Þessi trygging gildir í eitt ár frá kaupdegi og er í boði fyrir valin dekk, þar á meðal öll Nokian Hakkapeliitta dekk, ókeypis þjónusta sem tryggir að ferðalag þitt verði öruggt og ánægjulegt við allar aðstæður.
Hvað felst í Hakka Tryggingu®?
Ef dekk skemmist við eðlilega notkun innan árs frá kaupdegi, færðu nýtt samsvarandi dekk án endurgjalds frá viðurkenndum söluaðila Nokian Tyres. Viðgerðarkostnaður er þó ekki innifalinn í tryggingunni.
Hér er hægt að lesa nánar um Hakka Tryggingu
Hvernig virkar tryggingin?
1. Dekk keypt - Skrá þarf dekk í tryggingu við kaup.
2. Dekkið skemmist? Komdu við hjá MAX1 bílavaktinni með dekkið.
3. Tryggingin staðfest: Söluaðili skoðar dekkið og staðfestir að tryggingin hafi verið skráð við kaup.
4. Nýtt dekk sett á: Ef ekki er hægt að gera við dekkið á öruggan hátt, færðu nýtt dekk – án endurgjalds!
Aðeins greiðsla fyrir ásetningu
Þegar nýja dekkið er sett undir greiðir viðskiptavinurinn aðeins fyrir ásetninguna. Viðgerðir á dekkjum falla ekki undir trygginguna.
Hvernig skrái ég mig í Hakka Tryggingu®?
Skráning fer fram við kaup á dekkjunum. Þú færð staðfestingarpóst sem þú geymir ásamt frumriti reikningsins. Þessum skjölum þarf að framvísa ef upp kemur þörf á að nýta trygginguna.
Með Hakka Tryggingu® geturðu ekið af öryggi, vitandi að þú ert varinn gegn óvæntum dekkjaskemmdum án aukakostnaðar.
Gildir fyrir vetrar-, heilsárs- og sumardekk
Hakka Tryggingin® gildir fyrir ný vetrar-, heilsárs- og sumardekk sem keypt eru á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2025 hjá MAX1 Bílavaktinni sem er viðurkenndur söluaðili Nokian Tyres.

Nánari upplýsingar og skilmálar á vefnum: max1.is/hakka-trygging