Innlent

Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ríkharður Jónsson frá Brúnastöðum í Fljótum rifjar upp síldarleitarflug Loftleiðamanna og segir frá samskiptum þeirra við heimamenn.
Ríkharður Jónsson frá Brúnastöðum í Fljótum rifjar upp síldarleitarflug Loftleiðamanna og segir frá samskiptum þeirra við heimamenn. Sigurjón Ólason

Síldarleit frá Miklavatni í Fljótum lagði grunninn að Loftleiðaævintýrinu. Eftir flugnám í Kanada fluttu þrír ungir menn einshreyfils flugvél heim með sér til Íslands í von um samstarf við Flugfélag Íslands. Þegar sú von brást stofnuðu þeir Loftleiðir árið 1944 og hófu eigin flugrekstur.

Í þættinum Flugþjóðin sýna þau Inga Dagfinnsdóttir, dóttir Dagfinns Stefánssonar flugstjóra, og Ríkharður Jónsson frá Brúnastöðum okkur bækistöð síldarleitarflugs Loftleiða við Miklavatn.

Inga Dagfinnsdóttir, dóttir Dagfinns Stefánssonar flugstjóra, sýnir hvar bækistöð síldarleitarflugsins var. Fyrir aftan er Loftleiðafánanum flaggað.Sigurjón Ólason

„Hér voru þeir frumkvöðlarnir Alfreð, Kristinn Olsen, pabbi, Smári Karlsson og fleiri. Og þeir flugu hérna daginn út og daginn inn í leit að síldinni. Þarna var verið að byggja upp heila starfsgrein í fluginu,“ segir Inga.

Frá bækistöð síldarleitarflugs Loftleiða við Miklavatn.Halldór Sigurjónsson

Margar af bestu ljósmyndunum sem til eru frá upphafsárum Loftleiða tók fyrsti flugvirki félagsins, Halldór Sigurjónsson. Sonur hans, Kristinn Halldórsson, varðveitir myndasafn föður síns og sýnir í þættinum fjölda sögulegra mynda, meðal annars frá síldarleitinni.

Flugbátur Loftleiða í flugtaksbruni á Miklavatni.Halldór Sigurjónsson

Systkinin Geirþrúður og Haukur Alfreðsbörn svara því hversvegna talað er um Loftleiðaævintýrið en aðeins tveimur árum eftir stofnun félagsins keyptu Loftleiðamenn fjögurra hreyfla Skymaster-flugvél, fjarka, fyrstu stóru millilandaflugvél Íslendinga.

Ríkharður Jónsson man eftir upphafinu á Miklavatni en hann var þá níu ára gamall. Á vatnsbakkanum sýnir hann okkur minjar frá síldarleitinni og rifjar upp sögur af samskiptum Loftleiðamanna við Fljótamenn.

Gert var við flugvélarnar undir berum himni.Halldór Sigurjónsson

Þau Inga og Ríkharður lýsa tilverunni við Miklavatn hjá þessum frumkvöðlum íslensks atvinnuflugs. Þeir sváfu í tjöldum, veiddu silung í matinn og gerðu við flugvélarnar undir berum himni.

„Það voru böll í Haganesvík, það var kallað Hótel Vík, og ég heyrði að þeir hefðu verið eftirsóttir á þessum böllum, af kvenþjóðinni. Þeir fóru í sínum flugbúningi og húfu og þá náttúrlega tóku þær eftir þeim. Þeir áttu séns,“ segir Ríkharður.

Unnið að hreyfilviðgerð við Miklavatn.Halldór Sigurjónsson

Í þættinum er heilsað upp á fyrrum Loftleiðastarfsmenn í Aðdáendaklúbbi Loftleiða en einnig flugfreyjur sem unnu hjá Loftleiðum og kalla sig Átturnar. Þær hafa meira að segja fyrrverandi forsætisráðherra í hópnum, Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hóf ferilinn á DC 6-vélum.

Þátturinn um Loftleiðir verður endursýndur á Stöð 2 síðdegis í dag, sunnudag, klukkan 16:55. Hér má sjá tíu mínútna myndskeið úr þættinum:

Áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2+ geta séð þættina um Flugþjóðina í streymisveitu Stöðvar 2 hvenær sem er. Fjórði þáttur er á dagskrá annaðkvöld, mánudagskvöld, klukkan 19:10. Hann fjallar um umfang flugstarfsemi á Íslandi og efnahagsáhrif hennar.


Tengdar fréttir

Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi

Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi.

Samstarfið við Braathen bjó til Loftleiðaævintýrið

Samstarf Loftleiðamanna við flugfélag norska skipakóngsins Ludvigs Braathen var í raun byrjunin á Loftleiðaævintýrinu, að mati barna Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða. Þetta kom fram í þættinum Flugþjóðin.

Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands

Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×