Landamæri

Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta
Starfsmenn tolla- og landamæraeftirlits Bandaríkjanna neita því að hafa meinað norskum ferðamanni inngöngu í landið vegna myndar í síma hans af afskræmdum varaforsetanum JD Vance. Maðurinn hafi ekki fengið inngöngu vegna fyrri vímuefnanotkunar.

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Landamærin okkar eru orðin pólitískt átakaefni. Engum gagnast að hunsa þá staðreynd. Við verðum að geta rætt málin. Opnum landamærum er mótmælt af einum hópi og lokuðum landamærum mótmælt af öðrum. Þetta eru jaðrarnir. Hlutverk stjórnvalda er að setja sér og fylgja ábyrgri stefnu í útlendingamálum.

„Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“
Dómsmálaráðherra lýsir áhyggjum af auknum innflutningi fíkniefna til landsins, og segir tilfelli þar sem einstaklingar sem tengjast erlendum glæpagengjum koma til Íslands vera mun algengari en fólk átti sig á. Aukið magn fíkniefna sem haldlagt er á landamærum sé þó jafnframt til marks um árangur.

Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við samfélagið
Ég átti á dögunum góð samtöl við kollega mína í Helsinki á fundi dómsmálaráðherra Norðurlandanna. Það er mikilvægur vettvangur þar sem við miðlum reynslu okkar og stillum saman strengi. Þetta samstarf hefur líklega aldrei verið mikilvægara en núna.

Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt
Fimm frumvörp til laga voru samþykkt á Alþingi í dag. Til umræðu voru alls kyns málefni líkt og samræmt námsmat grunnskólanema, listar á landamærunum, sorgarleyfi foreldra og framseldir sakamenn.

Frumvarp um farþegalista samþykkt
Frumvarp dómsmálaráðherra sem gerir flugfélögum skylt að afhenda íslenskum yfirvöldum farþegalista við komu til landsins hefur verið samþykkt á Alþingi.

Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift.

Allt farið í hund og kött á þinginu
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra var harðlega gagnrýnd af minnihlutanum á þingi fyrir orð sem hún lét falla á Sprengisandi að hann kæmi í veg fyrir að útlendingamálin hlytu umfjöllun á þinginu.

Skreytt með stolnum fjöðrum
Það er margt forvitnilegt við viðtalið sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra gaf á Sprengisandi í gær. Þar kynnti hún aðgerðir á borð við afturköllun verndar fyrir sakamenn, aukið landamæraeftirlit, stofnun brottfarar- og móttökustöðva og samninga við flugfélög um afhendingu farþegalista.

Sterk stjórn – klofin andstaða
Ríkisstjórnin er samhent um stóru málin á vorþinginu. Stjórnarandstaðan er á sama tíma klofin og nýtir ræðupúlt Alþingis í innbyrðis uppgjör og sálgæslu. Það getur út af fyrir sig verið áhugavert að fylgjast með þeirri iðju en öllu verra er að þessi þerapía tefur fyrir afgreiðslu mikilvægra öryggismála á Alþingi.

Bara einn sagt af sér og það sé Úlfar
Ríkislögreglustjóri segir fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum frjálst að tjá sig svo lengi sem hann beri ábyrgð á orðum sínum. Hún segir pólitískar væringar síðustu ár hafa bitnað á löggæslustörfum hér á landi.

Þorbjörg segir Úlfar hengja bakara fyrir smið
Dómsmálaráðherra sakar Úlfar Lúðvíksson um að hengja bakara fyrir smið með því að saka ríkislögreglustjóra og ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins um að hafa brugðist skyldum sínum og með því kalla eftir afsögn þeirra. Ráðherra segir stjórnmálamenn bera alla ábyrgð á stöðunni á landamærum Íslands.

Stefnir í annað metár í frávísunum
Fimmfalt fleiri tilkynningar vegna gruns um mansal hafa borist til ríkislögreglustjóra síðustu þrjú ár en árin þrjú á undan. Þá hafa frávísanir á landamærum margfaldast á sama tímabili. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vonar að auknar aðgerðir lögreglu og tolls á landamærunum hafi varnaðaráhrif.

