Icelandair flutti ellefu prósent færri ferðamenn til landsins í júlí
![Íslensku flugfélögin hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu samtímis krefjandi rekstrarumhverfi og mikilli samkeppni, einkum í flugi yfir Atlantshafið, og vísbendingum um að það séu blikur á lofti í ferðaþjónustu hér á landi.](https://www.visir.is/i/DB7330EA78690836168B1686867B5A740010CDED5A2253673CF12C79300E6F10_713x0.jpg)
Þrátt fyrir að Icelandair hafi flutt metfjölda farþega í júlí, umsvifamesti mánuður félagsins að jafnaði á hverju ári, vegna aukningar í tengifarþegum milli Evrópu og Bandaríkjanna þá var áfram samdráttur í ferðum til Íslands en sú þróun hefur haft neikvæð áhrif á einingatekjurnar. Á fyrstu sjö mánuðum ársins hefur ferðamönnum sem komu til landsins með Icelandair fækkað um ríflega níutíu þúsund á milli ára.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/736C24FE66706D2AA3ED866923D5DDC5294FBCAB5CCDA3DC49625D142964D74F_308x200.jpg)
Telur „alls ekki“ að flugfargjöld Play á heimamarkaðinum séu ósjálfbær
Flugfargjöld Play á íslenska heimamarkaðinum, þar sem flugfélagið er sterkast, eru „alls ekki“ ósjálfbær að sögn forstjórans sem fullyrðir að afkoman á seinni árshelmingi muni batna „verulega“ á milli ára en rekstrartapið á öðrum fjórðungi reyndist vera yfir fjórir milljónir dala. Hann telur að fækkun í komum ferðamanna til landsins sé ekki endilega mikil áhætta fyrir lausafjárstöðu Play en áætlanir gera ráð fyrir að hún verði „mun betri“ í lok árs miðað við sama tíma í fyrra.