Innlent

Allar landa­mæra­stöðvar efldar og þeim mögu­lega fækkað

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra sagði 220 einstaklinga í ólöglegri dvöl á landinu.
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra sagði 220 einstaklinga í ólöglegri dvöl á landinu. Vísir/Vilhelm

Íslensk stjórnvöld hafa markað nýja stefnu í landamæramálum sem ætlað er að efla landamæraeftirlit, auka eftirlit með skipulagðri brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning hælisleitenda.

Þetta kom fram á blaðamannafundi nú fyrir stundu, þar sem Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri kynntu nýja stefnu ráðherra í landamæramálum og landsáætlun um landamærastjórn.

Á fundinum var meðal annars greint frá því að skilgreindar landamærastöðvar á Íslandi væru nú alls 34 og til greina kæmi að fækka þeim.

Guðrún sagði nýja stefnu þríþætta:

Í fyrsta lagi væri miðað að því að auka öflugt og skilvirkt eftirlit við allar landamærastöðvar á Íslandi. Stöðvarnar yrðu uppfærðar hvað varðaði bæði tæknibúnað og mannafla og svokölluð snjalllandamæri tekin upp, það sem erlendis hefur verið kallað Entry/Exit System. Þá yrðu ný kerfi tekin upp til að bæta hraða og öryggi og menntun og þjálfun starfsmanna efld. Eftirlit með umferð einkaflugvéla yrði einnig eflt, sem og eftirlit á sjó.

Í öðru lagi yrði ráðist í auknar aðgerðir til að sporna við skipulagðri brotastarfsemi. Brotahópar störfuðu þvert á landamæri og sköpuðu nýjar áskoranir gagnvart öryggi Íslands. Samstarf yrði aukið innanlands og erlendis og greiningargeta lögreglu aukin. Þá sé unnið að auknu samstarfi varðandi farþegaupplýsingar og horft til auksins samstarfs stofnana við að fylgjast með flæði fólks til landsins. Auka þyrfti eftirlit með einstklingum í ólöglegri dvöl á Íslandi en þeir væru 220 eins og sakir standa. Þá yrði unnið að því að koma upp andlitsgreiningarbúnaði á Keflavíkurflugvelli.

Í þriðja lagi sagði Guðrún nauðsynlegt að tryggja mannúðlega og faglega móttöku og brottflutning útlendinga. Markmið hefðu verið sett um að koma upp sérstakri greiningamiðstöð við Keflavíkurflugvöll, þar sem fólk fengi stuðning og þjónustu. Þeim sem fengju synjun yrði tryggð öruggt brottfararferli, meðal annars í samstarfi við Frontex. Þá yrði sérstök áhersla lögð á vernd barna í viðkvæmri stöðu.

Ráðherra sagði að með þessari stefnu hefðu stjórnvöld lagt grunninn að öflugri og öryggri framtíð landamæra Íslands, það er að segja með því að efla landamæraeftirlit, spyrna gegn brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×