Leik lokið: KR - Keflavík 97-93 | Dýrmætur sigur fyrir Vesturbæinga HJörvar Ólafsson skrifar 31. janúar 2025 18:46 KR og Keflavík eigast við í Vesturbænum í kvöld. Vísir/Jón Gautur Hannesson KR vann dýrmætan fjögurra stigur, 97-93, þegar liðið tók á móti Keflavík í 16. umferð Bónus deildar karla. Keflvíkingar lentu mest sautján stigum undir en tókst að jafna í fjórða leikhluta, KR bar þó af þegar allt kom til alls. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leik en KR hefur nú safnað sextán stigum. Liðin voru jöfn að stigum með 14 stig, líkt og Álftanes, ÍR og Þór Þorlákshöfn fyrir rimmuna í sjötta til tíunda sæti deildarinnar. KR komst upp að hlið Val og Grindavík með 16 stig í fjórða til sjötta sæti eftir þennan sigur. Leikurinn bar þess merki að bæði lið langaði virkilega í þau tvö stig sem í boði voru í baráttunni um að tryggja sér farseðil í úrslitkeppnina. Jafnt var á öllum tölum í fyrri hálfleik en KR var lengst af skrefinu á undan. KR átti síðasta sprettinn í fyrri hálfleiknum en heimamenn skoruðu sex síðustu stig annars leikhluta og fóru með 59-48 forystu inn í hálfleikinn. Linards Jaunzems var fremstur meðal jafningja hjá KR-liðinu framan af leiknum en þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik var Lindards kominn með 19 stig. KR var með þægilegt forskot fram í miðjan fjórða leikhluta en Jarell Reischel jafnaði metin í 78-78 um miðjan fjórða leikhluta. KR-ingar tóku þá aftur við sér og sigldu sigrinum heim með góðum kafla undir lok leiksins og innbyrtu að lokum fjögurra stiga sigur. Jakob Sigurðarson fer yfir málin með leikmönnum sínum. Vísir/Jón Gautur Hannesson Jakob Sigurðarson: Spiluðum frábæra vörn í þessum leik „Þetta var gríðarlega sterkur sigur og ég er ánægður með frammistöðuna. Við spiluðum heilt yfir mjög góða vörn þrátt fyrir að Keflavík hafi skorað 93 stig í þessum leik. Við veðjuðum á að leyfa ákveðnum leikmönnum að taka skot og það veðmál gekk upp,“ sagði Jakob Sigurðarson, þjálfari KR, sáttur að leik loknum. Bónus-deild karla KR Keflavík ÍF
Uppgjörið: Höttur - Tindastóll 85-97 | Tindastóll eltir Stjörnuna áfram á toppnum eftir sigur á Egilsstöðum