Smátt brak hefur í fáum tilfellum rekið á land en engin lík eða hlutar úr flugvélinni hafa fundist enn. Þetta er í fjórða sinn sem leitað verður að flugvélinni en fyrsta leitin stóð yfir í fjögur ár. Starfsmenn fyrirtækisins Ocean Infinity munu koma að leitinni en þeir héldu einnig utan um þriðju leitina, sem lauk árið 2018.
Leitin á að standa yfir í að minnsta kosti eitt og hálft ár og á að notast við kafbáta til að leita á botni um fimmtán þúsund ferkílómetra svæðis.
Anthony Loke, samgönguráðherra Malasíu, sagði á blaðamannafundi í dag að nauðsynlegt væri að reyna að finna svör fyrir ættingja þeirra sem týndust með flugvélinni.
„Við vonum að í þetta sinn verði niðurstaðan jákvæð. Að brakið finnist og fjölskyldurnar fái svör,“ sagði Loke, samkvæmt Retuers.
Hvarf sporlaust
Verið var að fljúga flugvélinni frá Kuala Lumpur til Peking þann 8. mars 2014 og tæpum fjörutíu mínútum eftir flugtak hvarf flugvélin af ratsjám. Skömmu áður en flugvélinni var flogið úr flugumferðarstjórnarsvæði Malasíu óskaði flugstjórinn flugumferðarstjórum í Kuala Lumpur góðrar nætur.
Það var nokkrum mínútum áður en sambandið rofnaði við staðsetningarbúnað flugvélarinnar og flugstjórinn hafði aldrei samband við flugumferðarstjóra í Víetnam, eins og hann átti að gera.
Um borð voru 227 farþegar og þar af fimm ung börn, auk tólf áhafnarmeðlima. Flestir farþegar, eða 153, voru frá Kína. Fimmtíu voru frá Malasíu, sjö frá Indónesíu, sex frá Ástralíu, fimm frá Indlandi, fjórir frá Frakklandi en þar að auki voru farþegar frá Bandaríkjunum, Kanada, Íran, Hollandi, Nýja Sjálandi, Rússlandi, Taívan og Úkraínu um borð.
Hernaðarratsjár sýndu að stefnu flugvélarinnar var breytt til vestur yfir Andaman-haf og að Indlandshafi. Þá hafa gögn úr gervihnöttum sýnt að flugvélinni var flogið í rúmar sex klukkustundir til viðbótar. Mögulega þar til flugvélin varð eldsneytislaus og er talið að hún hafi hrapað í sunnanvert Indlandshafið.
Erfitt að fá svör án flugrita
Margar kenningar um hvarfið hafa litið dagsins ljós í gegnum árin og hafa margar þeirra snúist um að annar flugmannanna eða þeir báðir hafi vísvitandi grandað flugvéllinni en án þess að flugritar flugvélarinnar finnist og að þeir séu þá í heilu lagi, er ólíklegt að svör muni nokkurn tímann fást.
Brak, sem í einhverjum tilfellum hefur verið staðfest að er úr flugvélinni og í öðrum er það eingöngu talið vera úr flugvélinni, hefur rekið á land á austurströnd Afríku og eyjar í Indlandshafinu.
Loke segir að forsvarsmenn Ocean Infinity séu borubrattir um að þeir geti fundið flakið og byggir leitarsvæðið á greiningu nýrra gagna.
„Gögnin hafa var kynnt. Okkar teymi hafa farið yfir þau og fannst þau trúverðug,“ sagði Loke.
Samningurinn við Ocean Infinity er samkvæmt Reuters þess eðlis að finni starfsmenn Ocean Infinity ekki flugvélina þurfi Malasíumenn ekki að greiða fyrirtækinu.