Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni BL og Ragnheiður Tryggvadóttir 9. september 2026 09:28 Eftir að hafa hafið rafbyltinguna á sínum tíma ætlar Nissan nú að stimpla sig rækilega inn aftur með nýjum LEAF. Splunkunýr Nissan LEAF er kominn á göturnar. Straumlínulagaður crossover með meira en 620 kílómetra drægni. Hann er gjörbreyttur frá fyrri útgáfum, svakalega töff og með honum ætlar Nissan að stimpla sig rækilega inn í rafbílaslaginn, aftur, eftir að hafa hafið rafbílabyltinguna á sínum tíma.
Rafbílar voru nefnilega framandi fyrir fimmtán árum og eitthvað sem var á langtímaplaninu hjá flestum bílaframleiðendum. Nissan dreif þetta hins vegar í gang og kynnti til sögunnar tiltölulega hefðbundinn og viðráðanlegan rafbíl fyrir almenning árið 2010. Bíllinn sló í gegn. Rauk út eins og heitar lummur og sýndi að rafbílar voru ekki á langtímaplaninu hjá almenningi, við vorum til í þetta strax. Nú þurftu aðrir framleiðendur heldur betur að spýta í lófana, kapphlaupið var hafið. Einn þessara fyrstu LEAF-bíla rataði meira að segja upp í afskekkta sveit norðan heiða þegar foreldrar mínir skelltu sér á einn og hófu þar með eigin rafbílabyltingu sem stendur enn. LEAF var því fyrsti rafbíllinn sem ég settist upp í. Man hvað mér fannst skrítið að ýta bara á takka til að starta bílnum en heyra ekkert vélarhljóð, gott ef það stóð ekki bara "Ready" á skjánum, algjört tækniundur. Og svo mátti bara stinga honum í samband eins og hverju öðru heimilistæki í lok dags. Ég var því frekar spennt að setjast aftur upp í Nissan LEAF meira en þrettán árum síðar. Ég hafði lítið frétt af honum síðan. Mun hann ná að stimpla sig aftur inn á sviðið? Reyndar hefur hann nú þegar verið valinn „Bíll ársins“ af Women's Worldwide Car of the Year og hlotið þrenn verðlaun á Buzz Awards, þar á meðal „Bíll ársins 2026“, „Besti rafbíllinn“ og „Besti hagkvæmi bíllinn“. Nissan LEAF hlaut einnig viðurkenninguna „Val ritstjóra“ á Autotrader Drivers’ Choice verðlaunahátíðinni 2026. Ekki slæm byrjun. Einn sá fallegasti í sínum flokki Það fyrsta sem grípur við þennan nýja er útlitið. Hann er skilgreindur sem crossover en líkist frekar hábyggðum hlaðbak en hefðbundnum jepplingi. Hann er sportlegur og straumlínulagaður og hannaður til að kljúfa sig gegnum vind. 18 tommu álfelgur gera hann líka dálítið töff. Handföngin eru innfelld og á afturhurðinni eru þau felld inn efst aftan við rúðuna. Hann þykir ansi fallegur í samanburði við kassalagaðri keppinauta sína í þessum flokki. Útlitið er þó ekki allt, það sem leynist hið innra skiptir ekki síður máli og í Nissan LEAF erum við í góðum málum. Ég fékk nefnilega að prófa Advance-útgáfuna og í henni er meðal annars panorama-glerþak sem hægt er að dimma að hluta eða allt með einum takka. Þetta gerir mikið fyrir rýmistilfinninguna inni í bílnum, sérstaklega opnar glerþakið á rýmið fyrir aftursætisfarþegana þar sem þakið hallar aftur. Leðursætin eru virkilega flott og það fór vel um mig. Það er kannski helst að farangursrýmið gjaldi fyrir afturhallandi hlaðbakshönnunina, en 437 lítrar duga þó vel fyrir hversdagslífið. Tvær stórar ferðatöskur og ein til tvær minni komast vel fyrir, eða samanbrjótanlegur barnavagn ásamt innkaupapokum. Eitt golfsett ætti einnig að rúmast án mikilla vandræða en fyrir tvö sett gæti þurft að leggja hluta aftursætisins niður en með því að fella niður sætin fást 809 lítrar. Innréttingin er stílhrein. Tveir skjáir í einum samfelldum panel koma virkilega vel út. Hér er áherslan á að hafa hlutina aðgengilega og einfalda án mikilla hönnunarstæla og útkoman er bæði smekkleg og praktísk. Ég var til dæmis mjög hrifin af þeirri útfærslu að í stýrinu er hægt að velja hvorn skjáinn á að vinna með og stjórna svo aðgerðum á