Værum öruggari utan Schengen
Við gerðumst aðilar að svæðinu fyrir rúmum tuttugu árum síðan og felldum niður hefðbundið landamæraeftirlit gagnvart öðrum aðildarríkjum þess í trausti þess að við gætum stólað á eftirlit á ytri mörkunum. Sú hefur hins vegar aldrei verið raunin og hafa milljónir manna komizt inn á svæðið á þeim tíma.

Alþjóðlegt samstarf er forsenda öruggra landamæra
Viðsjárverðir tímar eru nú uppi í alþjóðamálum þar sem mörkin á milli friðar og stríðs eru óljós og ekki er hægt að útiloka að það ástand geti varað árum saman eða jafnvel í áratugi.

Flugfélögum verði skylt að afhenda farþegalista
Flugfélögum verður skylt að afhenda íslenskum yfirvöldum farþegalista við komuna hingað til landsins nái frumvarp dómsmálaráðherra fram að ganga. Ráðherra segir nauðsynlegt að hafa yfirsýn yfir þá sem koma hingað til að hægt sé að bregðast við skipulagðri brotastarfsemi.

Búlgarar og Rúmenar fá inngöngu í Schengen
Innanríkisráðherrar Evrópusambandsins hafa samþykkt að gera Búlgaríu og Rúmeníu aðila að Schengen-svæðinu. Þetta felur í sér að þann 1. janúar verður mun auðveldara fyrir fólk í Búlgaríu og Rúmeníu að ferðast til annarra ríkja í Schengen.

Staðreyndir í útlendingamálum
Sjálfstæðisflokkurinn hefur um árabil talað með ábyrgum hætti um stöðu mála í verndarkerfinu og lagt fram tillögur að breytingum á útlendingalögum.

Örugg landamæri eru forgangsmál
Eitt af áherslumálum Sjálfstæðisflokksins er að styrkja íslensk landamæri og skal það engan undra. Staðan í heiminum, sem við förum ekki varhluta af, er alvarleg og kallar á að við höldum þétt utan um landamæri okkar.

„Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“
Dómsmálaráðherra hafnar alfarið gagnrýni þingmanns Pírata á blaðamannafund sem hún hélt með Ríkislögreglustjóra í gær. Hún segir starfsstjórnir geta markað stefnu, og það sem kynnt var á fundinum sé ekki hennar stefna, heldur ráðuneytis hennar.

Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu
Stjórnarandstöðuþingmaður segir blaðamannafund ráðherra og lögreglustjóra bera vott um spillingu. Ný stefna og áætlun í landamæramálum voru kynntar á fundinum, þar á meðal áform um að koma á fót miðstöð við Keflavíkurflugvöll, þar sem hælisleitendur geti dvalið í allt að viku.

Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað
Íslensk stjórnvöld hafa markað nýja stefnu í landamæramálum sem ætlað er að efla landamæraeftirlit, auka viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning hælisleitenda.

Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin
Guðrún Hafsteindóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafa boðað til upplýsingafundar um stefnu stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun um samþætta landamærastjórnun.

Segir lífsgæði að veði ef landamærin eru ekki tryggð
Landamærin, skipulögð brotastarfsemi, hælisleitendakerfið og öryggi í Evrópu var meðal þess sem var til umræðu á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í tengslum við Norðurlandaráðsþingið. Forsætisráðherra Íslands segir lífsgæðin sem búið er að byggja upp að veði.

Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins
Í næsta mánuði stendur til að taka í notkun nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Lögreglufulltrúi segir að með nýja kerfinu sé meðal annars vonandi hægt að ná betri tökum á skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu.

Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember
Dómsmálaráðherra segir að nánara eftirlit verði fljótlega tekið upp á Schengen landamærunum í samræmi við önnur ríki samstarfsins. Þá væri til athugunar að taka upp andlitsgreiningarbúnað að ósk lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur líklegt að myndavélakerfi verði tekið upp á landamærum á næstunni sem hjálpi til við að stoppa af óprúttna aðila á leið til landsins. Hann skorar á stjórnvöld að gefa málaflokknum betri gaum. Mikið álag sé á starfsfólki embættisins sem glími jafnframt við aðstöðuleysi.