES UP BIG TO CLINCH THE SERIES 🙌
— NBA (@NBA) April 30, 2025
☘️ 35 PTS
☘️ 10 AST
☘️ 8 REB
☘️ 4-5 3PM@celtics will face winner of Pistons/Knicks. pic.twitter.com/DiJtwBvyZT