einfaldan hátt með einum fingri án þess að taka hendur af stýrinu. Eins þarf heldur ekki að fara í gegnum skjáinn til að gera allt, fyrir neðan hann eru helstu stillingar á vísum stað til að ýta á. Það kann ég að meta. Annað sem mér fannst mjög þægilegt er að gírarnir eru takkar, og meira að segja frekar stórir takkar á hentugum stað innréttingunni. Þar við hliðina fann ég líka E-pedal takka sem mér finnst sérstaklega þægilegt að nota við akstur. Samviskusamur ferðafélagi Þessi bíll lætur mjög samviskusamlega vita ef ekið er hraðar en hámarkshraði segir til um, sem er auðvitað öryggisatriði, eins ef honum finnst maður ekki sýna nógu mikla einbeitingu við aksturinn og í eitt sinn var hann harðákveðinn í því að ég væri þreytt og ætti að taka pásu strax! Það er reyndar hægt að taka viðvörunarhljóðið af en ekki með einum smelli. Ég þurfti allavega að fikta mig dálítið áfram áður en ég fann út úr því. En mögulega er það kostur að leiðin sé löng því þessi viðvörunarhljóð hafa auðvitað tilgang. Léttur og lipur í fjölbreyttum hversdagsakstri Sunnudagsbíltúrinn þennan sunnudaginn var einstaklega ljúfur. Ég skutlaðist austur fyrir fjall í glampandi sólskini og rúllaði Þrengslin til baka. Rataði meira að segja inn á malarveg í mögnuðu landslaginu. Þessi leið er ótrúlega skemmtileg í góðu veðri og LEAF fór létt með þennan rúnt. Hann er virkilega þægilegur í akstri. Hljóðlátur og lipur og fjöðrunin mjúk. Ég þræddi miðbæinn á bílnum, smeygði mér á milli um mjóar götur eins og listdansari. Rangalar Skeifunnar og þröng bílastæði Kringlunnar voru heldur ekkert mál. LEAF er ekki torfærubíll, frekar myndi ég segja hann þægilegan og lipran borgarbíl en hann stóð sig samt vel á malarveginum og ræður greinilega við fjölbreyttan hversdagsakstur. Stýringin er létt og bíllinn stöðugur svo aksturinn var mjög afslappaður. Gamlir veikleikar úr sögunni Síðan fyrsti LEAF stökk fram á sjónasviðið hefur mikill hamagangur verið í þróun rafbíla og hver framleiðandinn á fætur öðrum blandað sér í slaginn. Tækniþróunin æðir áfram og nýjar lausnir í rafkerfum, kælikerfum, öryggiskerfum og ökumannsaðstoð verið útfærðar. Nissan LEAF hefur ekki endilega verið fyrirferðarmestur í hasarnum síðustu ár þó hann hafi ýtt þessu öllu saman af stað. Gamli LEAF var stundum gagnrýndur fyrir takmarkaða kæli- og hitastýringu rafhlöðunnar, drægnin þótti fremur stutt og hleðslutengið þurfti uppfærslu. Gjörbreyttur bíll sem á fullt erindi En nýi LEAF er ekki aðeins uppfærsla heldur gjörbreyttur bíll þar sem búið er að taka á öllum mögulegum veikleikum. Hann er byggður á CMF-EV-undirstöðum eins og Nissan Ariya og er með vökvakælda og hitastýrða rafhlöðu, CCS-hleðslutengi og möguleika á bæði sjálfvirkri og handvirkri forhitun rafhlöðunnar. Stærri rafhlaðan tekur við allt að 150 kW hraðhleðslu. Þá er V2L-tækni í boði svo hægt er að nýta rafhlöðuna til að knýja önnur raftæki og drægnin hefur aukist verulega. Innréttingin er einnig alveg endurhönnuð og í Advance-útfærslunni fylgir innbyggt Google-kerfi með Google Maps, Google Assistant og Google Play. Útkoman er virkilega flottur, langdrægur og tæknilegur bíll sem er mjög einfalt og þægilegt að keyra. Það myndi ég segja að tikki í flest box þegar kemur að því að stimla sig aftur inn í slaginn. Verðið hjálpar líka til en Engage-grunnútgáfa með 52 kWh rafhlöðu, 177 hestöflum og 445 kílómetra uppgefinni drægni, kostar frá 5.490.000 krónum með styrk úr Orkusjóði. Þá fæst langdræga 75 kWh útgáfan, sem kemst allt að 622 kílómetra samkvæmt WLTP, fyrir 6.490.000 krónur.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Bein útsending: Heinemann sviptir hulunni af breytingum á fríhöfninni Viðskipti innlent Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira