Lífið

Risa endur­koma eftir ára­tug í dvala

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Cameron Diaz skein skært á fjólubláum dregli á frumsýningu Back in Action í Berlín.
Cameron Diaz skein skært á fjólubláum dregli á frumsýningu Back in Action í Berlín. Tristar Media/WireImage

Stórstjarnan Cameron Diaz var ein vinsælasta gamanleikkona allra tíma þegar hún ákvað að taka sér pásu frá kvikmyndum. Nú áratugi síðar er hún mætt aftur á skjáinn í hasarmyndinni Back In Action.

Kvikmyndin segir frá kærustupari sem störfuðu hjá leynilögreglu Bandaríkjanna CSI. Hjúin fara í felur og eignast fjölskyldu. Mörgum árum síðar neyðast þau til þess að dusta rykið af byssunum til þess að lifa af og vísar titillinn til þess að vera mætt aftur í hasarinn. Á það vel við um feril Diaz sömuleiðis en hún leikur á móti góðum vini sínum Jamie Foxx. 

Síðasta kvikmynd Cameron Diaz var Annie sem kom út árið 2014. Fjórum árum síðar gaf hún út tilkynningu þar sem hún tjáði aðdáendum sínum að hún ætlaði sér að taka kærkomið hlé frá kvikmyndum. 

„Ég þurfti að staldra við og skoða hvernig ég vildi lifa lífinu. Þegar þú ert í tökum á bíómynd þá eiga þau þig. Þú ert þarna í tólf klukkutíma á dag marga mánuði í röð og þú hefur engan tíma fyrir neitt annað. 

Ég varð að vita að ég kynni að hugsa um sjálfa mig og að ég kynni að haga mér eins og fullorðin manneskja án þess að vera stöðugt í tökum,“ sagði Diaz í hlaðvarpsviðtali um ákvörðunina. 

Hún tók þó aldrei fyrir það að leika aftur en nýtti áratuginn vel með eiginmanni sínum Benji Madden og tveimur börnum þeirra hjóna. Sömuleiðis dýfði hún tánum inn í heilsubransann, framleiddi náttúruvín og margt fleira. 

„Ég gef mér leyfi til þess að segja nei við verkefnum en ég gef mér líka leyfi til þess að segja já ef mig langar til þess,“ segir Diaz sátt við ákvörðun sína um að byrja aftur að leika. 

Cameron Diaz rokkaði svartan Gucci klæðnað í Berlín og hefði eflaust flogið inn á alræmda teknóklúbbinn Berghain í borginni.Tristar Media/WireImage

Hún naut sín vel á fjólubláum dregli frumsýningarinnar á Back In Action í Berlín. Þar klæddist hún svörtum fatnaði, víðum gallabuxum, gegnsærri Gucci blússu og stórum svörtum Gucci frakka úr vor/sumar 2025 línu tískuhússins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.